Pressan - 26.09.1991, Blaðsíða 10

Pressan - 26.09.1991, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. SEPTEMBER 1991 FENGH EIBIB GJALDPROT FYHR LÍTHI fifi SIEPPA FRÁ ÁBYRGHIM Einar Oddur Kristjánsson, Einar Jónatansson, Auöunn Karlsson, Jón Páll Halldórsson og fleiri nafntogaðir atvinnurekendur á Vestfjörðum keyptu gjaldþrota fiskeldisfyrirtœki sem þeir sjálfir áttu. Með þessu œtla þeir að komast frá persónulegum ábyrgðum, sem eru umtalsverðar. Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnuveitenda- sambandsins og forstjóri Hjálms á Flateyri, og fleiri nafn- togaðir Vestfirðingar keyptu fisk úr eigin gjaldþrota fisk- eldisstöð á aðeins hluta vátryggingarverðs. Fyrir gjald- þrotið var fiskurinn tryggður fyrir 70 milljónir króna en þeir fengu hann keyptan fyrir sex milljónir króna. Með kaupunum hyggjast þeir koma sér undan persónulegum ábyrgðum á rekstrinum. Fiskeldisstöðin íslax er nú til gjaldþrotaskipta. Fyrsti skiptafundur verður í næsta mánuði. Þeir leigja fasteignir gjaldþrotafyrirtækisins fyr- ir lítið fé. enga fyrirgreiðslu, þaö var búið að loka fyrir afurðalán. Það varð að samkomulagi að við keyptum fisk- inn og leigðum stöðina. Stöðina í Reykjanesi liöfum við til næstu mánaðamöta. Við erum búnir að slátra þar 40 tonnum," sagði Engil- bert Ingvarsson, stjórnarformaður íslax og einn af eigendum Bóls. Engilbert vildi ekki segja hvað þeir greiddu fyrir fiskinn eða hvað þeir leigja mannvirkin á. Það eina sem hann vildi segja um þetta var eftirfarandi: „Viö borgum alltof mik- ið fyrir þetta." Engilbert sagði mjiig blik í augun þegar talað var um lax. í vor, þegar fyrst sást fram á að hægt væri að vera með fiskeldi hér af ein- hverju viti, þá var lokað fyrir allt. Það eru komnir betri stofnar og til- kostnaður hefur lækkað, til dæmis hefur fóðrið lækkað úr 80 krónum í 60 hvert kíló. Byggðastofnun var stærsti hlut- hafi í Islaxi með 20 prósent, Engil- bert Ingvarsson átti tíu prósent, Benedikt Eggertsson átti einnig tíu prósent, svo og Norðurtangi á ísa- firði og Hjálmur á Flateyri. gengur og gerist. Það mætti halda að það væri ekki sama hvort menn heita Einar Oddur eða til dæmis Jón Oddur. Meðan aðrir sem lent hafa í svipuðu hafa þurft að selja ofan af sér til að greiða upp ábyrgðir er þessum mönnum afhent fyrirtækið fyrir brot af því sem þeir sjálfir tryggðu það á. Þetta er mismunun," sagði maður úr atvinnulífinu fyrir vestan. UPPGJÖR FRAMLNDAN Fyrsti skiptafundur í þrotabúi ís- lax verður í næsta mánuði. Þá kem- Flestir hluthafar gjaldþrotafyrir- tækisins hafa stofnað nýtt félag, Ból sf., sem keypti allan fisk í stöð Islax og leigir mannvirkin fyrir lítið. Me(S Einari Oddi voru í stjórn íslax Engilbert Intfvarsson, sem var for- maður stjórnar fyrirtækisins, £i»ger/ Jónsson varaformaöur, Einur Jónat- ansson ritari og Audunn Karlsson í Súöavík. Mannvirki fyrirtækisins verða seld á nauöungaruppboöi innan fárra vikna. Þeir sem hafa stofnað nýtt fyrir- tæki um reksturinn eru Auöunn Karlsson, Einar Jónatansson, Einar Guðfinnsson hf., Einar Oddur Krist- jánsson, Hjálmur hf., Eggert Jóns- son, Norðurtangi hf., Benedikt Egg- ertsson, en hann var framkvæmda- stjóri íslax, og Engilbert Ingvarsson á Hólmavík. HLUTAFÉÐ VAR 46 MILLJÓNIR Hlutafé í íslaxi var alls 46 milljónir króna, það er allt tapað. Engilbert Ingvarsson á Hólmavík var stjórnar- formaður fyrirtækisins. Hann segir að eigendurnir hafi átt á hættu að tapa öðru eins vegna ábyrgða sem þeir gengu í vegna íslax. Samkvæmt upplýsingum PRESS- UNNAR eru helstu kröfuhafar Landsbankinn, Framkvæmdasjóður °g Byggðasjóður. Það var fyrir til- stilli þessara kröfuhafa sem gengið var til samninga við helstu eigendur gjaldþrotafyrirtækisins um að selja Einar Oddur Kristjánsson var helsti talsmaður eig- enda íslax viö stofnun Bóls og kaupin á fiskinum. Jón Páll Halldórsson, for- stjóri Norðurtanga á Isafirði, er einn þeirra sem stofnuðu Ból, enda á fyrirtæki hans mikilla hagsmuna að gæta. Einar Jónatansson, fulttrúi Einars Guðfinnssonar hf. i Bolungarvik, bæði í fslaxi og Bóli. Auðunn Karlsson i Frosta i Súðavík. Hann er með í Bóli rétt eins og hann var einn stjómarmanna í íslaxi. Jón Friðgeir Einarsson, at- vinnurekandi í Bolungarvík, er einn þeirra sem tóku ekki þátt i stofnun Bóls. þeim fiskinn fyrir innan við tíunda hluta tryggingaverðsins. Ekki kom til álita að kröfuhafar rækju fiskeldisstöðina sjálfir til að freista þess að fá meira en 6 milljón- ir króna fyrir þær afurðir sem voru í stöðinni og fá með því meira upp í kröfur sínar. Fyrri eigendur virðast sannfærðir um að þessi leið, þ.e. kaup á fiskinum og leiga á mann- virkjum, geti leyst þá undan ábyrgð- um. Þar sem kröfulýsingafrestur er ekki útrunninn er óvíst hversu mikl- ar kröfur verða gerðar á hendur ís- laxi. BORGUÐUM ALLTOF MIKIÐ „Við stóðum frammi fyrir því að fiskurinn var í hættu. Við fengum tvísýnt hvernig þeir kæmu til með að fara út úr þessu. Hann sagði þetta mikla áhættu, og sem dæmi er fisk- urinn ekki tryggður til að draga úr útgjöldum. „Við erum búnir að slátra minni fiskinum og höfum fengiö um 260 krónur fyrir kílóið. í sjókvíunum er stærri fiskur sem við munum fá hærra verð fyrir. Tryggingaverð- mæti alls fisksins var 70 milljónir króna. í þeirri tölu eru smáseiöi og uppeldisseiði." Eigendur íslax byrjuðu í seiðaeldi en þegar Noregsmarkaður fyrir seiðasölu lokaðist hófu þeir ræktun matfisks. „Við vorum eins og allir aðrir. Það var mikill kraftur í þessu frá sjóðun- um og fleirum. Menn fengu dollara- LANDSBANKINN SEGIR EKKERT Brynjólfur Helgason. aöstoðar- bankastjóri Landsbankans, sagðist ekkert vilja segja um hvernig samn- ingar voru gerðir við eigendur gjaldþrotafyrirtækisins þegar þeir stofnuðu nýtt fyrirtæki til að taka yf- ir rekstur þess gamla. „Þetta er rekstur sem bankinn hefur ekki áhuga á að vera aðili að, nema þá í mjög skamman tíma. Við erum stórir kröfuhafar í þetta bú. eins og svo mörg önnur. Landsbank- inn er það í laxeldinu yfir höfuð." sagði Brynjólfur Helgason aðstoð- arbankastjóri. „Svo virðist sem þeir herramenn sem áttu íslax hafi fengið betri meö- ferð hjá þessum lánastofnunum en ur í Ijós hversu miklar kröfurnar á hendur fyrirtækinu verða og hvaö sex milljónirnar koma til með að greiða stóran hluta þeirra. Mann- virki fyrirtaekisins eru yfirveðsett en eigendur Bóls, sem eru, eins og áður sagði, að stórum hluta þeir sömu og áttu íslax, leigja mannvirk- in fyrir lítið. Nokkrir fyrrum hluthafar í íslaxi tóku ekki þátt í stofnun Bóls sf. Þar á meðal er Jón Fridgeir Einarsson, byggingarmeistari í Bolungarvík, Höröur Gudmundsson, flugmaður á ísafirði, og Eiríkur Böövarsson, framkvæmdastjóri Niðursuðuverk- smiðjunnar á ísafirði. Sigurjón Magnús Egilsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.