Pressan - 25.10.1990, Síða 26
LÉT SAUMA
SAMANÁ SÉR
MUNNVIKIN
— og léttist um 45 kíló
Enn verða mistök við pöntun
á dýrum til ræktunar
ÞAU ERU
GÆF OG
ELSKULEG
— segir Þorsteinn
Þóroddsson bóndi
sem situr nú
uppi með
lamadýr í stað
loðdýra
Steingrimur
Hermannsson:
BOBIÐ AB KOMA
FRAM í ÐALLAS-
ÞÁTTUNIIM
— á að leika nýjan
elskhuga miss Elly
4. TÖLUBLAÐ 1. ÁRGANGUR
FIMMTUDAGUR 25. OKTÓBER
STOFNAÐ 1990
Óvœntur fundur í veggjum Valhallar:
GULLSKIHB
FUNDIÐ!
— deilt um hvort gullid tilheyri Sjálfstœdisflokknum
Reykjavík, 25. olctóber
„Fyrst héldum við að
þetta væru steypu-
skemmdir en þegar við
könnuðum málið betur
kom í Ijós að í steypunni
voru bæði leifar af eikar-
borðum og eins ýmsir góð-
málmar,“ sagði Kjartan
Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins, en gullskipið,
sem leitað hefur verið á
Skeiðarársandi til margra
ára, hefur nú fundist í
veggjum Valhallar, húsi
Sjálfstæðisflokksins.
„Svo virðist sem sandurinn
í steypuna sem notuð var í
Valhöll hafi verið tekinn úr
Skeiðarársandi. Þó einkenni-
legt kunni að virðast hafa
menn ekki tekið eftir því á
sínum tíma að gullskipið fór í
kvarninar sem notaðar voru
til að fínkurla sandinn. Það
var því ekki fyrr en fyrir
skömmu að menn uppgötv-
uðu skipið hér í veggjunum í
Valhöll," sagði Kjartan.
Verkfræðingar sem kann-
að hafa borsýni úr veggjum
Valhallar telja að þar sé að
finna gull, kopar og ýmsa eð-
almálma.
í kjölfar þessarar niður-
stöðu hefur risið upp deila
milli Sjálfstæðisflokksins og
Svavars Gestssonar mennta-
málaráðherra um hver eigi
gullið í veggjum Valhallar.
Svavar vill meina að gullið sé
eign íslenska ríkisins og
krefst þess að sjálfstæðis-
menn skili því, jafnvel þó rífa
verði Valhöll. Sjálfstæðis-
menn segja á móti að velunn-
arar flokksins hafi gefið sér
steypuna á sínum tíma og
þeir eigi hana nú lögform-
lega. Þeir hafa hins vegar
ekki getað upplýst hver það
var sem gaf steypuna til húss-
ins, þar sem sá fór fram á að
nafni hans yrði haldið
leyndu.
„Auðvitað varð ég hissa
þegar ég heyrði þetta,“ sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins og einn þeirra sem leituðu
gullskipsins á Skeiðarársandi
til margra ára. „Við munum
hins vegar ekki gefast upp.
Það er ómögulegt að segja
hvort allur sandurinn sem
tekinn var á Skeiðarársandi
hafi endað í Valhöll. Við
hyggjumst því leita afgangs-
ins af skipinu í öðrum húsum
frá svipuðum tíma.“
Þessi mynd var tekin af Gísla og konunurr. á meðan allt lék í lyndi.
Fjórtán aldraöar konur:
RÆNDU STRÆTÓ
OG KREFJAST
ALMENNILEGRAR
UPPÁHELLINGAR
Reykjavík, 25. október
Fjórtán aldraðar kon-
ur af elliheimilinu Grund
rændu strætisvagni í
morgun og halda bíl-
stjóranum og sjö farþeg-
um í gíslingu. Konurnar
krefjast þess að i fram-
tíðinni verði áfram boðið
upp á venjulegt kaffi á
elliheimilinu, en til hef-
ur staðið að hafa þar ein-
ungis koffínlaust kaffi.
Alþingi:
Guðrún rekin út með kanínurnar
Reykjovík, 24. október
Friðrik Ólafsson,
skrifstofustjóri Alþing-
is, sendi Guðrúnu Helga-
dóttur, forseta samein-
aðs þings, bréf i gær þar
sem hann krafðist þess
fyrir hönd þingsins að
hún léti fjarlæga kanín-
ur sínar úr Alþingishús-
inu.
í bréfi skrifstofustjórans
segir að um tíma hafi þing-
heimur litið í gegnum fing-
ur sér varðandi kanínu-
ræktun forsetans. Hins veg-
ar hafi kanínunum fjölgað
svo mjög að undanförnu að
vart sé vinnufriður í húsinu
fyrir þeim. Þær haldi sig
ekki lengur í risinu heldur
sjáist nú um allt hús.
„Ég veit ekki hvað þetta
bréf á að þýða,“ sagði Guð-
rún í samtali við GULU
PRESSUNA. „Þetta her-
bergi á loftinu hafði ekki
verið notað um áratuga-
skeið. Ég get því ekki séð
að það komi þingheimi við
þó ég hafi skotið þar inn
nokkrum kanínum. Ekki
veitir manni af að drýgja
þingfararkaupið, sem er nú
ekkert til að hrópa húrra
fyrir."
„Þetta sull er verra en
nokkurt englapiss," hróp-
aði Jakobína Þórðardóttir,
ein kvennanna, út um
gluggann á strætisvagnin-
um, þegar blaðamaður
GULU PRESSUNNAR
reyndi að ná tali af þeim í
morgun.
Gísli Sigurbjörnsson, eig-
andi Grundar, vildi sem
minnst tjá sig um málið í
morgun en sagði þó að líta
ætti á þetta atvik sem
merki um visst agaleysi í
syðri álmu elliheimilisins.
Þetta væri ekki í fyrsta sinn
sem þessar konur væru til
vandræða. Til dæmis hefðu
þær beitt kaupmann í ná-
grenni elliheimilisins fjár-
kúgunum og hótað að segja
konu kaupmannsins frá
daðri hans við afgreiðslu-
stúlkurnar.
„Þessu lýgur hann Gísli,"
svaraði ein kvennanna
þessum ásökunum Gísla,
þegar GULA PRESSAN bar
þær undir hana.
Garðar Corles
hótar að
stofna þnnga-
rokkssveit
Reykjovfk 24. október____
Á fundi fjárveitinga-
nefndar í gær hótaði
Garðar Cortes, for-
svarsmaður íslensku
óperunnar, að stofna
þungarokkssveit
ásamt helstu söngvur-
um og hljóðfæraleikur-
um óperunnar. Hótun-
in kemur í kjölfar þess
að fjárveitinganefnd
hefur ekki viljað
hækka framlög til
óperunnar.
„Auðvitað erum við
felmtri slegnir," sagði Sig-
hvatur Björgvinsson, for-
maður fjárveitinganefnd-
ar. „Þó við viljum að sjálf-
sögðu ekki láta hóta okk-
ur með þessum hætti eig-
um við bágt með annað
en láta undan í þessu til-
viki.“
MUNíÐ PROFKJÖRíÐ