Pressan - 10.12.1992, Qupperneq 5

Pressan - 10.12.1992, Qupperneq 5
FIMMTUDAGURP££SSANlODESEMBER1992 B Æ K U R & PLÖTUR B 5 SORORICIDE, IN MEMORIAM OG STRIGASKÓR NR. 42 APOCALYPSE SKfFAN ★★★ Velkomin til helvítis. Það er dómsdagur og dauðarokkið berst til þín úr leðurklæddum hátölurum. Ef þú ert harmónikkuaðdáandi skaltu ekki verða þér úti um þessa plötu! Hins vegar finnst leðurklæddri dauðaæsku landsins fátt skemmtilegra en að skrúfa þessa plötu og aðrar svipaðar í botn og sökkva sér ofan í hratt, þungt, hægt og groddalegt dauðarokkið — og ef dauðaæskan sleppur inn Ég er nú dálítið feiminn Ólafur Gunnarsson í viðtali um Tröllakirkju Mér finnst stíllinn allt annar í þessari bók en íyrri bókum. Það er eins og þú hafir algjörlega skipt um tóntegund. Ertu sammála því? „Já, ég var mjög meðvitað að breyta til. Ég fann mikla þörf hjá mér til að endurnýja mig. Maður verður leiður á að gera sömu hlut- ina.“ En er ekkert erfitt að fara skyndilega að skrifa allt öðruvísi en áður? „Finnst þér ég hafa gert það núna algjörlega?" Já, eiginlega get ég ekki sagt annað. „Það er svo skrýtið að þegar maður kemst af stað með svona bók þá ætlar maður sér mjög meðvitað að gera eitthvað, en svo kemur bókin og tekur af manni þann ásetning og fer að ráða dálít- ið sjálf hvernig hún verður skrif- uð. Og ef verulega vel gengur fer maður að elta hana. Þetta er eins og þegar ég var að skrifa um Helga knattspyrnumann. Ég hef aldrei spilað fótbolta. Svo las ég tvær bækur um Albert Guðmundsson. Albert segir þar að knattspyrnu- maðurinn þurfi hverja einustu mínútu að taka ákvörðun um það hvað eigi að gera. Þessi ákvörðun ræður öllum niðurstöðum um úr- slit leiksins. Þetta á vel við starf rit- höfundarins. Maður er að skrifa kafla og er með þrjár til fjórar hugmyndir og verður að velja leiðina." En hafðirðu auga á einhverj- um rithöfundum við samningu bókarinnar? „Það er kannski ekki rétt að það komi nokkurs staðar ffam en Sjálfstætt fólk var alltaf dálítið nærri mér þegar ég var að skrifa bókina. Ég hef alltaf verið mjög hrifinn afþeirri bók og mér finnst hún vera ein af mestu skáldsögum sem hafa verið skrifaðar. Ég er al- veg handviss um að hún er í þess- um fimmtíu bóka hópi í heimin- um. Hún hefur ejtthvert jarðgrip sem gerir hana einstaka. Ég var kannski líka með rólegri verk Hamsunsíhuga." En af hverju valdirðu sjötta áratuginn? „Hallgrímskirkjumótífið spilar inn í alla söguna og þessi sam- keppni sem minnst er á fór raun- verulega fram og var þetta ár, 1928, og ég varð að miða tímann við það. Mér fannst einnig að ég hefði ákveðið frjálsræði með þessu móti. Ég hefði þá ímyndað- an heim sem ég hefði meira frelsi í heldur en í samtíma sem engin leið er að vinsa úr. Sjáðu til, gleði manns sem skrifar ævintýri felst í frelsi ímyndunaraflsins í viðfangs- efninu. Þetta er svipað.“ Þú hefur verið lengi að skrifa þessa bók. „Ég byrjaði á henni ’87 og gerði af henni eina gerð sem ég hugsaði sem nóvellu. Til allrar hamingju afstýrði Þorvaldur í Forlaginu því að hún kæmi út, hann sagðist skynja söguham undir frásögn- inni sem hann sagði að ég gæti ekki gefið í skyn með stikkorðum, ég ætti að vinna þetta meira. Ég varð náttúrlega harmi sleginn en fór að ráðum hans. Svo kláraði ég einhveija gerð af henni ’88 sem ég henti og svo var ég eitt og hálfi ár að klára hana, vann sex daga vik- unnar frá morgni til kvölds." Nú lield ég að flestir séu á þeirri skoðun að þetta sé lang- besta bók þín. Viltu gera athuga- semd við það? „Það er erfitt fyrir rithöfund að dæma um slíkt, maður missir fljótt áhugann á bókum sínum. Jú, ég held að þetta sé langviðamesta skáldverk mitt. Æi, ég er nú dálítið feiminn við að segja eitthvað um þetta verk mitt.“ Ætli ég verði þá ekki að taka af þér ómakið. Seigur höfund- ur með sitt mesta verk ÓLAFUR GUNNARSSON TRÖLLAKIRKJA FORLAGIÐ1992 ★ ★★★ OÞað sem sérstaka athygli vekur þessi bókajól er að þrír skáldsagnahöfundar skila nú af sér sínum bestu verk- um. Þessir höfundar eru Einar Kárason, Vigdís Grímsdóttir og Ólafur Gunnarsson. Bókmennta- unnendur ættu að gæta þess að þann skelfilega atburð er hendir son hans. Þetta er einnig bók um vanmátt manneskjunnar og vam- arleysi gagnvart hræðilegum öfl- um tilverunar. Það illa sem hendir fólk gerist off af hreinni tilviljun, einfaldlega vegna þess að fólk var statt á ákveðnum stað á tiltekinni stund eða beygði til hægri í stað vinstri. Og það er röð slíkra tilvilj- unarkenndra atvika sem verður til þess að líf aðalpersónanna er lagt í rúst. