Pressan - 13.06.1991, Qupperneq 22
22
FIMMTUDAGUR PRESSAN 13. JÚNÍ1991
Öfugsnúið
Bygging stœrsta gródur-
húss landsins, sem staösett er
á Egilsstödum, hefur ekki
gengid áfallalaust fyrir sig.
Sökkull undir hásinu uard til
þess ad önnur langhlid þess
seig og þegar búid var að
klœda húsid suokölluðum
polykarbónatplötum upp-
götvudu menn ad þœr sneru
allar öfugt. Hlidin á plötun-
um sem átti að snúa inn sneri
út.
Gróðurhúsið á Egilsstöðum
sem hér um ræðir er í eigu
Barra hf. og er heiiir 2000 m2
að stærð. Það er búið hinum
fullkomnustu tækjum, svo
sem sjálfvirkum vökvunar-
tækjum og áburðarblandara.
Bygging hússins gekk ekki
þrautalaust fyrir sig. Sökkull-
gróðurhús
inn undir annarri langhlið
þess seig og þar með hlið
hússins, en það tókst að ráða
bót á því. Þegar kom svo að
því að klæða húsið svokölluð-
um polykarbónatplötum
tókst ekki betur til en svo að
plöturnar sneru allar vitlaust.
Það varð því að rífa þær af
húsinu aftur og tókst að
koma þeim rétt á í annarri til-
raun.
Fyrstu sáningu í húsinu
lauk svo í síðasta mánuði.
Það voru lerkifræ sem fóru í
hvorki fleiri né færri 18.000
bakka og er búist við að upp
úr sáningunni komi ein millj-
ón plantna. Ekki hefur orðið
uppvíst um nein mistök við
sáninguna.
TENCSL
Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra hef-
ur verið forystumaður í bæj-
armálum í Garðabæ eins og
Agnar Friðriksson fram-
kvæmdastjóri sem verið
hefur framkvæmdastjóri
Arnarflugs eins og
Magnús Gunnarsson for-
stjóri SIF sem er sjómanns-
sonur eins og
Guðrún Helgadóttir al-
þingismaður sem var í hópi
stuðningsmanna Gervasonis
eins og
Tolli Morthens myndlistar-
maður sem sungið hefur inn
á hljómplötu eins og
Þorgeir Ástvaldsson út-
varpsmaður sem er landa-
fræðingur að mennt eins og
Sigfús Jónsson fyrrver-
andi bæjarstjóri sem einu
sinni bjó á Skagaströnd eins
og
Hallbjörn Hjartarson
söngvari sem stundað hefur
veitingarekstur eins og
Ragnar Tómasson lög-
fræðingur sem sem er mikill
hestamaður eins og
Sveinn R. Eyjólfsson útgef-
andi sem nam einu sinni
læknisfræði eins og
Ólafur Garðar Einarsson
menntamálaráðherra.
GREENPEACE VILL
MARKAÐSSETJA
GUÐMUND RÚNAR
„Pá vantaði Islending
sem þeir gœtu bent á sem
stuðningsmann við mál-
staðinn," sagði Guðmund-
ur Rúnar Lúðvíksson tón-
listarmaður við PRESS-
UNA um tilboð sem Green-
peace menn gerðu honum
meðan á Alþjóða hval-
veiðiráðstefnunni stóð.
Guðmundur segir að það
hafi komið til sín vel klædd-
ur maður á Fógetanum,
greinilega viðskiptamaður,
eftir að hann hafði verið að
spila þar eitt kvöldið. Mað-
urinn bað um að fá að tala
við hann og reyndist vera
David MacTaggart, stjórn-
arformaður Greenpeace
samtakanna.
,,Hann sagði að samtökin
vantaði einhvern til að
markaðssetja í Skandinav-
íu og bauð mér 2ja ára
samning," segir Guðmund-
■Tir Rúnar. „Greenpeace er
með fjölmarga þekkta tón-
listarmenn á sínum snær-
um, meðal annars Sting og
U2 og inni í þessum samn-
ingi var að ég kæmi fram á
tónleikum með einhverjum
þeirra og þá auðvitað sem
stuðningsmaður við mál-
staðinn."
Maðurinn gaf í skyn að
álitlegar fjárhæðir væru í
boði, þægi hann tilboðið,
en náði ekki það langt að
tölur væru nefndar, því
Guðmundur Rúnar sagðist
hafa gert manninum það
fljótlega ljóst, að hann væri
ekki ginkeyptur fyrir samn-
ingnum. „Ég afgreiddi
þetta þannig, að það væri
ekki minn lífsmáti að
standa í auglýsinga-
mennsku hvorki fyrir sjálf-
an mig né aðra, auk þess
sem ég er ekki sammála
öllu sem þeir eru að gera."
