Pressan - 25.10.1990, Síða 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 25. OKTÓBER
23
... fær Stefnir Ólafs-
son, stórbóndi á
Reykjaborg, fyrir aö
veita okkur Reykvík-
ingum það sem hús-
dýragaröur klikkar á;
sýnishorn af klass-
ísku hlaði viö íslensk-
an bóndabæ.
STOÐ 2
Bizarre-tónleikarnir fimmtu-
dag kl. 23.20. Heill herskari af
nýbylgju- og kjallararokksveit-
um, þar á meðal uppáhaldssveit-
in hans Jacques Lang, Sykurmol-
Með ástarkveðju frá Rúss-
landi From Russia with Love
fimmtudag kl. 00.10. Alvöru
James Bond-mynd fyrir alla fjöl-
skylduna. Kallarnir fá hasar og
konurnar Sean Connery.
Óvaent örlög Handful of Dust
föstudag kl. 23.50. Ný bresk sjón-
varpsmynd um hástéttarfólk.
Hópur góðra leikara; meðal ann-
ars Anjelica Huston og Alec Gu-
inness.
Prinsinn fer til Ameríku Com-
ing to America föstudag kl.
01.25. Fyrir aðdáendur Eddy
Murphy og þess óþekkta rithöf-
undar sem hann stal söguþræð-
inum frá í þetta sinn.
Tímahrak Midnight Run laugar-
dag kl. 21.20. Feiknaskemmtileg
mynd með Robert de Niro og
Charles Grodin.
Hundrað rifflar One Hundred
Rifles laugardag kl. 01.05. Þegar
Burt Reynolds, Raquel Welch og
Jim Brown koma saman í mynd
úr villta vestrinu þarf ekki að
1— 5“ 5“ 3—
P 11
B
i y ■ 1 :
21 i ‘
25 U
hafa mörg orð um árangurinn:
Leiðindi.
Lyndon B. Johnson — upphaf-
ið LBJ: The earlyyears sunnudag
kl. 21.50. Randy Quaid leikur for-
setann sem enginn bjóst við að
kæmist svo langt og enn síður að
hægt yrði að selja framhalds-
mynd um.
SJÓNVARPH) ■■
Grænu blökkukonurnar
fimmtudag kl. 22.20. Upptaka af
tónleikum Les Négresses Vertes
frá listahátíð. Þeim sem fóru á
tónleikana fannst víst ágætlega
gaman.
Þar dreymir græna maura
föstudag kl. 22.10. Mynd úr
smiðju Werners Herzog um
frumbyggja Ástralíu, hvíta
námamenn og maura. Þeir sem
þola ekki „list" ættu að hlífa sér'
við þessari.
Höfuðpaurinn The Pope of
Greenwich Village laugardag kl.
23.35. Kyntröllið Mickey Rourke
i einu af eftirminnilegri hlutverk-
um sínum og Eric Roberts fer
einnig á kostum. Mögnuð saga af
smákrimmum í New York.
Virkið sunnudag kl. 22.05. ís-
lensk sjónvarpsmynd eftir Ás-
grím Sverrisson, framleidd af
kvikmyndafélaginu Alvöru. Ró-
bert Arnfinnsson, Skúli Gauta-
son, Þormar Þorkelsson og Ylfa
Edelstein leika i sögu af tveimur
drengjum sem halda á afskekkt-
an sveitabæ að vitja unnustu
annars þeirra.
BIOIN
Hvíta valdið A Dry White Sea-
son Bióborginni kl. 4.50, 7, 9 og
11.10. Skyldu-mynd. Marlon
Brando sér til þess.
Líf og fjör í Beverly Hills Sce-
nes from the Class Struggle in Be-
verlyHills Regnboganum kl. 5,7,
9 og 11.10. Fyrir þá sem sáu Eat-
ing Raoul er þessi eðlilegt næsta
skref. Fyrir hina er hún góð byrj-
un.
Furðuleg fjölskylda Some Girls
Stjörnubíói kl. 5,7,9 og 11. H vers
vegna eru menn með svona mik-
ið umstang í kringum „freud-
íska“ kynlifsdrauma sína? Af
hverju eiga þeir þá bara ekki fyr-
ir sjálfa sig.
