Pressan - 26.09.1991, Síða 26
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. SEPTEMBER 1991
9íi)írtf
fílcitöhnv
hjóöoölittf
Ekkert varö úr þvi, veður
hafði hert aftur eftir að hafa
verið með besta móti fyrri
hluta vikunnar. Vindar
héldust fram yfir helgina og
á mánudegi var komið
ágætis veður. Trúr sann-
færingu sinni boðaði skip-
stjórinn mannskapinn
næsta fimmtudag. Sagan
endurtók sig; ekki gaf á sjó
þann dag né næstu daga.
Það var ekki fyrr en fjór-
um vikum eftir að skipstjór-
inn ætlaði að hefja vertið-
ina, sem loksins gaf á sjó á
þeim degi sem hjátrú hans
leyfði.
(Ur sjomannasogum)
.. Iji‘idink‘i’1 of> ekki kkdin-
ieí’t, þella er eins <>í> Iwer
(innur uinna, stundam i>am-
an <>!> stundum ekki," sutfdi
Oskar Olafsson, skipstjóri
Akruborí>urinnar. en Itunn er
búinn ad sit>la á henni ísautj-
án ár. Þar af fimmtán sem
skipstjóri.
Er ekki leidinleift til lentfd-
ar r/ð vera á sama rámtinum
ár eftir ár'/
„Það er oft injóg s>aman á
sumrin þei>ar veiðiniennirnir
eru á ferðinni, þeir kunna frá
mörgu skemmtilegu að segja
oi> eru líflei>ir oi> hressir.
Þetta er oft á tíðum sama
fólkið sem ferðast með okkur
oi> notar þá timann til að
skipuleggja ferðina sem það
er að leggja upp í."
Verdid þid ekkert varir uid
ad litid sé á slarf ykkur sem
einskonur, ,i>ervisjómennsku "?
,,Nei, það verð ég ekki var
við, þetta er enda alvöru sjó-
mennska. Við komum átta
sinnum að bryggju á dag og
það er nú aðalkúnstin, að
leggja að. Siglingin sjálf er
minnsta málið. Erlendis t.d.
eru ferjusjómenn betur laun-
aðir en farmenn, þar er litið
svo á að ferjusiglingar séu
erfiðari."
Sautján ár frum oí> tilbaku.
þettu er laní>ur tími. Ertu ekk-
ert ud hcettu þessu?
„Ætli það. Langafi minn,
Oskar, var ferjumaður á þess-
ari leið. Þá voru þetta mjólk-
ur- og póstflutningar frá
Reykjavík út í Viðey og upp á
Skaga. Hann drukknaði í
einni ferðinni á milli Viðeyjar
og lands. Við erum líka skyld-
ir ég og Þorvaldur Guð-
mundsson, sem er skipstjóri á
móti mér núna. Hann er bú-
inn að sigla þessa leið lengur
en ég. Þetta gengur svona í
ættir, má segja. í þessu starfi
er manneskjulegur vinnu-
tími, menn eru ekki langdvöl-
um fjarri fjölskyldu og vin-
um. Eru heima á stórhátíðum
og lifa eðlilegu fjölskyldulífi.
Það er einn af kostum starfs-
ins. Svo er kannski líka önnur
hlið á þessu, menn hlakka
jafnvel meira til að koma
heim eftir langa útlegu en á
hverjum degi. Því fylgir meiri
spenna að hitta ástvini eftir
fjarveru en á hverjum degi.
En mér líður ágætlega í þessu
og þetta er ekki verri sjó-
mennska en önnur."
Auöveldar nýja adstadan
ykkur sturfiö?
„Nei, hún er betrí fyrir bíl-
ana en ég tel að fyrir okkur sé
þetta erfiðara. Það er erfiðara
að leggja að. En bílarnir eiga
greiðari aðgang til okkar.
Annars má segja að við séum
í samkeppni við bundna slit-
lagið. Fyrir nokkrum árum
tóku menn frekar Akraborg-
ina til að losna við holurnar.
Nú er öll leiðin með bundnu
slitlagi þannig að sumir keyra
frekar sé færðin góð."
Einnst fólki þetta kannski
of tímafrekt?
