Pressan - 20.06.1991, Page 7

Pressan - 20.06.1991, Page 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. JÚNl' 1991 7 Barátta sjálfstæðismanna um borgarstjórastólinn var komin í hnút þegar óvænt tillaga Davíðs um Markús Örn sameinaði stríðandi arma Markús Örn Antonsson: Úr Efstaleit- inu og aftur i pólitikina. MARKUSARNETI mn SÁTTAFUNDUR í STJÓRNARRÁÐINU Á sunnudaginn hittust Árni Sig- fússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms- son. Þeir stóðu mjög jafnt að vígi innan borgarstjórnarflokksins, báð- ir töldu sig hafa níu nokkuð trygg at- kvæði. Afstaða Davíðs og Katrínar Fjeldsted var óviss. Vilhjálmsmenn töldu að Magnús L. Sveinsson, for- seti borgarstjórnar, væri á þeirra bandi en það mun aldrei hafa legið fyrir. Síðar um daginn gengu Árni og Vilhjálmur á fund Davíðs í stjórnar- ráðinu. Magnús L. Sveinsson og Katrín voru einnig á fundinum. Þar var meðal annars rædd sú lausn að Árni og Vilhjálmur skiptu með sér starfi borgarstjóra og formennsku í borgarráði. Löng hefð er fyrir því að borgarstjóri sé jafnframt formaður borgarráðs. Þessi lausn fól í sér að Árni Sigfússon hefði orðið borgar- stjóri og Vilhjálmur mun ekki hafa verið hugmyndinni fráhverfur í fyrstu. Eftir að fundinum lauk kom hins vegar á daginn að hann gat ekki sætt sig við þessa niðurstöðu. ANDSTAÐAN VIÐ ÁRNA Samkvæmt heimildum PRESS- UNNAR var þrýst á Vilhjálm af hálfu stuðningsmanna að gefa ekki eftir borgarstjórastólinn. Hörðustu stuðningsmenn Vilhjálms í þessari baráttu voru Júlíus Hafstein og Anna K. Jónsdóttir. ,,Það sem fyrst og fremst vakir fyrir andstæðingum Árna er að koma í veg fyrir að hann verði borgarstjóri," sagði einn úr 20 manna borgarstjórnarflokki sjálf- stæðismanna fyrr í vikunni. „Júlíus og Anna K. eru ekki að berjast sér- Árni Sigfússon: Naut mests fylgis af borgarfulltrúunum en þaðdugði ekki til. staklega í þágu Vilhjálms. Ef hann linast munu þau einfaldlega styðja einhvern annan." Þegar Vilhjálmur hafnaði þeim hugmyndum sem fram komu um helgina var ljóst að enginn af borg- arfulltrúunum ætti nægjanlegan stuðning innan borgarstjórnar- flokksins. Upp á síðkastið hefur Katrín Fjeldsted rekið áróður fyrir sjálfri sér sem málamiðlun. Hún átti þó aldrei raunhæfa möguleika á borgarstjórastólnum og vakti gremju, bæði hjá stuðningsmönn- um Árna og Vilhjálms, fyrir að ljá ekki máls á öðrum en sjálfri sér. „Eini borgarstjórinn sem hún gat hugsað sér var Katrín Fjeldsted,“ sagði einn úr borgarstjórnarflokkn- um. LEYNIGESTURINN Umræður um utanaðkomandi borgarstjóra fóru af stað strax og ljóst var að einhugur ríkti ekki í borgarstjórnarflokknum. Sjálfur sagði Davíð þegar fyrir lá að hann hætti sem borgarstjón að hann hefði ákveðinn mann í huga sem arftaka. Hann sagði ekki hvort sá maður væri innan borgarstjórnar eða utan en víst má telja að Markús Örn hafi ekki verið í huga Dávíðs á þeirri stundu. Nafn Ólafs B. Thors var ítrekað nefnt; hann er fyrrver- andi forseti borgarstjórnar og nýtur virðingar innan Sjálfstæðisfiokks- ins. Ólafur þvertók aldrei fyrir að hann gæti hugsað sér að taka við borgarstjórastarfinu en engar alvar- legar viðræður áttu sér stað milli hans og Davíðs. Kjartan Gunnars- son, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, er gamall samherji og stuðningsmaður Davíðs Oddssonar og ýmsir bjuggust við að hann hlyti hnossið. Innan borgarstjórnar- flokksins hefði hins vegar aldrei náðst samstaða um Kjartan. MIKIL VÖLD í HÚFI Það var mikið í húfi fyrir Davíð að skapa einingu um eftirmann sinn. Síðustu vikur hafa leitt í ljós að tök hans á borgarstjórnarflokknum voru farin að veikjast, auk þess sem borgarstjóraslagurinn varð æ vand- ræðalegri eftir því sem lengra leið. Á sama tíma þurfti Davíð að glíma við þingflokk sjálfstæðismanna sem reyndist honum óþægur ljár í þúfu fyrstu vikurnar