Svarti engillinn Dark Angel
Bíóhöllinni kl. 5, 7, 9 og 11. Ef
einhver man eftir Dolph Lund-
gren fyrir eitthvað annað en að
Ég lít í kringum mig á bókíh i
40
r 7— 5” r- ST"
t N
r
P
P
r
m
P »
■ 43
I 47
N
L
KROSSBAIAN
LÁRÉTT: 1 pyntingartæki 6 hljóðnir 11 hvöss 12 hitunartæki 13
drambs 15 brandaukasegl 17 þreyta 18 lóð 20 elskar 21 slappt 23
óreiðu 24 fugla 25 hrella 27 erfiðar 28 mannvæn 29 upptugga 32
brjóstnál 36 baun 37 illfygli 39 tóbak 40 hvíla 41 manns 43 leiði 44
matvönd 46 maginn 48 þjást 49 fædd 50 illir 51 skalf.
LÓÐRÉTT: 1 dingla 2 stuðningur 3 undirförul 4 bilbugs 5 svarar 6 álit
7 fanga 8 drunur 9 bors 10 minnkir 14 rotin 16 spyrja 19 verðmæta-
mat 22 harm 24 hafir 26 orka 27 sár 29 yfirhöfn 30 dyggur 31 ávítur
33 minnka 34 innihaldslausa 35 gangfletinum 37 skelfir 38 hams-
lausar 41 grandi 42 sjávardýr 45 seint 47 hjálp.
skemmtistaðnum, á
förnum vegi almúgans
og sé engan sem ég
þekki.
I ELLERT B. SCHRAM
hafa verið í slagtogi við Grace Jo-
nes er þetta mynd fyrir hann.
Stærstu tíðindin eru þau að
drengurinn er orðinn svarthærð-
ur.
á laugardag. í skúlptúrum sínum
vinnur Brynhildur mikið út frá
möguleikum glers og hefur þótt
framsækin í list sinni.
Almanak Hins íslenska bók-
menntafélags 1991 er komið
út. Þar er að finna allt sem er
þess virði að vita; fjarlægð til
endimarka alheimsins, upp á
hvaða mánaðardag öskudaginn
ber á næstu árum og hvað einn
þumlungur kvikasilfurs á staðal-
skilyrði er mörg bar.
NÆTURLIFIÐ ■■■
Púlsinn á Vitastíg 3 er nýjasta
athvarfið í næturlífi borgarinnar.
Staðurinn er einkum ætlaður
Vínsœlustu
myndböndin
1. War of the Roses
2. Sea of Love
3. Skin Deep
4. Let it Ride
5. Major League
6. Black Rain
7. Uncle Buck
8. Tango and Cash
9. Driving miss Daisy
10. Emmanuelle 6.
LJÓSMYND: SIGURÞÓR HALLBJÖRNSSON
Dagar þrumunnar Days of
Thunder Háskólabíói kl. 3,5,7,9
og 11.10. Dýr mynd um marg-
kveðna vísu; ameríska draum-
inn, og hvað það er ómögulegt líf
að hafa ekki sannað fyrir sjálfum
sér og öðrum að maður sé ein-
hvers virði.
Skjálfti Tremors Laugarásbíói
kl. 5, 7,9 og 11. Fyrir alla þá sem
þrá það eitt að láta hræða úr sér
líftóruna.
Stórkostleg stúlka Pretty Wö-
man Bíóhöllinni 5, 7.05 og 9.10.
Ef einhver á eftir að sjá þessa
mynd þá er hún alls ekki vitlaus
afþreying; til dæmis á leið heim
úr vinnunni eftir leiðinlegan
dag.
LEIKMUSIN
Ég er meistarinn eftir Hrafn-
hildi Hagalín á litla sviði Borgar-
leikhúss fimmtodag, föstudag og
laugardag. Nú er uppselt á sýn-
ingar helgarinnar, enda gagn-
rýnendur og áhorfendur óvenju
einróma um gæði meistarans.
Tryggðu miða T tfma.
Fló á skinni eftir Georges Fey-
deau á stóra sviði Borgarleik-
húsa fimmtadeg, löstudag og
laugardag. Það er lika rffandi
gangur á flónni og uppselt á nær
allar sýningar. Og það er ekkert
skrýtið; franskt daður, ástir og
misskilningur. Ljós í haustmyrkr-
inu.
MYNDLISTIN
Valgerður Hauksdóttir grafík-
listakona sýnir verk sín í Nor-
ræna húsinu. Grafik Valgerðar er
meira en handiðnaður, hún hef-
ur verið dugleg við nýsköpun í
verkum sínum, fer ótroðnar
slóðir og gefur vonir um að ís-
lensk grafík nái sér aftur á strik.
