Pressan - 26.09.1991, Side 30
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, segist ekkert
hafa talað við Nikíforov.
Fyrrverandi KGB-njósnara
vísað frá Sviþjóð
VAR ÁSKRIFANDI
AÐ MORGUN-
BLAÐINU ÞEGAR
HANN VARÁ
ÍSLANDI
— afskaplega viðkunnanleg-
ur en ég hafði engin sam-
skipti við hann, — segir
Styrmir Gunnarsson ritstjóri
Werner Rasmusson hefur keypt
mikinn fjölda af tapfyrirtækjum að
undanförnu.
WERNER GERIR
TILBOÐ UM KAUP
Á ÍSLENSKA RÍKINU
— hyggst nota uppsafnaðan
halla ríkissjóðs til skattaf-
sláttar
Davið Oddsson segir að staðar-
uppbót ráðherra þurfi að verða allt
að 200 þúsundum á mánuði svo
þeir komi heim.
Tillaga um lækkun ferða-
kostnaðar hjá ríkinu
RÁÐHERRAR FÁI
STAÐARUPPBÓT
FYRIR AD VERA
Á ÍSLANDI
— hún þarf að vera há til aö
geta keppt við ferðapening-
ana, — segir Davíð Oddsson
39. TOLUBLAÐ 2. ARGANGUR
FIMMTUDAGURINN 26. SEPTEMBER 1991
STOFNAÐ 1990
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR
Beint
sjonvarp
úr sund-
laugunum
— er suar Ríkissjón-
uarpsins uid beinurn
útsendinaum Stööu-
ar-2 frá j)ini>sölurn
Reykjavik, 25. september
„Þótt það geti stund-
um verið fjör í þingsöl-
um held ég að til lang-
frama standi útsend-
ingar þaðan beinum út-
sendingum okkar úr
sundlaugunum ekki á
sporði,“ sagði Heimir
Steinsson útvarps-
stjóri í samtali við
GULU PRESSUNA um
aukna hörku í sam-
keppni sjónvarps-
stöðvanna.
Eins oi< fraiti hofnr
komið í fréttum liyj»i»st
Stöð-2 standa fyrir bein-
um útsendingum tir þing-
sölum í vetur. Ríkissjön-
varpið hefur hins vegar
gert samkomulag við
Sundlaugar Reykjavíkur
um beint sjónvarp þaöan
,.í heitu pottunum verð-
ur líflegri stjórnmálaum-
ræða en í þingsölum. Og
þegar dofnar yfir umræð-
unni getum við rennt vél-
unum yfir sólbaðsbekk-
ina. Þaö er ólíkt skemmti-
legra sjónvarpsefni en
þessir fáeinu kallar sem
hanga á þingpöllum."
sagði Heimir.
Að sögn Páls Magnús-
sonar stendur Stöð-2 i
samningaviöræöum við
forseta þingsins um að fá
að senda beint lít frá kaffi-
stofu þingsins til að lifga
upp á útsendingarnar eða
jafnvel frá gufubaöi þing-
manna í Þórshamri.
Sambandsherinn í Júgóslavíu
Kaupir angórukanínur
af íslenskum bændum
— verda notadar til uö brjótu nidur efnuhui>skerfi Króatiu
Zagreb, 25. september
Samkvæmt óstaðfestum
fregnum í Júgóslavíu hafa
yfirmenn sambandshers-
ins gert tilboð í ailar an-
górukanínur íslenskra
bænda svo og fyrirtæki
bændanna, Fínull. Hug-
myndin er að nota kanín-
urnar til að brjóta á bak
aftur efnahagslegt sjálf-
stæði Króatíu.
,,Við höfum fengið skýrslu
frá Islandi sem sýnir svart á
hvítu hvers kanínurnar eru
megnugar. Þótt það séu ekki
nema fáein ár síöan þær
komu til landsins hefur hverri
þeirra tekist að safna hátt í 2
milljóna króna tapi. Þegar
það er haft í huga, og hversu
fljótar jjær eru að fjölga sér,
er Ijóst að þarna er um algjört
gereyöingarvopn aö ræða,"
sagði ónafngreindur talsmað-
ur sambandshersins í samtali
við GULU PRESSUNA.
