Pressan - 31.01.1991, Page 9

Pressan - 31.01.1991, Page 9
________FIMMTUDAGlll l'HI 1 1 1111 1 1111_ RINNFEKK Síöastliöiö haust fór stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna þess á leit viö ríkisendurskoöun aö hún endurmæti eignar- liði sjóösins til þess aö fá meðal annars úr því skoriö hve stór hluti lánanna væri í raun styrkir. BORGAR SIG FYRIR EINSTÆÐA FORELDRA AÐ FARA í NÁM í lánsjóðunum á hinum Norður- löndunum er ekki tekið tillit til fé- lagslegra aðstæðna fólks þegar láns- upphæðin er ákveðin. Þar er það talið nægja að félagslegur mismun- ur sé leiðréttur í skattakerfinu. Það sé óþarfi að gera það oftar en einu sinni. Þetta íslenska kerfi verður enn sérstæðara þegar kemur að ein- stæðum foreldrum. Aðstöðumunur þeirra og annarra foreldra er nefni- lega bættur hjá Tryggingastofnun, Dagvistun, í skattakerfinu og hjá lánasjóðnum. Einstætt foreldri með tvö börn og í námi fær því hærri námslán, hærri endurgreiðslur úr skattkerfinu og þarf að borga lægri dagvistunar- gjöld, auk þess sem það fær meðlag og mæðra- eða feðralaun með barni sínu. Þegar þetta allt er lagt saman kemur í ljós að ráðstöfunartekjur þessa foreldris eru um þriðjungi hærri en hjóna með miðlungstekjur og með sama barnafjölda. Ef gengið er út frá meðallaunum þá jafngildir þessi munur um 600 þúsund krón- um á ári fyrir fjölskylduna úti á vinnumarkaðinum. Ef einstæðir foreldrar í vinnu og námi eru bornir saman kemur einn- ig fram umtalsverður munur, skóla- fólkinu í hag. í raun má segja að það borgi sig fyrir þá einstæðu foreldra sem eru með minna en 150 þúsund krónur á mánuði að fara í skóla og taka námslán. SVINDLAÐ Á LÁNASJÓÐNUM Þetta allt saman; reglur um endur- greiðslu, vaxtaleysi og tiltölulega há framfærslulán, gera það að verkum að námsmenn finna ekki fyrir neinni hvatningu að taka sem minnst að láni heldur þvert á móti. Margt í reglum sjóðsins býður einn- ig upp á hálfgert svindl. Þannig er mjög algengt að fólk í foreldrahúsum skili umsókn til sjóðsins þar sem kemur fram að það leigi úti í bæ. Með því hækkar það lánin um 27 þúsund á mánuði eða um tæplega 250 þúsund á ári. Einn- ig hefur komið í ljós að þegar reglur um atvinnutekjur námsmanna hafa verið hertar til skerðingar á lánum þá lækka tekjur þeirra á móti. Ann- að hvort vinna þeir einfaldlega minna eða vinna þá frekar svarta vinnu. STJÓRN SJÓÐSINS VILL VITA HVORT HANN ER GJALDÞROTA Síðastliðið haust fór stjórn Lána- sjóðs íslenskra námsmanna þess á leit við ríkisendurskoðun að hún endurmæti eignarliði sjóðsins til þess að fá meðal annars úr því skor- ið hve stór hluti lánanna væri i raun styrkir. Enn hefur engin skýrsla komið frá ríkisendurskoðun en Sig- urður Þórðarson vararíkisendur- skoðandi sagði í samtali við PRESS- UNA að vinna við hana væri langt komin. Hennar væri því að vænta. Þrátt fyrir margar skýrslur um sjóðinn á undanförnum árum hefur ekkert mat verið lagt á stöðu hans; hversu mikið skattborgarar þurfa að greiða með honum á næstu árum eða hvort hann sé í raun gjaldþrota eins og húsnæðissjóðirnir, lífeyris- sjóðirnir og fleiri undirstöður ís- lenska velferðarkerfisins. Mat manna sem PRESSAN ræddi við var misjafnt. Sumir sögðu að sjóðurinn yrði gjaldþrota eftir 10 til 20 ár. Aðr- ir sögðu að sjóðurinn væri þegar orðinn það. Það ætti bara eftir að reikna það út svo það lægi fyrir svart á hvítu. En eins og um hina gjaldþrota sjóðina þá ganga lántakendur, starfsmenn og stjórnvöld enn um sjóðinn eins og hann sé traustur bakhjarl velferðarkerfisins og eigi meira en nóg aflögu. Gunnar Smári Egilsson og Friðrik Þór Guðmundsson 9 IFyrir skömmu hætti Þráinn Bertelsson kvikmyndaleikstjóri út- gáfu á grínblaðinu Gleðitíðindum og nú heyrist að Þrá- inn hafi gefið annað útgáfufóstur frá sér. Sámkvæmt samn- ingi við Landssam- band hestamanna gaf hann út blaðið Hesturinn okkar og átti hann eftir sex mánuði þegar nýr útgefandi tók við, Gunnar Gunn- arsson rithöfundur . . . u m miðjan febrúar hefjast úr- slit í hinni árlegu spurningakeppni framhaldsskólanna í sjónvarpi. Dómari að þessu Kl^| Rpgnheiður Erla - nokkrum árum í sig- ursælu liði Reykjavíkur í spurninga- keppni Ómars Ragnarssonar. Spyrill í þáttunum verður útvarpsmaður- inn Stefán Jón Hafstein, einn hraðmæltasti maður íslands, ef marka má frammistöðu hans í þjóð- arsálinni á Rás 2 . . . l^lýiega afréð Davíð Aðal- steinsson að víkja úr sæti sínu á lista Framsóknarflokksins í Vestur- landskjördæmi, til að draga úr hreppa- rígnum. Nú heyrum við að varamaður Eiðs Guðnasonar hjá krötum kjör- dæmisins, Sveinn G. Hálfdánarson, sem í prófkjöri lækkaði niður í þriðja sæti, vilji gefa það sæti eftir og telji heppilegt fyrir flokkinn að víkja fyrir kvenmanni af landsvæði sem telur sig afskipt. Mun hann hafa boðist til að víkja fyrir Guðrúnu Konný Pálmadóttur oddvita í Búð- ardal. Það fylgir sögunni að Sveinn sé alls ekki að draga sig í hlé frá pól- itíkinni, heldur ætli að nýta tímann vel fram að næstu kosningum . . . A sama fundi utvarpsraðs fannst Ástu Ragnheiði Jóhannes- dóttur, sem einnig situr fyrir fram- sóknarmenn í ráðinu, að ástæða væri til að gagnrýna Ólaf Sigurðs- son fréttamann fyrir stjórn hans á umræðuþætti um Persaflóastríðið. í framhaldi af því var áréttað að ein- ungis reyndir fréttamenn væru fengnir til að segja frá Persaflóa- stríðinu . . . II ■ Hugmyndir um aukna notkun á Eurosport hafa komið fram í út- varpsráði. íslenska ríkisútvarpið er einmitt einn af eignaraðilum Euro- sports, sem er í eigu samtaka evr- ópskra sjónvarpsstöðva, og þykir ýmsum tímabært að fara að nýta þessa stöð betur. Það mun hafa ver- ið Markús Örn Antonsson út- varpsstjóri sem orðaði slíkar hug- myndir en innan útvarpsráðs komu strax fram efasemdir um að slíkt myndi minnka hlut íslensks íþrótta- efnis...

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.