Pressan


Pressan - 20.06.1991, Qupperneq 24

Pressan - 20.06.1991, Qupperneq 24
24 FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. JÚNÍ 1991 3{í)jnr ídlcndíinr {tjóÖSögut Eitt sinn er ungur blaöa- maöur var að hefja störf á Morgunblaðinu fékk hann þaö verkefni aö hringja í þekktan augnlaekni i borg- inni til þess aö fá skoðun hans á nýrri tækni viö augnlækningar. Frétt þessa efnis haföi borist á erlendu fréttaskeyti og haföi rit- stjóri Morgunblaðsins mik- inn áhuga á að fá staðfest- ingu frá einum helsta sér- fræöingi innanlands. % I/ Ungi blaöamaöurinn vildi inna sitt starf sam- viskusamlega af hendi og byrjaöi á því aö leita lækn- inn uppi í símaskránni. Hann haföi ekki rennt putt- anum lengi niöur skrána þegar hann fann rétta nafn- iö og hringdi hiö snarasta og spurði mjög almennra spurninga eins og leik- manni er lagiö. Læknirinn svaraði spurn- ingum blaöamannsins bæöi vel og aö því er virtist ígrundað. Kvað hann þetta góöar fréttir fyrir alla þá sem ættu viö augnsjúk- dóma aö stríða. Blaöamaöurinn var ánægöur meö sitt starf og skilaði fréttinni fullfrágeng- inni og án þess aö yfirmenn hans geröu nokkrar at- hugasemdir. Morguninn eftir hringdi hins vegar augnlæknirinn og haföi alvarlegar athuga- semdir fram aö færa. Hann sagðist jú geta fallist á um- mælin í öllum meginatriö- um, hins vegar væri gallinn sá, aö þau væru ekki höfö eftir honum heldur alnafna hans vestur í bæ. Mogginn sem er vandur að virðingu sinni varö auð- vitaö aö leiörétta fréttina daginn eftir, en gat þó meö sanni sagt aö hún væri rétt í öllum aöalatriðum. (Úr blaðamannasogum) Sagan segir frá öðrum ungum blaöamanni sem var aö hefja störf á erlend- um fréttum á Morgunblað- inu. Yfirmenn hans lögðu ríka áherslu á aö fréttirnar væru forvitnilegar og skilj- anlegar, þannig aö hinir al- mennu lesendur geröust forvitnir um erlend málefni. Þetta hafði ungi blaða- maðurinn efst í huga þegar hann gekk frá frétt um mik- inn harmleik á Zam- besi-fljóti í Afríku, þar sem á þriöja hundrað hermenn létu lífiö þegarferju hvolfdi. Hér ber þess að geta aö í Zambesi-fljóti er krökkt af krókódílum. Ungi blaömaöurinn birti fréttina á forsíðu undir fyr- irsögninni: KÁTIR KRÓKÓ- DÍLAR í ZAMBESI (Úr blaöamannasögum) FJÖRUTÍU ÁRA SÓLBAO Hann hefur skrád nafn sitt á spjöld íslandssögunnar sem einn frœknasti frjáls- íþróttamadur okkar. Hann vann ágœt afrek á stnum tíma en frœgastur hefur hann kannski ordid fyrir það að geta í raun aldrei hœtt. — Og enn er hann að og þar að auki alltaf í sólbaði. Valbjörn Þorláksson fartn nefnilega upp sólbaðið á íslandi og það án þess að hafa heyrt um Coco Chanel sem kenndi Par- ísarbúum gildi sólbrúnkunn- ar fyrr á öldinni. „Eg byrjaði að stunda sól- böð í kringum 1950 þegar ég flutti til Reykjavíkur. Reyndar hafði ég stundað sólböð í heimabæ mínum Siglufirði en þar var þetta stundað svo- lítið af þorpsbúum," sagði Valbjörn sem nú gegnir starfi vallarvarðar á íþróttavelii í Laugardalnum. Völlurinn er að sjálfsögðu kenndur við hann og heitir