Kannski Guðmundur Rún-
ar hafi þarna misst af tæki-
færi til að verða heimsfræg-
ur á kostnað Green-
peace...
Auglýst eftir
fermingarbörnum
Siðmennt, félagáhugafólks
um borgaralegar athafnir,
œllar að byrja að auglýsa eft-
ir kandídötum til að ferma
nœsta vor strax í sumar og er
það nokkuð fyrr en áður hef-
ur verið gert. Þessi ákvörðun
er hluti afþeirri stefnu félags-
ins að reyna að fá fleiri ungl-
inga til að taka borgaralega
fermingu í stað kirkjulegrar.
Þriðja borgaralega ferm-
ingin á íslandi fór fram í Hafn-
arborg í Hafnarfirði í apríl og
voru fermd 16-börn að við-
stöddum 270 manns. Eins og
við kirkjulegar fermingarat-
hafnir voru haldnar ræður
með ráðleggingum sem eiga
að vera ungmennunum vega-
nesti út í lífið. Þær voru að
sjálfsögðu ekki fluttar af
prestum, heldurleikmönnum
og kom það í hlut þeirra Ara
Trausta Guðmundssonar
jarðfræðings og Þorgríms
Þráinssonar, eins vinsælasta
unglingabókahöfundar
landsins í dag, að leggja lifs-
reglurnar.
Borgaraleg fermingarat-
höfn er þó ekki eintómar
ræður. Við athöfnina í Hafn-
arfirði komu líka fram tónlist-
armenn, þar á meðal Kristín
Á. Ólafsdóttir og eitt foreldri
flutti frumsamin Ijóð.
Eins konar
vinsœldakönnun
SUNNUDAGSBLAÐ
TÍMANS TVÖFALT
VINSÆLLA EN PYR-
ANA RÁNFISKAR
/ síðustu viku voru árs-
gamlir Pyrana ránfiskar aug-
lýstir til sölu á tvö þúsund
krónur stykkið. Á sama tíma
voru boðnir til kaups margir
árgangar af sunnudagsblaði
Tímans á þrjú til fjögur þús-
und. Eftir heila helgi höfðu
tveir aðilar spurt um sunnu-
dagsblöðin, en aðeins einn
hafði sýnt áhuga á hinum ill-
rœmdu ránfiskum.
Pyrana fiskarnir eru heims-
kunnir. Þeir vekja ógn og
skelfingu í huga margra, sem
sjá fyrir sér torfu slíkra fiska
éta heila belju — eða mann-
eskju — á fáeinum sekúnd-
um. En almennt eru þeir þó
ekki taldir hættulegir nema í
stórum hópum og glorsoltnir,
einkum á þurrkatímum.
Hitt er annað mál að þeir
verða helst að vera eina teg-
undin í hverju búri ef vel á að
vera. Seljendur fiskanna, Sig-
urður B. Sigurðsson og Anna
Hansdóttir segja að þeir éti
aðra fiska. „Við reyndum, en
öðrum fiskum var öllum
komið fyrir kattarnef. Og
ekki nóg með það, við vorum
fyrst með fimm svona fiska,
en tveir voru drepnir af félög-
um sínum."
Anna segist ekki þora að
fara með hendurnar ofan í
búrið, en því þori Sigurður.
„Þeir láta mann í friði finni
þeir ekki blóðlykt."
Svala Guðnadóttir í Sel-
sundi, Rangárvöllum bauð
upp á 3 kassa af 12 til 13 ár-
göngum sunnudagsblaðs
Tímans, öllu meinlausari
vöru. „Það hafa tveir hringt
og ég gaf þeirn kost á að
bjóða í þetta. Ég er sjálf for-
fallinn bóka- og blaðasafnari,
en get ekki geymt þetta leng-
ur. Áhugasamir geta fengið
þetta á 3 til 4 þúsund," sagði
Svala.
KYNLÍF
Stórar stelpur
Stærð, áferð og lögun
kvenmannskroppa skipta
konur sjálfar miklu máli.
Karlmenn hafa ekki nærri
eins miklar áhyggjur af
búknum sínum. Enda eru
þeir miklu frekar uppteknir
af framanum og að vinna
eins og skepnur. Móðir
náttúra skaffaði þeim líka
minni líkamsfitu en konum
svo þeir hafa visst forskot
fram yfir konurnar sem
alltaf eru að reyna að ná af
sér þessari gjöf. Hormón í
líkama kvenna reyna m.a.
síðan að sjá til þess að kon-
ur hafni ekki gjöfinni.