eftir kosningar. Það hefði tæplega verið hægt að skapa einingu um nokkurn annan mann en Markús Örn Antonsson. Hann sat 15 ár í borgarstjórn, á ár- unum 1970—85, þar af 12 ár í borg- arráði og var um skeið forseti borg- arstjórnar. Þegar Davíð Oddsson náði fyrsta sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna fy rir borgarstjó rnarkosningarnar 1982 varð Markús Örn í öðru sæti og Albert Guömundsson í þriðja en litlu munaði á þessum þremur. Borgarstjórar sjálfstæðismanna í Reykjavík hafa alltaf verið áhrifa- miklir: Jón Þorláksson, Bjarni Bene- diktsson, Gunnar Thoroddsen, Geir Hallgrimsson, Audur Auduns, Birgir. Isleifur Gunnarsson og Davtd Odds- son. Allir borgarstjórar flokksins hafa einnig orðið ráðherrar, þar af fimm forsætisráðherrar. Það eru þess vegna mikil völd og áhrif í húfi. „HLÝTUR AÐ VERÐA PÓLITÍSKUR LEIÐTOGI OKKAR“ Markús Örn Antonsson brýtur upp ímynd hins unga og röska borg- arstjóra. Þegar Davíð Oddsson háði baráttu sína fyrir fyrsta sætinu fyrir kosningarnar 1982 var meginstefið að sjálfstæðismenn hefðu jafnan haft þor og kjark til að velja ungan borgarstjóra. Markús er 48 ára gam- all, fimm árum eldri en fráfarandi borgarstjóri. í samtölum PRESSUNNAR við borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í gærkvöldi kom fram ákveðinn léttir yfir því að málið væri til lykta leitt. Og það var almennur skilningur þeirra að Markús Örn væri kominn í stjórnmálin aftur af fullum krafti en ekki sem afleysingaborgarstjóri næstu þrjú árin. „Hann hlýtur að verða pólitískur leiðtogi okkar í næstu kosningum. Það er eðlilegt að gera þá kröfu til hans,“ sagði einn úr hópnum. „Maður sem náði jafn glæsilegum árangri í prófkjörum og raun ber vitni hlýtur að koma af fullum krafti," sagði Sveinn Andri Sveins- son borgarfulltrúi. Árni Sigfússon kvaðst sætta sig við niðurstöðuna. „Þetta eru leik- reglurnar í stjórnmálum og ég virði leikreglur. Borgarstjórnarflokkur- inn ákvað þetta eftir tillögu borgar- stjóra. Við Vilhjálmur lýstum báðir yfir stuðningi við Markús og ég mun standa við bakið á honum." ARFTAKI MARKÚSAR Vangaveltur um eftirmann Mark- úsar Arnar eru þegar hafnar og ljóst að sjálfstæðismenn hafa í hendi sér hver verður næsti útvarpsstjóri. Einn af samherjum Davíðs sagði í gær að þar kæmi Kjartan Gunnars- son helst til álita. Kjartan er fyrrver- andi formaður útvarpsréttarnefnd- ar og hljóti hann hnossið hefur Dav- íð að fullu goldið honum stuðning- inn. Þá er nafn Jónu Gróu Sigurdar- dóttur, formanns útvarpsráðs, einn- ig nefnt, en hún er helsti talsmaður þess að Rás 2 verði lögð niður. Af innanbúðarmönnum kemur Bogi Ágústsson, fréttastjóri Sjónvarpsins, helst til álita enda er hann vel þókn- anlegur forystumönnum Sjálfstæð- isflokksins. Á næstunni verða áreið- anlega fleiri nefndir til sögunnar — ‘en fullvíst má telja að Davíð Odds- son, fyrrverandi borgarstjóri, hafi „einhvern í huga“ sem útvarps- stjóra. Hrafn Jökulsson Þegar Davíð Oddsson bar fram tillögu á fundi borgar- stjórnarflokks sjálfstæðismanna í gær um Markús Orn Antonsson sem næsta borgarstjóra kom það öllum jafn mikið á óvart. Jafnvel keppinautarnir Árni Sigfússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson vissu ekki hvað til stóð. Davíð bar fram tillöguna þegar ljóst var að fylkingar Árna og Vilhjálms voru jafnstórar og hvorugur myndi gefa sig. Þannig hjó Davíð á hnútinn óleysanlega. Markús er ekki umdeildur maður og er líklegur til þess að skapa einingu innan borgarstjórnarflokksins. Einungis tíminn getur hins vegar skorið úr um það hvort valdabarátta einstakl- inga innan borgarstjórnarflokksins skilur eftir sig sár. Þrir borgarstjórakandídatar í dyragættinni: Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Katrin Fjeldsted og Magnús L. Sveinsson.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.