„Það held ég ekki, þetta
tekur um það bil klukkutíma
og korter, þ.e. siglingin og að
koma sér í og úr skipi. Mörg-
um finnst þægilegt að slappa
af á leiðinni, fá sér kaffi og
lesa blöðin. Þetta er afslapp-
andi upphaf að ferðalagi."
Skipstjóri á vertiðarbát
var haldinn mikilli hjátrú,
eins og algengt er meðal
manna í þeirri stétt. Um-
ræddur skipstjóri var
ákveðinn i að ekki væri
hægt að hefja vertið nema
á fimmtudögum, föstudög-
um og laugardögum.
Við upphaf einnar vertið-
arinnar var skipstjórinn til-
búinn að hefja störf á
mánudegi. Þar sem hann
taldi voðann visan ef byrj-
að væri á þeim degi sagöi
hann sinum mönnum að
mæta ekki fyrr en næsta'
fimmtudag. Þann dag var
veður slæmt, hífandi rok,
svo ekki var hægt aö fara á
sjó. Veðrið hélst næstu tvo
daga.
Viö svo búið ákvað skip-
stjórinn að hefja vertíðina
næsta fimmtudag, eða
viku síðar en upphaflega
var ákveðið.
Tveir drykkfelldir menn
höfðu verið við drykkju
dögum saman. Eftir því
sem leið á drykkjuna gerð-
ust þeir æ blankari. Þeir
voru búnir að gera allt
hugsanlegt til að verða sér
úti um áfengi eða annað
sem drekka mátti til að
komast i vimu.
Þegar öll sund virtust
lokuð mundi annar eftir þvi
að hann vissi um tréspírit-
us sem hægðarleikur var
að verða sér úti um.
„Já, en við getum orðiö
blindir ef við drekkum tré-
spiritus," sagði hinn.
„ Já, ég veit það," sagði sá
sem átti hugmyndina um
tréspiritusinn, og bætti við;
„við höfum nú séð svo
margt."
(Úr drykkjumannasogum)
SIÚKDÓMAR OG FÓLK
Af Svíum og vandamálum þeirra
Þær fregnir bárust á öld-
um ljósvakans fyrir nokkru
að sænski sósíaldemókrata-
ílokkurinn væri nú loksins
farinn frá völdum. Hann hef-
ur stjórnaö Svíaríki um ára-
tugaskeiö og átt ríkan þátt í
aö móta og efla sænskt |)jóö-
félag. Margir Itafa oröiö til
aö gagnrýna stjórn krata á
Svíum en ég er þeirrar skoö-
unar aö margt hafi þeir gert
vel. A velmektarárum krata
þróaöist sænskt nútíma-vel-
íeröarþjóöfélag í allri sinni
mekt og Svíum læröist aö
horfa á heiminn meö eigin
auguin. Þeim skildist aö lífiö
væri eitt stórt vandamá!
hvert sem litiö væri. Sumir
telja aö Svíar hafi fundiö upp
orðiö vandamál eöa „pro-
blem" en svo er alls ekki. í
21. kafla Njálu segir frá því er
Gunnar Hámundarson kom
á fund Njáls og sagöist hafa
tekiö íjárheimtu af LJnni
Maröardóttur gigju á Hrút
Herjólfsson. „Það er mikiö
vandamál," sagöi þá Njáll.
Þessi tilvitnun í Njálu sýnir
okkur að Svíar fundu ekki
upp vandamálin, hvort sem
þeim líkar þaö betur eöa
verr, þótt íáar þjóöir hafi
veriö eins meövitaöar um
vandamál mannlegs lífs og
þeir.
OTTAR
GUDMUNDSSON
DAPUR ER
VANDAMÁLALAUS
„Dapur er vandamálalaus
maöur, |>ví hann á ekkerf
innhlaup i ráögjöf og leiö-
sögn og hverfur inn í ein-
manaleik hins vandamála-
lausa lífs," sagði eitt sinn
maöur sem gjörþekkti
sænskan hugsunarhátt. Best
er aö láta sér líöa illa. því aö
í allri vellíöan er fólgin
blekking alsælunnar. í
sænskum háskólum er fjöldi
námsbrauta fyrir veröandi
alvinnufólk í vandamálaúr-
lausnum, félagsfræðinga,
sálfræöinga. íélagsráögjafa.
námsráögjafa. unglingaráö-
gjafa, atvinnuráögjafa,
stjórnmálafræöinga, sér-
fræöinga í vandamálum
blindra, lamaöra, haltra.
getulausra, útlendinga og
svona mætti lengi telja.
