Pressan - 20.06.1991, Síða 26

Pressan - 20.06.1991, Síða 26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. JÚNl' 1991 LP LISTAPÓSTURINN Eiturlausir tónleikar Þad vakti óánægju margra að þungarokks- hljómsveitin Poison skyldi ekki koma fram á tónleikunum í Kaplakrika síðastliðinn föstudag. Ekki síst þar sem tónleik- arnir voru aðallega aug- lýstir í nafni hennar. Það er reyndar með ólíkind- um að áhorfendur hafi ekki fengið krónu endur- greidda því að það er öll- um ljóst að hljómsveitir á borð við þessa tryggja sig fyrir svimandi háar upp- hæðir þegar um tónleika- hald er að ræða. Áhorf- endur sem í þessu tilfelli voru að stærstum hluta unglingar borga drjúga prósentu af sumarkaup- inu sínu inn á tónleikana og eru síðan réttlausir þegar maðkur reynist í mysunni. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fram- kvæmdastjóri umræddra tónleika gerir sjálfan sig tortryggilegan með þessu móti og vonandi að ekki verði framhald á. Útitón- leikar eru með skemmti- legasta móti þegar veðrið leikur við landsmenn líkt og núna og óþarfi að svona skugga beri á. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Oþol Normu Norma E. Samúelsdóttir hefur nýlega sent frá sér bók- ina Óþol, sem mun vera hennar fimmta bók. Bókin ber’ undirtitilinn Bók fyrir húsmæður sem vilja vera skáld eða þá sem hafa áhuga á svoleiðis fólki. Bókin sem er útgefin af höfundi mun verða seld í versluninni Eymunds- son, Bókaverslun Máls og menningar og hjá höfundi. Norma hefur áður sent frá sér bækurnar Næstsíðasti dagur ársins, Tréð fyrir utan glugg- ann minn, Marblettir í öllum regnbogans litum og Gangan langa. ,,Ég hef mjög lítiö fengist vid að skrifa og aldrei að neinu viti. Mér fannst þetta bara svo góð hugmynd," segir Kristlaug María Sigurðar- dóttir sem á annað framlag okkar fslendinga til Prix Geneve Europe keppninnar um handrit að leiknum sjón- varpsmyndum. Hin handritsdrögin sem voru valin úr hópi umsækj- enda átti Jón Steinar Ragn- arsson og bera þau nafnið Gúrkutíð. Fjölþjóða dóm- nefnd mun síðan fjalla um innsendar hugmyndir og velja 10 handritsdrög en höf- undum þeirra mun verða gert kleift að vinna úr þeim fullkomin tökuhandrit. Þetta er í þriðja sinn sem efnt er til slíkrar keppni en í fyrsta sinn varð uppkast Viiborgar Ein- arsdóttur blaðamanns á Morgunblaðinu í hópi hinna tíu sem valin voru. í annað skipti voru send inn tvö drög frá Islandi en þá höfðum við ekki erindi sem erfiði. Listapósturinn hitti Krist- laugu sem reyndar er kölluð Kikka í daglegu tali á heimili hennar þar sem hún býr ásamt þremur köttum. Um hvað fjatlar Fríða frœnka? „Hún fjallar um stelpu sem kemur sér í kynni við mann sem er giftur og á börn. Hann er miðaldra bókaútgefandi í góðum efnum, og ég hugsa að ég láti hann hafa gráa fiðr- inginn. Hann er mjög vana- fastur en þessi stelpa nær undir skelina og brýtur upp tilveru hans. Hann verður síðan allur hinn líflegasti með henni og vill helst flytja eitt- hvað langt í burtu og byrja al- gerlega nýtt líf. Hann fer frá konunni og til hennar en þeg- ar hann fer til útlanda tekur stelpan til sinna ráða og þá fara mjög undarlegir hlutir að gerast." Petta hljómar mjög spenn- andi. Er stelpan kannski kvendjöfull? „Nei, en hún er mjög ís- lensk og röggsöm og hana þyrstir í hefnd." Hefurðu fengist eitthvað við að skrifa? „Ekki að neinu viti. Ég heyrði hinsvegar einu sinni um svipað atvik og hugsaði þá strax að þetta væri gott efni í sjónvarpsleikrit. En ég hef