Brynhildur Þorgeirsdóttir
opnar sýningu á Kjarvalsstöðum
TONLISTIN
Afmælistónleikar í listasafni
Sigurjóns Ólafssonar á sunnu-
daginn kl. 20.30. Dóttir lista-
mannsins, Hlíf Sigurjónsdóttir,
leikur á fiðlu og David Tutt á pí-
anó. Meðal annars verður frum-
flutt nýtt verk eftir Jónas Tómas-
son. Einnig verða flutt verk eftir
Jón Nordal, César Franck og De-
bussy.
tónlistarfríkum, enda mikið lagt
upp úr aðstöðu til tónlistarflutn-
ings. Djass, blús, rokk og ról hef-
ur hljómað á Púlsinum undanfar-
ið, en í kvöld verður fyrsta kántrí-
kvöldið er fram kemur hljóm-
sveitin Sveitin, en hana skipa
gerir Hornið að góðu veitinga-
húsi er kannski ekki endilega
maturinn eða þjónustan, heldur
það tvennt saman við innrétting-
arnar og gluggana stóru og lágt
verð. Við þetta bætast óteljandi
smáatriði; gott kaffi, blaðagrind,
tikallasími og fleira smálegt. Eitt
er samt aðfinnsluvert. Allt í einu
fóru viðskiptavinir Hornsins að
taka eftir því að borð voru tekin
frá og voru látin standa auð í
langan tíma. Það hlýtur að vera
óþarfi á stað sem er jafnvinsæll
og Hornið.
Þetta þýska freyðivín
er sjálfsagt besti kostur-
inn fyrir þá sem vilja
skála en telja ekki
ástæðu til að kaupa ekta
kampavín. Alls ekki of
sætt, eins og freyðivín á
til að vera. Kostar 800
krónur í ríkinu.
gamlingjar sem hafa verið við-
loðandi kántrítónlist um árabil,
þeir Arnar Sigurbjörnsson gítar,
Ágúst Ragnarsson bassi, Hannes
Jón Hannesson gítar og Rafn Sig-
urbjörnsson trommur. Sérstakur
gestur kvöldsins verður islenska
kántrisöngkonan Sigrún Sigurð-
ardóttir, sem gert hefur garðinn
frægan í Svíaríki. Á föstudag
byrjar kvöldið með sveitatónlist
en endar með Rolling Stones-
stemmningu. Á laugardag, fyrsta
vetrardag, byrjar Valgeir Guð-
jónsson á að hita upp fyrir blús
og Bláa engla með Einar Vilberg
í fararbroddi, en helgin endar á
sunnudag með besta blúsbandi
bæjarins, Vinum Dóra.
VEITINGAHUSIN ■
Hornið í Hafnarstræti er vel-
heppnaður veitingastaður, eins
og rúmlega tíu ára saga hans
vitnar um. Þar hefur ekki þurft
að breyta neinu til þess að fólk
haldi áfram að koma. Það sem
FJOLMIDLAR WEM
Hvort það er sök fámennisin:
eða einhvers tepruskapar þa
er það nú einu sinni svo að ís-
lensk blöð eru sjaldan leiðin-
legri en þegar þau fjalla um
fólk.
Jafnvel blöð sem eru að
springa af skemmtilegheitum
þegar fjallað er um gjaldþrot
og óráðsíu í ríkisfjármálum
verða óheyrilega hátíðleg og
pukursleg þegar kemur að
fólki. DV er ágætt dæmi um
þetta. Þar er heill efnisþáttur,
Sviðsljós, helgaður fréttum af
fólki og á sjálfsagt að svipa til
þátta sem vanalega heita Pe-
ople í erlendum blöðum. En í
stað þess að vera tindrandi af
fjöri er Sviðsljós hins vegar
einna líkast myndskreyttum
Hagstofutíðindum.
Ef lífið væri eins og það birt-
ist í Sviðsljósi væru einu ham-
ingjustundirnar fimmtugs-,
sextugs- og sjötugsafmæli. í
þau mætti enginn nema af-
mælisbarnið og maki og gerðu
það eitt sér til skemmtunar að
standa upp á endann, halda á
glasi og horfa tómum augum
fram á við.
Gunnar Smárí Egilsson