Pressan


Pressan - 20.06.1991, Qupperneq 28

Pressan - 20.06.1991, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. JÚNÍ1991 Sóldýrkendur, kanínur, elskhugar af öllum stærðum og gerðum. í land með fyrirætlanir sínar og varð ekkert úr gullgreftri í það skiptið og raunar fannst ekki heldur vatn. JÁRNBRAUT FRÁ ÖSKJUHLÍÐ Þegar hafin var hafnargerð í Reykjavík var grjót til fram- kvæmdanna flutt úr Öskjuhlíð. Til flutninganna var lögð járn- braut sem nú er varðveitt í Ár- bæjarsafni. JÓSEFÍNA NAUTHÓL Jósefina spákona kennd við bæinn Nauthól suðvestan Öskju- hlíðar er fyrirmynd Karólínu spá- konu í Eyjabókum Einars Kára- sonar um braggafólkið. Jósefína varð þjóðsaga þegar í lifanda lífi og það voru ófáir sem fengu að VINSÆLL SJÓBAÐSTAÐUR OG SÍÐAR VOLGA Nauthólsvík var lengi vinsæll sjóbaðstaður en nú þekkja flestir Nauthólslvík vegna heita lækjar- ins svokallaða sem er stundum nefndur Volga. Þar rennur yfir- fallsvatn frá Hitaveitunni til sjáv- ar. Heiti lækurinn er einnig róm- aður fyrir næturböð sín eftir að skemmtistaðir borgarinnar loka, sérstaklega um hásumarið. Eftir- farandi kvæði ort Nauthólsvík til dýrðar birtist í Háðfuglinum í kringum 1950. Þá höfðu verið uppi nokkrar pipraðar raddir um spillingu í Nauthólsvík. Höfundur orti undir dulnefninu Eros. skyggnast mn í framtíðina með aðstoð hennar. t KV tAjf * té 'rn* ^ — * € 0 é Audkúlan i Öskjuhliðinni verður vígð í dag og þar með bundinn endahnutur á þessa umdeildu byggingu. Flestum ber eflaust saman um það að um fallega byggingu er að ræða og fer hún vel i hlíðinni þó að leiða megi rök að þvi að peningunum hefði verið betur varið i annað. En hvað sem kokteilum líður og viðlíka fagnaðarerindi fína fólksins i tilefni vígslunnar iðar Öskjuhlíðin öll af fjöri á sumrin og á sér mörg líf. I þessari grænu víðáttu þar sem fyrir að- eins fáeinum árum sást ekki stingandi strá leynist líf af öll- um gerðum. Þar eiga nokkrar kanínur sitt heimili, elskendur sitt athvarf m.a. hommar sem spranga umhverfis og kíkja eftir kynbræðrum sínum, sóldýrk- endur trítla þar um berrassaðir á sólskinsdögum og útigangs- menn sofa á sumarnóttum i gryfjum undir hitaveitustokkun-| um, stöku dóni flettir sig klæð- um þegar trimmkonur hlaupa eftir stigunum. Ósjaldan enda allmörg samkvæmi i Reykjavik í heita læknum og baðgestirnir ráfa gjarnan drukknir upp í hlíð- ina tveir og tveir saman þegar vínið tekur að streyma út í kyn- kirtlana. A daginn er tilvalið að baða sig í heita læknum og liggja þvinæst í sólbaði í Öskjuhlið- inni, skvetta í sig rauðvíni um eftirmiðdaginn, grilla mat og horfa upp í sólina gegnum svört sólgleraugu. En þegar rignir á Oskjuhlíðin sér ein- manalegt lif og það setur jafn- vel hroll að kaninunum þegar þær hoppa i skjól og útigangs- mennirnir halda fram hjá Hita- veitunni og stinga sér inn í gistiskýlið á Þingholtsstræti. Þegar vetrar og aðeins hörð- ustu ódóin hafa það af að standa með skinnpokann hang- andi í von um að saklaus vegfar- andi eigi leið fram hjá, leita úti- gangsmennirnir á náðir guðs- mannanna uppgefnir á sál og líkama. Einstaka .karlmaður keyrir um á \bí!num sínum í von um að mæta Prins Valíant á rauðu lödunni. Sóldýrkendur fara í Ijós í Sól og sælu og aðrir elskhugar byltast annarshugar um í vatnsrúmum frá Yngvari og Gylfa. I fyrndinni var Öskjuhlíð eyja og má sjá þar fjörumark ef grannt er skoðað. í upphafi ís- landsbyggðar hefur Oskjuhlíð lík- ast til verið skógi vaxin og gam- alt örnefni, Víkurholt, hefur verið kennt við hana. GUÐMUNDUR KÍKIR Maður að nafni Guðmundur kíkir hugðist skömmu eftir miðja síðustu öld leggjast út í hellis- boru sem nú er horfin. Hann hafði þær þokkalegu áætlanir á prjónunum að ræna ferðamenn sem ættu leið um. Guðmundur hafði þó ekki meira upp úr krafs- inu en svo að hann gafst fljót- lega upp. ÞJÓÐHÁTÍÐ í ÖSKJUHLÍÐ Þjóðhátíð Reykvíkinga árið 1874 var haldin í Öskjuhlíð og þótti með afbrigðum misheppn- uð. Var einkum kennt um miidu moldroki svo að varla sá úr aug- um. GULLÆÐII REYKJAVIK En það hafa fleiri fengið glýju í augun af henni Öskjuhlíð og einu sinni þóttust menn hafa orðið varir gulls þar og varð uppi fótur og fit í Reykjavík. Það var árið 1905 er borað var eftir vatni norðan undir Öskjuhlíðinni. Bjart- sýnismennirnir urðu þó að draga

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.