Valbjarnar- völlur. Valbjörn sagði að það hefði vissulega vakið athygli á sín- um tíma þegar hann lá í sól- baði. „Mönnum fannst þetta vissulega einkennilegt að maður skyldi liggja svona í sóibaði. Mér fannst þetta hins vegar frískandi og þægilegt. Þetta hefur tvímælalaust haft bætandi áhrif á líkama rninn." Valbjörn vill ekki gera mikið úr því aðkasti sem hann varð fyrir þegar hann hóf sólböð. „Þetta kom frekar út eins og öfund og menn höfðu á orði að ég væri bara Frísklegur frjálsíþróttamaður á 54. aldursári — Valbjörn Þor- láksson upphafsmaður sól- baða á íslandi. að þessu til að sýna mig. Jú, jú auðvitað fékk ég margs- konar pillur fyrir þetta en það fór nú stundum saman við það sem ég fékk að heyra út af íþróttunum. Sumir höfðu á orði að þetta sýndi bara að ég nennti ekkert að vinna og hefði því tíma til að liggja í sólbaði alla daga. Það vildi hins vegar svo til að ég var að vinna í Sundhöll Reykjavíkur og hafði því ágæta aðstöðu til sólbaða." Valbjörn hefur ekki látið sér nægja að liggja í sólbaði hér heima á íslandi enda veð- urfarið þannig að tæpast er á það treystandi. Hann sagðist hafa farið nokkrum sinnum á sólarstrendur og þá helst til Kanaríeyja á veturna — það væri líka ágætis aðferð til að stytta skammdegið. Sólar- lampar eru hins vegar ekki ofarlega á vinsældalistanum þó hann játaði að hafa nokkrum sinnum prófað þá. — En nú tala allir um óhollustu sólbaða og skelf- ingar húðkrabbameins. Vek- ur það ekki óhug hjá manni sem hefur stundað skipuleg sólböð í 40 ár? „Nei, nei. Þetta eru nú svo fáir dagar sem við íslending- ar fáum að þeir eiga ekki að skipta máli. Ég hef ekki séð neina breytingu hjá mér og ef eitthvað er þá er húðin bara betri. Ég hressist yfirleitt af því að fara í sólbað. Mér finnst yfirleitt að fólk sem er brúnt sé ánægðara með sjálft sig og óþvingaðara í framkomu þannig að ég held að það sé yfirleitt til bóta." — En eykur þetta kvenhyll- ina? „Ég veit það ekki, ég þarf svo sem ekki að kvarta. Hef- ur það ekki alltaf áhrif ef menn eru frísklegir?" SJÚKDÓMAR OG FÓLK Saga sýklalyfja og notkun Islendinga Nýr heilbrigðisráðherra breytti reglugerð um lyfja- verð nú á liðnum dögum. Meðal þeirra lyfja sem hækkuðu verulega í verði voru fúkkalyf eða sýklalyf. Margir hafa orðið til að reka upp mikið ramakvein vegna þessa. „Arás á barnafjöl- skyldur," segja sumir, „gott mál," segja aðrir, „íslending- ar nota allt of mikið af þess- um lyfjum." En hvaða lyf eru þetta sem um er deilt? Sýkla- lyf eiga sér ekki langa sögu í læknisfræðinni. Þekktust eru penisillinlyfin og ýmis afbrigði þeirra. Skoski lækn- irinn og bakteríufræðingur- inn Alexendar Fleming kom mjög við sögu þegar þessi lyf voru uppgötvuð. Á árum fyrri heimsstyrjaldar- innar starfaði Fleming á her- sjúkrahúsi í Frakklandi og uppgötvaði þá hversu ógn- vænleg sár hermanna gátu verið. Sprengikúlur voru notaðar í mun ríkara mæli en áður svo að limir og hold hermanna tættust í sundur og hlutust af ljót, opin sár. Á vígvellinum smituðust menn umvörpum af stíf- krampabakteríu og