Pressan - 20.06.1991, Síða 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. JÚNl' 1991
19
D
■ métt fyrir helgina réð Friðrik
Sophussson sér aðstoðarmann.
Það var Steingrímur Ari Arason,
sem verið hefur hag-
fræðingur skrifstofu
viðskiptalífsins.
Friðrik mun ætla að
láta sér þetta nægja.
Steingrímur mun
því þurfa að vera
þriggja manna maki
því hann á að gegna störfum þriggja
aðstoðarmanna Ólafs Ragnars
Grímssonar, þeirra Más Guð-
mundssonar, Marðar Árnasonar
og Svanfríðar Jónasdóttur . . .
A
^^^ður en rikisstjórnin tilkynnti
formlega að ekki yrði um neinar
björgunaraðgerðir að ræða af henn-
ar hálfu gagnvart Álafossi fréttist af
fundi á Akureyri þar sem saman
voru komnir forsvarsmenn ullarfyr-
irtækisins Árbliks og bæjarstjórnar-
innar ásamt fulltrúa Byggðastofn-
unar á Akureyri. Meðal starfsmanna
Álafoss, sem enn trúðu á kraftaverk,
heyrðust raddir um ótímabæra jarð-
arför og toppurinn af smekkleys-
unni væri þátttaka Byggðastofnun-
ar í fundinum. Aðrir þykjast hins
vegar sjá vonarglætu í hugsanlegri
yfirtöku Árbliks sem hefur stórauk-
ið umsvif sín á örfáum árum, keypti
meðal annars nýverið starfsemi
Hildu hf. í Bandaríkjunum^ sem
komin var í þrot. Bent er á að Ágúst
Þór Eiríksson framkvæmdastjóri
fyrirtækisins hafi látið hafa eftir sér,
að æskilegt væri að hægt yrði að
halda bandframleiðslu áfram hér á
landi. Mitt í svartnættinu hljóta það
að vera ágætis tíðindi fyrir starfs-
menn Álafoss . . .
Sólarplast
oournus
kála
t i i i i—i
i i i i i i i i n
ífLÚ"
Jæ
Háborq hf.
Tvöfalt ACRYL Sólarplast hefur
mikiö veörunarþol og hleypir í
gegn sólargeislum. •
Þrefalt SUNFLEX Sólarplast verndar
gegn skaölegum áhrifum sólar,
er óbrjótanlegt og eldþolið.
Sólarplastiö gefur betri einangrun
en tvöfalt gler og er mikið sterkara.
Bjóöum vandaða állista sem tryggja
góöan frágang og endingu.
Veitum upplýsingar um frágang og
uppsetningu.
Skútuvogi 4, S. 82140 & 687898, Fax 680380
NÚ FLOKKUM
VIÐ ÚRGANGINN
/sumarbyrjun tók SORPA, fullkomin flokk-
unar- og móttökustöö úrgangs, til starfa.
Til þess að stöðin geti gegnt hlutverki sínu er
nauðsynlegt að allir temji sér nýjar venjur í
umgengni við sorp og flokki heimilissorp og
úrgang frá atvinnuhúsnæði eftir settum reglum.
ÞETTA FER Á GÁMASTÖÐVAR
EN ALLS EKKl í SORPTUNNUNA:
• Málmhlutir
• Grjót og steinefni (smærri farmar, stærri farmar fara
á “tippa”)
• Spilliefni hvers konar (þau má einnig afhenda í efna-
móttöku og á öðrum viðurkenndum stöðum s.s. lyf hjá
apótekum og rafhlöður á bensínstöðvar)
ÞETTA MÁ AFHENDA Á GÁMASTÖÐVUM
EN ER ÓÆSKILEGT í SORPTUNNUNA:
• Prentpappír
• Garöaúrgangur sem ekki er notaður í heimagarði
• Timbur (smærri farmar)
V ið höfum skyldum að gegna gagnvart lífríkinu
og komandi kynslóðum.
• Sýnum ábyrgð á umhverfinu í verki
- notum gámastöðvarnar
SVEITARFÉLÖGIN Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
RFA
SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs.
Gufunesi, 112 Reykjavík, sími 676677