Samkvæmt sænskum staöli
er ekkert vandamál svo lítiö
aö ekki megi mennta ein-
hvern til að leysa það og
ekkert mál svo ómerkilegt
að ekki megi gera þaö aö
vandamáli. Sem dæmi má
nefna að lengi fram eftir öld-
inni var langur vinnutími
Svía talinn eitt aöalvanda-
mál þeirra. Verkalýöshreyf-
ingin barðist fyrir styttingu
vinnutímans meö góöum
árangri og nú er hann styttri
en víðast hvar annars staöar.
Allir hafa fengið þaö frí sem
barist var fyrir. En þá er
komiö upp mikiö vandamál
eins og Njáll heitinn sagöi;
hvaö á eiginlega aö gera viö
allt þetta frí?
„FRÍTÍÐSPEDAGÓGAR"
Fjöldi manna lagði fram
tillögur til úrbóta, hvað gera
ætti til að hjálpa alþýöunni í
þessu nýja vandamáli.
Lausnin varö sú aö setja upp
nýja námsbraut í háskólum
Svíaríkis, Fritidspeda-
gogslinjen, eða námsbraut
þeirra sem geta leyst fría-
vandamál almennings. Allt í
einu var komið fullt af frí-
tíðspedagógum sem ráð-
lögðu fólki hvernig ætti aö
skipuleggja fríin. hvaö gera
ætti fyrir börnin og hvaö
gæti komiö í veg fyrir aö
manni leiddist í sumarfríinu.
Komiö var á fót vakthafandi
frítíðspedagóg sem hægt
væri að ná í allan sólarhring-
inn ef með þyrfti. Frítíðs-
pedagógar eru staðsettir á
tjaldstæðum og víðar þar
sem fólk er í frii og getur allt
i einu farið að leiðast. Frí-
tíðspedagóginn rannsakar
þá viðkomandi fjölskyldu og
leggur siðan eitthvað til mál-
anna eins og að fara í stór-
fiskaleik. Hann tekur mikinn
þátt í leiknum til að byrja
með en þegar allir eru með
á nótunum fer hann glaður í
bragði og leitar uppi aðrar
fjölskyldur staddar í nauð-
um leiðindanna.
FRÆÐANDI
ÚTVARPSÞÆTTIR
í slíku þjóðfélagi fara
vandamálin að lifa sínu eigin
lífi; það telst óeðlilegt ástand
ef engin vandamál eru til að
leysa. Öll blöð eru full af frá-
sögnum um óleyst vandamál
og á öllum útvarpsrásunum
eru þættir um vandamál og
úrlausn þeirra. Eitt sinn þeg-
ar ég ók frá Kaupmanna-
höfn til Gautaborgar hlust-
aði ég á eftirtalda útvarps-
þætti: 1. Vandamál fiska í
súrum vötnum. 2. Vandamál
innflytjenda í frumskógi út-
sölunnar. 3. Vandamál bíl-
eigandans í stríðinu við svik-
ula verkstæðisformenn. 4.
Vandamál vandamálsins
gagnvart eigin lausn. 5. Get-
ur óleysanleiki vandamáls
verið vandamál? — Leit Svía
að vandamálum gerir þá að
þeim mönnum sem þeir eru.
Þeim tekst alltaf að finna
einhver ný vandamál til að
leysa. Nú verður spennandi
að fylgjast með þeim undir
nýrri stjórn, en sænskir sósí-
aldemókratar eiga við til-
vistarvanda að striða sem
kallar á „utredningu" og
fleiri sérfræðinga.
■ «
Oskar Olafsson er skipstjóri á Akraborg. I
sautján ár hefur hann siglt frá Akranesi til
Reykjavíkur og til baka, — og svo áftur upp
á Skaga og aftur til Reykjavíkur og svo aftur
upp á Skaga, — dag eftir dag.