gas- brandsbakteríu sem leiddi til blóðeitrunar og dauða inn- an fárra daga. Gegn þessum sýkingum virtist ekkert duga. Fleming hóf að stríð- inu loknu að leita að ein- hverju efni sem sprauta mætti í blóðrás sjúklingsins og lækna bakteríusýkingu sem var að ríða honum að fullu. Árið 1928 var Fleming að störfum í sýklafræðinni og skoðaði gamlar bakteríu- ræktanir. í nokkrum skálum var myglugróður sem óx yfir næringarhlaup bakterí- anna. Hann veitti því eftir- tekt að myglan virtist hafa drepið sýklana í skálinni. Þessi sveppur kallaðist pen- isillium notatum og dregur penisillínið nafn sitt af hon- um. Á næstu árum hélt Fleming áfram að rannsaka penisillín en honum gekk illa að komast að því hvert væri hið virka efni í mygl- unni. Tveir menn þeir How- ard Florey og Ernst Chain urðu öðrurti fremur til þess að vinna hreint penisillín og í febrúar 1941 var það í fyrsta skipti reynt til lækn- inga. Sjúklingurinn var breskur lögreglumaður með alvarlega sýkingu. Hann dó en næstu sjúklingar sem fengu lyfið nutu góðs af lækningamætti þess. Banda- ríkjamenn tóku penisillín- rannsóknir upp á sína arma og þeim tókst að framleiða penesillín-svepjri á hliðaraf- urð úr maís. Arið 1943 var farið að framleiða efnið í svo ríkum mæli að herir banda- manna fengu af því umtals- verðar birgðir. Menn komust að raun um að efnið virkaði vel á ýmsar bakteríur en hafði engin áhrif á veirur. NOTKUN PENISILLÍNS Á ÍSLANDI Árið 1943 var íslensk stúlka með heilahimnu- bólgu meðhöndluð með penisillíni á bandarískum herspítala við Hehjafell í Mosfellssveit. Islenskir læknar höfðu þá ekki að- gang að efninu en upp úr 1945 var nóg af því. Notkun sýklalyfja hefur aukist mjög síðan, enda hafa bæst í hóp- inn margs konar penisillínaf- brigði sem nota má þegar penisillín dugir ekki. ísiensk- ir læknar hafa verið iðnastir allra norrænna lækna að ávísa sýklalyfjum til sjúkl- inga sinna. Samkvæmt nor- rænu lyfjanefndinni eru Sví- ar aðeins hálfdrættingar á við okkur í sýklalyfjanotkun og auk þess nota þeir mun ódýrari lyf. Ástæður þessa eru einkum taldar vera þær að íslenskur almenningur sækir mjög í sýklalyf enda er sú trú landlæg að alls kyns kvefpestir læknist með sterkum hylkjum. Fólk vill stytta veikindi sín og forðast þannig vinnutap. Margir læknar láta þetta eftir fólki og skrifa gagnrýnislaust út lyfseðil á þau lyf sem fólk biður um. Flestir sem um þessi mál hafa fjallað telja að íslendingar geti minnkað sýklalyfjaneyslu sína niður í þriðjung af því sem hún er núna án nokkurs skaða fyrir sjúklinga. Æ fleiri efast um þörf sýklalyfja í loftvegasýk- ingum og jafnvel eyrnabólg- um. íslendingar eru líka latir við að taka lyfin sín nema í örfáa daga svo að mikið af því penisillíni sem læknar ávísa á sjúklinga sína dagar uppi í skápum út um allt land. Vonandi verður þessi verðbreyting til að draga úr notkun þessara lyfja hér- lendis en auðvitað væri það heilladrýgra að læknar sjálf- ir tækju af skarið og minnk- uðu sýklalyfjanotkun fólks.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.