Pressan - 31.01.1991, Page 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 31. JANÚAR 1991
bestft
verst
klsddu
konur
andsins
„Gullkjóllinn einu mistökin,"
segir Heiðar Jónsson, en
klæðnaður Vigdísar er næst
þvi að vera fullkominn.
Hefur stórbætt klæðaburð
sinn.
Ber af á Alþingi og heldur sín-
um sessi sem ein af best
klæddu konum landsins.
Ljómandi þrátt fyrir dökkan
stíl.
Fyrrum sýningarstúlka, en nú í
hópi þeirra best klæddu
vegna eigin smekks.
Nostrið skiiar henni inn á list-
ann.
,,Það er svo skrítið með íslenskar konur að
það þyrfti að hafa svo margar á báðum listum,
samanber Bryndísi Schram, sem hefur stór-
kostlegan stíl, en getur verið út í hött sem ut-
anríkisráðherrafrú,“ segir Heiðar Jónsson
snyrtir, einn fimm dómnefndarmanna sem
PRESSAN fékk til að velja 10 best og verst
klæddu konur landsins.
Þeir sem tóku að sér þetta vandasama verk
ásamt Heiðari voru Marta Bjarnadóttir kaup-
maður í Evu/Gallerí, Vilborg Einarsdóttir
blaðamaður á Daglegu lífi, sérblaði Morgun-
blaðsins, Páll Stefánsson ljósmyndari og Sævar
Karl Ólason kaupmaður.
Hver dómnefndarmaður vann sjálfstætt og
skilaði inn lista til ritstjórnar. Par voru stigin
tekin saman og fengin út röð þeirra 10 best og
verst klæddu.
„Ég verð að vera alveg voða-
lega gamaldags: Mér finnst
ægilegt að sjá þessa ungu fal-
legu stúlku með gullröddina.
Ég fæ alltaf sár á augnhimn-
urnar þegar ég sé útganginn á
henni," segir Heiðar Jónsson
snyrtir.
Páll
Marta
Heiðar
Vilborg
Sævar Karl
1. Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands.
„Næstum fullkomin, en
mætti laga hárgreiðsluna
betur. Klæðir sig ávallt við
hæfi. I einu orði sagt:
Smekkleg." Vigdís skar sig
algjöriega úr, var í einu af
þremur efstu sætunum hjá
öllum dómnefndarmönn-
um.
2. Salóme Þorkels-
dóttir, alþingismaður.
„Best klædda konan á
þingi. Ber þar af. Klæðir
sig í samræmi við starf og
stöðu. Mjög hugguleg, en
svolítið stöðnuð. Má
stundum passa sig á að
vera ekki of unglega
klædd.“
Eins og sniðin inn i Clöru,
sagði einn dómnefndar-
manna.
3. Brynja Nordquist,
flugfreyja.
„Sú eina á íslandi sem er
smart á heimsmæli-
kvarða,“ segir Heiðar
Jónsson snyrtir og Marta
Bjarnadóttir tekur undir
það: „Alltaf klædd sam-
kvæmt nýjustu tísku."
4. Kristín Jóhannes-
dóttir, kvikmynda-
geröarmaöur.
„Hún er klassísk. Sér-
staklega smekkleg." Tveir
dómnefndarmanna settu
Kristínu í 1.—3. sæti.
5. Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir,
dósent og fyrrum
þingkona
„Kemur sérstaklega á
óvart hvað hún er fljót að
finna sig. Fyrir stuttu var
hún hinum megin," segir
Heiðar Jónsson. „Fínleg
og kvenleg," segir Sævar
Karl. Fjórir dómnefndar-
menn töldu hana í hópi 10
best klæddu.
6. Bera Nordal, list-
fræðingur.
„Alltaf með heildar-
myndina á hreinu, en
mætti stundum vera líf-
legri. Kann mjög vel að
klæða sína „týpu“.“ Þrátt
fyrir dökkan stíl nær Bera
6. sætinu með glans.
7. Svala Lárusdóttir, í
Gallerí Nýhöfn.
„Hún hefur eigin stíl og
eyðir greinilega tíma í að
hugsa um útlitið. Færi ekki
út á götu með rúllur í hár-
inu.“
8. Elín Hirst, frétta-
maður.
„Alltaf til fyrirmyndar í
vinnunni. Pottþétt í lita-
samsetningu." Vilborg
Einarsdóttir segir Elínu
þann fréttamann sem
virðist spá mest í hvað fari
vel á skjánum. Tvær stöll-
ur Elínar eru á listanum yf-
ir 10 verst klæddu konurn-
ar.
9. Björk Guðmunds-
dóttir, söngkona.
„Djörf." Sú umdeildasta
þegar klæðnaðurinn er
Best klædda listakonan.
Eina sjónvarpskonan i hópi
þeirra best klæddu.
annars vegar. Bæði í hópi
best og verst klæddu
kvenna landsins.
10. Guðrún Ingólfs-
dóttir, kaupmaður í
Clöru.
„Bregst aldrei. Kominn
tími til að fólk taki eftir
henni."
Í nólœgð þeirra
best klaeddu
Alls fengu 33 konur at-
kvæði í valinu á 10 best
klæddu konunum.
Nokkrar voru nálægt því
að komast inn á listann:
Bryndís Schram,
sem lenti í þriðja sæti á
listanum yfir verst
klæddu konurnar, Edda
Guðmundsdóttir for-
sætisráðherrafrú, (gerir
aldrei mistök, en mætti
vera djarfari), Ebba Sig-
urðardóttir biskupsfrú
(kona sem passar í rull-
una), Ólöf Pétursdóttir
settur borgardómari
(einfaldur en vandaður
fatnaður), Ingrid Hall-
dórsson stórkaupmað-
ur (glerfín og sést langar
leiðir), Stefanía Dáv-
ídsdóttir eiginkona
Davíðs Sigfússonar í
Heklu (klæðnaður er
nánast óaðfinnanlegur
við öll tækifæri), As-
hildur Haraldsdóttir
fiautuleikari_ (spenn-
andi), og Árný Guð-
johnsen eiginkona Stef-
áns Guöjohnsen í Rafís
(smekkleg og velur
vönduð föt).