Það er erfitt að vera feit-
ur í mjórri veröld. Meiri
hluti kvenna hér á landi
virðist ekki vera sáttur við
líkama sinn eins og hann
er. Mér er vel kunnugt um
þá staðreynd að mikil offita
sé hættuleg heilsunni en ég
er ekki að tala um þau fáu
tilfelli þar sem aukakílóin
skipta mörgum tugum
heldur allar þær konur sem
eru óánægðar út af nokkr-
um kílóum. Þegar ég hef
JONA
INGIBJORG
JÓNSDÓTTIR
haldið námskeið mín fyrir
konur er ég alltaf jafnhissa
þegar við spáum í líkams-
ímyndina hvað margar
þeirra eru óánægðar með
eitthvað á kroppnum á sér.
Einni finnst hún hafa of stór
læri þó enginn annar taki
eftir því.
Allt í uppvextinum stuðl-
ar að því að konur eru stöð-
ugt a(S hafa áhyggjur af litl-
um brjóstum, stórum Iær-
um, miklum maga, hrukk-
um, „appelsínuhúð" og
hárvexti á óæskilegum
stöðum. Sem litlar stelpur
erum við strax mótaðar út
frá kynímyndinni. Þegar
við erum fimm eða sex ára
fáum við kannski fyrsta
bikini settið en hvað hafa
litlar hnátur að gera með
brjóstahaldara? Brjóst
stelpna og stráka eru jafn-
stór fram að kynþroska.
Markmiðið með brjósta-
haldaranum fyrir fimm ára
er að kenna henni að taka
eftir mikilvægi brjóstanna.
Brjóst eru sexý. Kona
(stelpa) án brjóstahaldara
vekur blygðun annarra.
Miklu heilbrigðara uppeldi
sá ég hjá mömmu og
þriggja ára stelpuhnokka í
laugunum í gær. Stelpan sat
allsber á hækjum sér og var
niðursokkinn í tærnar á sér.
Eftir svolitla stund leit hún
upp og spurði mömmu
sína: „Er þetta þumaltás-
an?“ „Nei, þetta er stóratá-
in,“ sagði mamman. Stelp-
an var bara að kynnast lík-
amanum á eigin forsend-
um.
Fyrir sumar konur virðist
það vera full vinna að halda
sér nálægt æskilega „staðl-
inum" í útliti kvenna. Geysi-
mikil orka og fé fer í að
reyna alls kyns kúra sem
bara rugla efnaskiptajafn-
vægi líkamans svo að þú
verður enn feitari næst
þegar þú loksins gefst upp á
megruninni. Þessi megrun-
arvítahringur er að gera
konur feitari og feitari. Nei,
ég skrifaði þetta ekki vit-
laust. Þó þetta hljómi
skringilega virðist ýmislegt
benda til þes að svo sé
raunin. Ef þú færð lítið að
borða bregst líkaminn við
með því að minnka efna-
skiptahraðann. Því minna
sem fólk í megrun borðar,
því lengur er líkaminn að
brenna kaloríunum og því
lengur er fólk að léttast.
Þetta er m.a. ástæðan fyrir
því að „megrun" virðist
ganga vel í fyrstu en svo
verður erfiðara og erfiðara
að léttast. Þegar manneskj-
an hættir svo í megrun er
hún enga stund að þyngjast
aftur því efnaskiptin eru
hálf slöpp eftir megrunina!
Til að viðhalda árangri svo-
kallaðra „megrana" máttu
bara rétt kroppa í mat eða
vera í stífri líkamsþjálfun
svo árangurinn sé ekki
fljótlega fyrir bí. Til að
. . . konur eru
stöðugt að hafa
áhyggjur af litlum
brjóstum, stórum
lærum, miklum
maga, hrukkum,
„appelsínuhúð“
og hárvexti á
óæskilegum
stöðum
losna við marga tugi auka-
kílóa dugir ekkert minna
en breyttur lífsstíll. Þú verð-
ur að borða fjölbreyttan
mat, hætta megrunarkúr-
um, hreyfa þig meira og
öðlast meiri næmni á til-
finningalífið svo þú borðir
til að lifa en ekki öfugt.
Misheppnuð megrun er
bara ein afleiðing útlits-
dýrkunar hjá konum. Því
meira bil sem er á milli lík-
ama konu og staðallíkam-
ans því óánægðari er kon-
an með sjálfa sig í alla staði.
Hún á erfiðara með að örv-
ast kynferðislega, hún þor-
ir síður að trana sér fram í
vinnu (af því hún telur sig
ekki hafa rétta útlitið), hún
gerir lítið úr hæfileikum
sínum, hún á það á hættu
að einangra sig félagslega
og svona mætti lengi telja.
Það er ekki að undra þótt
útlitsdýrkun ákveðinnar
líkamsímyndar sé kallaður
„félagslegur áverki".
Konum er ætlað að vera
mjúkar og eilítið frjálslegar
í vexti ef móðir náttúra fær
að hafa sinn gang. En eins
og endranær þegar við,
hrokafulla mannfólkið, ætl-
um að taka fram í fyrir
henni, þá fer venjulega illa.
Spyrjió Jónu um kynlífiö. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík