Pressan - 13.06.1991, Page 25
✓
Eg hugsa að Andrés haldi
bara áfram sínu rölti
— segir Magnea J. Matthíasdóttir sem skrifar sögur fyrir Andrés önd
svo mikið barn í mér. Þeir sáu
á umsókninni að ég hafði
reynslu af ritstörfum, buðu
mér þetta og ég sló til og próf-
aði.“
Islensk kona, búsett í Kaup-
mannahöfn og í hlutastarfi í
Bandaríkjunum:
,,Þetta er mögulegt á tölvu-
öld. Núna er hægt að búa í
einu landi en vinna í öðru.
Mig langaði til að breyta til og
ég á svo skemmtilegar minn-
ingar frá Kaupmannahöfn en
ég var hér í námi um tveggja
ára skeið skömmu eftir 1970.
Þetta var yndislegur tími og
síðan þá hefur mér þótt mjög
vænt um borgina. Það hefur
náttúrlega ýmislegt breyst en
Danir kunna blessunarlega
ennþá að „hygge sig“.“
Nú er mjög langt stdan þú
sendir sídast frá þér skúld-
sögu. Ertu svona önnum kaf-
in viö braudstritid?
„Það er náttúrlega gamla
peningagræðgin og þegar
henni sleppir á ég síðan fjöl-
skyldu sem mér finnst ekki
verra að verja einhverjum
tíma með. Það væri að mörgu
leyti þægilegra upp á ritstörf-
in að gera að vinna við eitt-
hvað gerólíkt, en ekki þýð-
ingar, skriftir og þennan próf-
arkalestur sem ég hef nú ver-
ið viðloðandi. Eg er með
skáldsögu í smíðum núna auk
þess sem ég er að þýða aðra.
Það liggur einnig eftir mig
barnasagan Ævintýri um ag-
úrkuprinsesssu uppi í útvarpi
sem verður væntanlega lesin
þar. Sú saga er nú löngu til
komin en þegar ég stóð í
flutningunum kom ýmislegt
upp á yfirborðið."
Hvaö segiröu aö lokum?
„Að lokum vil ég biðja guð
að blessa land og þjóð og
þakka henni það traust og
þann stuðning sem hún hefur
veitt mér á liðnum árum.
Þetta er svona frasi frá þvi ég
var barn,“ sagði Magnea
hressilega.
„Eg hugsa aö Andrés haldi
bara áfram á sama gamla
röltinu," sagöi Magnea J.
Matthíasdóttir rithöfundur
en hún vinnur núna í hluta-
starfi viö aö skrifa sögur fyrir
bandaríska fyrirtœkiö Disn-
ey. Magnea sem er búsett í
Kaupmannahöfn þýöir auk
þess teiknimyndir fyrir Stöö
tvö.
„Þetta eru svo staðlaðar
fígúrur og svo gríðarlega
margir höfundar sem skrifa
fyrir þær sögur að það eru
takmörk fyrir hvað maður
getur leyft sér,“ sagði Magnea
er Listapósturinn hringdi til
Kaupmannahafnar og spurði
hvort Andrés myndi lenda í
einhverjum nýstárlegum
svaðilförum undir hand-
leiðslu hennar. „Ég læt hann
kannski skreppa til íslands,"
sagði hún eftir nokkra um-
hugsun.
En hvernig vildi þaö til aö
þú fórst aö skrifa fyrir Andrés
önd?
„Ég leitaði til þeirra varð-
andi hlutastarf sem var aug-
lýst hérna í Kaupmannahöfn.
En ég hef töluverða reynslu
af því að þýða teiknimyndir.
Ég hef auk þess mjög gaman
af teiknimyndum enda er ég
Big band
tónleikar
Sinfóníunnar
og framhalds-
sveifla á
Púlsinum
Matthías með nýtt
sjónvarpsleikrit
Sjóarinn, spákonan,
blómasalinn, skóarinn, mál-
arinn og Sveinn nefnist nýtt
sjónvarpsleikrit eftir Matthías
Jöhannéssen. Tökur standa
nú yfir en verkið verður
væntanlega á skjánum á
hausti komanda. Með aðal-
hlutverk fara Róbert Arn-
finnsson, Bríet Héðinsdóttir,
Gísli Halldórsson, Rúrik Har-
aldsson, Eyvindur Erlends-
son, og Valdimar Örn Flygen-
ring. Verkið sem Hilmar
Oddsson leikstýrir segir frá
hversdagslegri tilveru nokk-
urra utangarðsmanna og
brostnum vonum. Sýndur er
sólarhringur úr lífi þeirra
jafnhliða því að brugðið er
upp svipmyndum úr fortið-
inni. Á þessum sólarhring
verða umskipti í lífi þeirra
allra.
Geisladiskur frá
Tómasi R. Einarssyni
I kvöld veröa Big band tón-
leikar Sinfóníunnar í Há-
skólabíói undir stjórn hins
frœga kontrabassaleikara
Johns Clayton en hann er
ekki síst kunnur fyrir aöild
sína aö stórhljómsveitinni
Count Basie.
Á efnisskránni verður með-
al annars nýtt verk eftir Stef-
án Ingólfsson í útsetningu
Szymons Kuran og Jazzmars
hins síðarnefnda þar sem
saxófónleikarinn Jeff Clayton
leikur einleik, auk verka eftir
Mancini.
Æstum sveifluaðdáendum
gefst síðan kostur á framhaldi
skemmtana þetta kvöld því
eftir að tónleikum í Háskóla-
bíói lýkur munu eftirfarandi
tónlistarmenn leika. Þeir Sig-
Sigurður
Szymon
urður Flosason altsaxófón-
leikari, Þórður Högnason
kontrabassaleikari, Kjartan
Valdemarsson píanóleikari
og Marten van der Valk á
trommur. Sérstakir boðsgest-
ir kvöldsins verða fiðluleikar-
inn Szymon Kuran, John
Clayton og meðlimir Sinfón-
íuhljómsveitarinnar.
Nýlega kom út nýr geisla-
diskur og kassetta með nýrri
tónlist eftir' kontrabassaleik-
arann og tónskáldið Tómas R
Einarson. Geisladiskurinn
dregur nafn sitt af kvæðinu
„Journey to lceland" eftir Wh
Auden sem birtist í ferðabók
skáldsins og Louis Mc Neice.
Tveir gestaleikarar komu er-
lendis frá til að leika með á
geisladisknum. Það eru bás-
únu- og flygilhornleikarinn
Frank Lacy sem leikið hefur
meðal annars með stórsveit-
um Dizzy Gillespie. Auk hans
kom frá Svíþjóð einn þekkt-
asti djassleikari sem ísland
hefur alið þ.e. Pétur Östlund
sem leikið hefur með fjölda
þekktra erlendra djassbanda.
Auk þess leika með Tómasi
þau Ellen Kristjánsdóttir
söngkona, Sigurður Flosa-
son.og Eyþór Gunnarsson.