auðvitað breytt og bætt og hagrætt aðstæðum þannig að sú saga sem ég heyrði er nær óþekkjanleg í þeirri mynd sem hún birtist í hand- ritsdrögunum. Ég hef náttúrlega skrifað bæði ljóð og sögur fyrir skúff- una eins og allir. En ég hef aldrei verið nægilega ánægð til að birta það á prenti. Það verður kannski breyting á því núna enda finnst mér þetta| vera viðurkenning á því að maður geti gert eitthvað." Hvað fœstu annars við í daglega lífinu? „Ég vinn á Unglingaheimili ríkisins núna en er reyndar tiltölulega nýkomin heim frá Frakklandi þar sem ég dvaldi með vinkonu minni sem er við nám. Ég passaði m.a. börnin hennar en lagði auk þess stund á frönsku og naut lífsins. Ég hef flakkað mikið um dagana og búið á Tálkna- firði, Siglufirði, Ítalíu, Noregi Frakklandi, Akureyri og hin- um ýmsustu stöðum hér í bænum. Svo hef ég gaman af því að lesa og fara á bíó.“ Þú gœtir kannski hugsað þér að skrifa kvikmynda- handrit nœst? „Hver veit. Mér finnst mjög gaman að skrifa,“ sagði Kikka að lokum. Menntamála- ráduneytið vék Rugl- málaráð- herranum til hliðar — frelsi og mannát þótti ekki við hœfi Mynd Þórarins Leifssonar, höfundar myndasögunnar Ruglmálaráðherrann í PRESSUNNI, var fjarlœgð af áberandi stað á sýningu á myndasögum í menntamála- ráðuneytinu. Þessi sama mynd birtist í PRESSUNNI í apríl síðastliðn- um. Starfsmönnum í ráðu- neytinu þótti myndin ekki siðleg og settu hana á afvikn- ari stað. Einkum munu það hafa verið fyrirmyndir höfundar- ins sem fóru fyrir brjóstið á ráðuneytisfólki, svo og slag- orðið „Frelsi og mannát", sem þykir minna á slagorð Sjálfstæðisflokksins úr kosn- ingabaráttunni. Ég hugsa að ég láti hann hafa gráa fiðringinn — segir Kristlaug María Sigurðardóttir handritshöfundur Sigrún með tónleika í Hafnarborg Sigrún Eövaldsdóttir einleikari í stuttu símaspjalli Sigrún Eðvaldsdóttir held- ur tónleika í Hafnarborg 30. júní. Tónleikarnir eru í tengsl- um við Listahátíð í Hafnar- firði og verða lokatónleikar hátíðarinnar. Sigrún sem lenti svo glœsilega í þriðja sœti í Síbelíusarkeppninni í nóvember sagði í samtali við Listapóstinn að hún hygöist m.a. leika ítalska svítu eftir Stravinsky og Prelúdtu eftir Gershwin á tónleikunum. Meðleikari Sigrúnar á tón- leikunum verður Þorsteinn Gauti Sigurðsson. En hvernig hefur þér vegn- að eftir keppnina? Hefurðu ekki fengið mikið af tónleika- tilboðum? „Jú, en ég hef kannski sjálf ekki verið nægilega dugleg við það að koma mér áfram. Ameríka er lika svo langt í burtu frá öllu öðru,“ sagði Sig- rún. Nú varstu ekki bjartsýn á að ná svona langt fyrir keppnina? „Nei, ég var alveg viss um að ekkert myndi gerast og það var ólýsanleg tilfinning þegar úrslitin komu í ljós. Þetta fyllti mig líka svo mikilli bjartsýni." Hvað er á döfinni hjá þér á íslandi fyrir utan tónleikana í Hafnarborg? „Ég er að fara utan í sumar ásamt Strengjasveit Tónlistar- skólans í Reykjavík. Leiðin liggur til Skotlands á Tónlist- arhátíð og ég hlakka óskap- lega mikið til, ég lék með strengjasveitinni þegar ég var yngri og á sterkar rætur þar. Þar mun ég leika eitt af mínum uppáhaldsverkum, Bernsteinsserenöðu fyrir fiðlu, slagverk, hörpu og strengjasveit. Svo verð ég á áskriftartónleikum Sinfón- íunnar í október. Á næstunni er síðan að koma út geisladiskur með ýmsum fiðluperlum og þar mun Selma Guðmundsdóttir píanóleikari leika með mér," sagði Sigrún að lokum. Jr BE5TAÐDR0PPA EB.E&5.EPTA OG STRUT þyWKUHI!

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.