Pressan - 13.06.1991, Side 9

Pressan - 13.06.1991, Side 9
FIMMTUDAGUR PRESSAN 13. JÚNÍ 1991 .9 Ólafur Ólafsson: Vel hugsanlegt að útdeila ókeypis sprautum og nálum. hvað batnað í kjölfar þess að al- næmi hefði komið til. „Ég veit að það er ekkert hugsað um smithættu þar sem sprautur eru notaðar. Þær ganga bara hringinn eins og um hasspípu væri að ræða," sagði einn viðmælenda PRESSUNN- AR sem umgengist hefur unga fíkni- efnaneytendur. Þessi viðmælandi sagði að þetta fólk væri yfirleitt búið að kasta það miklu frá sér að hættan ALNÆMI af alnæmissmiti væri einfaldlega ekki ofarlega í huga þeirra. ALNÆMI ER KOMIÐ í HÓPINN En er þessi hópur laus við alnæmi eins og virðist mega ætla? Um það eru skiptar skoðanir. „Alnæmi er inni í þessum hópi, ég veit allavega um einn einstakling þar sem er sýkt- ur af alnæmi," sagði maður um þrí- tugt sem umgengist hefur fíkniefna- neytendur og tekið þátt í sprautu- samkvæmum með þeim. Hann heldur því reyndar fram að varkárni hafi aukist meðal fíkniefnaneyt- enda: „Ég held að það hafi breyst nokk- uð mikið að undanförnu og að fólk sé farið að nota sprauturnar bara einu sinni — þær eru ekki lengur látnar ganga á milli. Þetta hefur ver- ið að breytast á síðustu tveim, þrem árum. Fólk fer og nær í nýjar spraut- ur í apótek," sagði þessi viðmælandi PRESSUNNAR en rétt er að taka fram að hann telur sig ekki hafa kynnst harðasta hópnum á meðal fíkniefnaneytenda. HUGSANLEGT AÐ ÚTDEILA ÓKEYPIS SPRAUTUM „Það má vel athuga það að út- hluta ókeypis sprautum," sagði Ólaf- ur Ólafsson landlæknir þegar hann var spurður að því hvort það kæmi til greina að dreifa ókeypis spraut- LIFRARBÓLGA Umgengni sprautunotenda bendirtil þess að smitleiðir alnæmis séu greiðfærar ef veiran berst inn í þenn- an áhættuhóp. um og sprautunálum til að draga úr smithættu meðal fíkniefnaneytenda og bætti við: „Það á sérstaklega við ef sprautunotkunin eykst en hún hefur ekki verið ýkja mikil." Ólafur sagði að dreifingin yrði að vera und- ir eftirliti þannig að engin hætta væri á að börn kæmust í þetta. „Menn hafa velt því fyrir sér hvort það borgi sig að dreifa sprautunál- um ókeypis en komist að því að það er ekki svo einfalt," sagði Björn Hall- dórsson þegar hann var spurður að því hvort ókeypis dreifing kæmi til greina. Til slíkra ráða hefur verið gripið erlendis. Björn sagði að nál- arnar sjálfar væru ekki aðal vanda- málið heldur sprauturnar. Þá taldi hann að vandséð væri hvernig slík útdeiling færi fram. SPRAUTUNOTENDUR FLESTIR UNGIR Það er áberandi að áhættuhópur- inn meðal fíkniefnaneytenda er fremur ungur. Hann er fjölmennast- ur á aldrinum 16 til 30 en það er ein- mitt í þeim aldurshópi sem lifrar- bólgan er algengust. Ekki virðist þó ástæða til að ætla að hér sé að vaxa upp kynslóð „Dýragarðsbarna", það er að segja barna og unglinga sem sprauti sig mjög ung. Yfirleitt á sprautunotkun sér einhverja forsögu og hún hefst ekki fyrr en um 16 ára aldur. Aug- ljóst er þó að engar tilraunir hafa verið gerðar til að kortleggja þenn- an hóp nákvæmlega. „Ég held að það sé óhætt að segja að unglingarnir séu ekki mjög ungir þegar þeir byrja að sprauta sig. Það á sér vanalega aðdraganda í öðrum efnum svo sem bjór og hassi," ságði Petrína Ásgeirsdóttir hjá útideild Fé- lagsmálastofnunar Reykjavíkur. Undir þetta tók Björn Halldórsson en hann sagði að fíkniefnadeildin hefði ekki rekist á yngri sprautunot- anda en 17 ára. Hann sagði hins vegar að það væri áhyggjuefni að yngri áhættuhópar stækkuðu, svo sem unglingar sem detta út úr námi. Má í því sambandi benda á nýlega úttekt