,,Jú, það er rétt að við höf-
um fengiö tilboð í kanínurn-
ar," sagði Erlendur Davíðsson
kanínubóndi við GULU
PRESSUNA. ,,En við ætlum
ekki að selja fyrr en útséð er
um hvort við fáum meira frá
íslenska ríkinu. Ef búið er að
girða fyrir frekari styrki get-
um við náttúrlega allt eins
selt."
Erlendur Daviðsson kaninu-
bóndi vill reyna við islenska
rikið áður en hann sendir kan-
inurnar til Júgóslavíu.
Sparnaöartillögur fjármálaráðherra
Ríkisstarfs-
mönnum boðið
að selja
stöðugildi sín
— fá SO prósent launanna ef þeir leggju niöur uinnu
strax
Reykjovik, 26. september
„Hugmyndin er að sjálf-
sögðu komin úr landbún-
aðarkerfinu. Þar hefur
tekist að fækka ærgildum
með því að bjóða bændum
laun fyrir að framleiða
ekki kjöt. Við ætlum okk-
ur að bjóða ríkisstarfs-
mönnum laun fyrir að
mæta ekki til vinnu,“ sagði
Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra í gær, þegar
hann kynnti nýjar sparn-
aðartillögur i rekstri hins
opinbera.
„Sparnaðurinn er ekki
fyrst og fremst sá að losna við
að greiöa full laun, en þeir
starfsmenn sem selja stöðu-
gildi sín fá KO prósent laun-
anna. Sparnaöurinn liggur í
því að þeir sem sitja heima
munu ekki auka á þenslu rík-
issjóðs með vinnu sinni."
sagði Friörik.
Að hanssögn hefur könnun
fjármálaráöuneytisins leitt í
Frida Tryggvadóttir, ritari fjár-
málaráóherra, er atvinnulaus
en Friðrik Sophusson hefur
selt ríkissjóði stöðugildi
hennar.
Ijós að um fimmtungur opin-
berra starfsmanna sé á hverj-
um tíma að semja skýrslur
eða úttektir sem leiði síðan til
aukinna útgjalda.
„Markmið okkar er að
kaupa sem flest stöðugildi.
Sjálfur hef ég þegar selt
stöðugildi aðstoðarmanns
niíns og ritara. Við erum ein-
mitt að fara að halda upp á
|)að hér í ráöuneytinu." sagði
Friðrik Sophusson.
Knattspyrnusambandiö
Vill fá 20 milljónir
fyrir að halda aldrei
heimsmeistarakeppni
Reykjavik, 26. seplember
„Við erum vongóðir
um að ráðherrann taki
vei í tilboð okkar,“ sagði
Eggert Magnússon, for-
maður Knattspyrnusam-
bands íslands, í samtali
við GULU PRESSUNA, en
sambandið hefur óskað
eftir 20 milljóna króna
styrk úr ríkissjóði.
„Viö bentum ráðherran-
um á aö við gætum sparaö
ríkissjóöi stórar fjárhæöir.
Ef við vildum það ekki gæt-
um við til dæmis sótt um aö
halda heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu ár-
iö 199K. Lauslega áætlað
mundi það kosta ríkissjóö
hátt í 300 milljónir. Það
munar um minna," sagði
Eggert.
Að sögn Ólafs G. Einars-
sonar menntamálaráð-
herra liggur nú fyrir erindi
frá Handknattleikssam-
bandinu um fjárstuðning
gegn því að hætta við
heimsmeistarakeppnina
1995 og von er á beiðni frá
Háskólanum á Akureyri
um hækkun kennaralauna
gegn því að hætta við að
taka upp kennslu í heila-
skurðlækningum.
„Mér líst vel á allar þess-
ar tillögur. Það er auðséð
að fólk er almennt tilbúiö
að hlaupa undir bagga við
niðurskurö ríkisútgjalda."
sagði Ólafur.
Tölvur, prentarar, hugbúnaður, netbúnaður, samskiptakerfi, umbrotskerfi og alhliða þjónusta
MICROTÖLVAN
Suðurlandsbraut 12 - sími 688944