Pressan - 25.10.1990, Síða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER
II
Þjóðin upplýst
úr fjármála-
ráðuneytinu og
skammdegið
kvatt
Mitt í annríkinu hjá þeim í fjár-
málaráðuneytinu hefur upplýsinga-
fulltrúinn þar á bænum fundið sér
tíma til að drepa niður penna og
skrifa stefnumarkandi tímamóta-
grein um ríkisfjármál.
Greinin heitir hvorki meira né
minna en „Hvað mundirðu gera við
1.427.000.000 krónur?"
Upplýsingafuljtrúi fjármálaráð-
herra, Mörður Árnason, skrifar síð-
an af list, undir þessari fyrirsögn,
um marga og mismunandi mögu-
leika til að koma svona upphæð í
Hér er brotið blað. Ný stefna
mörkuð. Það er tilhlökkunarefni að
bíða fleiri slíkra tilboða þeirra úr
fjármálaráðuneytinu. Ég sé fyrir
mér næstu fyrirsagnir upplýsinga-
fulltrúans, svo sem: „Hundrað og
ein aðferð til að eyða eitt hundrað
áttatíu og einni milljón og níutíu
þúsundum" — eða — „Viltu eiga
þrjátíu og sjö miiljónir, tvö hundruð
og tuttugu þúsund?“
Og sláttur yrði á mínum manni
þegar hann byði lesendum upp á að
láta hugann reika um lendur heil-
brigðisgeirans, t.d. undir fyrirsögn-
inni: „Vill einhver eyða fjörutíu og
tveimur milljörðum, fjögurhundruð
og átta milljónum, níu hundruð og
tuttugu þúsund krónum?"
Undirritaður gefur sér því miður
nú orðið næsta sjaldan tíma til að
blanda sér í blaðaskrif og forðast
reyndar allt karp á þeim vettvangi
um eigin verk. Hitt vil ég fyrir eng-
an mun láta hjá líða að færa upplýs-
ingafulltrúanum og öllu öðru heim-
ilisfólki í fjármálaráðuneytinu alúð-
arþakkir. Nú þarf engum að leiðast
lengur. Fjárlögin eru sú bók sem
hver maður mun bera hið næsta sér
i héðan í frá og sæki að mönnum
skammdegisdrungi eða önnur
þyngsli af einhverjum toga slá menn
einfaldlega upp í bókinni, finna sér
snotra tölu og láta sig svo dreyma
um nokkrar skemmtilegar aðferðir
til að eyða smáræðinu.
Héðan í frá þurfa naumt haldnir
launamenn, hvort sem þeir nú hafa
háskólanám að baki, baxa við að
stjórna flugumferð eða innheimta
skatta, ekki lengur að takmarka í
dagdraumum sínum æfingarnar við
að eyða smánarlegum laununum
einum.
Nei, þökk sé ómetanlegri hug-
kvæmni þeirra í fjármálaráðuneyt-
inu, sem upplýsingafulltrúanum
hefur komið á framfæri, hafa menn
nú öll íslensku fjárlögin að galopnu
leiksviði.
Djúpvitur maður á að hafa sagt
fyrir alllöngu að verður væri verka-
maðurinn launa sinna. Þeir hafa
sýnt það, fjármálaráðuneytismenn,
að þeir skilja þessi sannindi. Því vil
ég að lokum leyfa mér að leggja til
að upplýsingafulltrúinn verði nú
maklega launað framtakið og hon-
um veitt kauphækkun við hæfi og
væri hið minnsta fjórir og hálfur
hundruðustu ofan á núverandi laun.
Steingrímur J. Sigfússon
Athugasemd frá
Bústaðasókn
Sóknarnefnd Bústaðasóknar hef-
ur sent PRESSUNNI athugasemdir
vegna skrifa í blaðinu í síðustu viku
um einn lið í ársreikningum sóknar-
innar. Þessi liður var alls 632.299,80
kr. og ber heitið Biskupskjör og
kveðjumessa. í athugasemdunum,
sem Orn Jónsson, formaður sóknar-
nefndar, ritar undir fyrir hönd sókn-
arnefndar, eru gefnar nánari skýr-
ingar á upphæðinni:
„Þegar niðurstaða biskupskosn-
inga var kunn komu vinir og vel-
unnarar sr. Ólafs Skúlasonar saman
í safnaðarheimili kirkjunnar. Sókn-
arnefndin bauð þá gestum upp á
veitingar.
Síðar við kveðjumessu sr. Ólafs
var öllum kirkjugestum boðið í
kirkjukaffi eftir messu og var mjög
fjölmennt við þá messu.
Einnig er inni í þessari upphæð
kostnaður vegna tónleika, sem
haldnir voru til heiðurs biskups-
hjónunum að lokinni innsetningu
hans í embætti.
Þá bauð sóknarnefnd mökum,
biskupshjónum og föstu starfsfólki
kirkjunnar til kvöldverðar og er
kostnaður við það inni í fyrrgreindri
upphæð.
Það má ljóst vera að prestur, sem
hefur þjónað prestakalli sínu frá
upphafi með slíkum sóma og herra
Ólafur Skúlason gerði, verður ekki
kvaddur án þess að boðið sé til fagn-
aðar.
Gestrisni hefur ávalit verið til
staðar í Bústaðasókn og mun verða
það áfram, jafnvel þótt illar tungur
vilji gera sér mat úr kostnaði við
hana.“
Myndavíxl. Þau mistök urðu við
vinnslu PRESSUNNAR í síðustu
viku að mynd af Óttari Guðmunds-
syni dálkahöfundi birtist með grein
eftir Jón Óttar Ragnarsson. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
BREYTINGAR Á BYLGJUNNI
Eiríkur Jónsson er með morgun-
útvarp frá kl. 7:00 - 9:00 alla virka daga.
Jón Ársæll Þórðarson
hefur umsjón með síðdegisþætti, ísland
í dag, frá kl. 17-18:30 alla virka daga.
Fréttastofur Bylgjunnar
og Stöðvar 2
hafa verið sameinaðar og við flytjum
góðar fréttir frá morgni til kvölds.
Allir landsmenn, sem geta náð
útsendingu Stöðvar 2, hafa nú tök á, þegar ekki er sent út á Stöð 2, að
hlusta á útsendingu Bylgjunnar í sjónvarpstækinu. Fréttaþáttur Stöðvar 2,
19:19, er nú sendur út samtímis á Bylgjunni.
Með þessar breytingar í huga er
engin spurning ffyrir
auglýsendur að það borgar
sig að auglýsa ó Bylgjunni.
BYL GJAN
-engin spuming!
989
A/YIR B/LAR A HAGSTÆÐU VERÐ/
HRINGDU OG VIÐ KOMUM MEÐ BÍLINN TIL ÞÍN
BÍLALEIGAN
» GEYSIR
sími: 688888
Sudurlandsbraut 16, Reykjavík,
gengið inn frá Vegmúla.
• Nissan Micra, Mazda 323, Toyota Cor-
oiia, Nissan Sunny, Lada 1500 Station
• FJÓRHJÓLADRIFSBÍLAR: Subaru Sta-
tion, Toyota Tercel, Lada Niva, Range
Rover, Mitsubishi Pajero, Nissan Patrol,
Toyota Landcruiser, Ford Econoline
• 5—12 SÆTA: Mitsubishi Pajero (5—7),
Nissan Patrol (7), Toyota Hiace (11),
Toyota Litace (8), Ford Econoline (12)