menntamálaráðuneytisins sem sýnir að 60 til 100 börn úr hverj- um árgangi skila sér ekki þegar kemur að samræmdum prófum. Enginn virðist vita hvað um þau verður. Hátt í fimmtíu fíkniefnaneytend- ur hafa sýkst af smitandi lifrar- sjúkdómi síðan 1989. Sjúkdómur- inn hefur átt greiða leid inn í samfélag fíkni- efnaneytenda og má ætla að stór hluti þeirra sem teljast „harðir neytendur“ séu nú sýktir. Al- næmi berst eftir samskonar leið- um og benda smitsjúkdómasér- fræðingar á að þetta sé vísbend- ing um að al- næmi geti breiðst hratt út ef veiran á annað borð kemst inn í sam- félagið. Ekki verður séð að fíkniefnaneytend- ur hafi breytt hegðunarmynstri sínu mikið eftir að alnæmi og varnaðaráróður gegn því kom til sögunnar. Samanlagður fjöldi einstaklinga með alnæmisveiruna og lifrarbólgu --------------------- ^——ii ........................ Sigurður Már Jónsson ÍEnn þá sér ekki fyrir endann á baráttunni um borgarstjórastólinn. Alls óvíst er hvort kosið verður í borgarstjórnar- flokknum eða hvort Davíð Oddsson reynir að höggva á hnútinn með því að tilnefna eftirmann sinn eins og löngum hefur tíðkast á valdaferli sjálfstæðismanna. Árni Sigfússon er talinn eiga mest fylgi þeirra tuttugu sem tækju þátt í kosn- ingum, þ.e. meðal aðal- og vara- manna flokksins í borgarstjórn. Katrín Fjeldsted, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Magnús L. Sveinsson hafa ekki dregið sig út úr slagnum og því óvíst að takist að skapa einingu á þeim tíma sem enn er til stefnu, fram að mánaðamót- um. Þáttur Júlíusar Hafstein hef- ur vakið athygli, hann hefur þurft að gefa framavonir upp á bátinn en rær nú öllum árum að því að koma í veg fyrir kjör Árna .. . I ónefndum söngtexta segir „rússneskir dónar með rassaköst skeiða". Það skyldi þó ekki vera að þessi setning hafi hljómað í eyrum Akureyringa undanfarið. Sovéskt rækjuveiðiskip hefur legið þar við landfestar undanfarið og auk þess að kaupa bíla af heimamönnum hafa gengið sögur á milli manna á Akureyri um rán og rupl Rússanna. Lögreglan vill hins vegar gera lítið úr öllu saman og vísar til heima- manna sem að sögn hennar hafa gerst full djarftækir til eigna náung- ans mitt í allri sölumennskunni og má af því ráða að það heita góss sem Rússarnir sigla með út hafi þeir greitt fullu verði . . . Ivalavinurinn Magnús Skarphéðinsson er einn af for- svarsmönnum félags sem kallar sig Félag gangandi veg- farenda. Magnús er sagður ganga hart fram í hugsjónum fé- lagsins og fram- fylgja stefnu þess með því að klína gul- um miðum á bíla sem lagt er á gangstéttir á Grettis- götunni nálægt heimili hans. Heyrst hefur að sumir bifreiðaeigendur hafi tekið þetta óstinnt upp og hafi jafnvel komið til handalögmála ... BJ ■^Býlega var auglýst staða for- stöðumanns Stofnunar um náms- ráðgjöf við Háskóla íslands, sú staða er ný eftir breytingar á stjórnskipu- lagi skólajis. Um stöðuna sóttu tvær konur, Ásta Ragnarsdóttir og Guðríður Sigurðardóttir. Ásta er með B.A. próf, sem að hluta til er vegna náms í námsráðgjöf. Guðríð- ur er hins vegar með M.A. próf í námsráðgjöf frá Harvard-skóla. Ásta hefur unnið við námsráðgjöf í Háskólanum í 10 ár og Guðríður stundað rannsóknir og unnið við námsráðgjöf erlendis. Ut frá hrein- um faglegum sjónarmiðum stendur Guðríður framar. Háskólaráð ákvað hins vegar með 11 atkvæðum gegn 3 að ráða Ástu. Hið skrítna gerðist í málinu að um leið var samþykkt, án bókunar þó, að senda Ástu áminn- ingarbréf fyrir að gefa rangar upp- lýsingar um námsferil sinn í um- sókninni...

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.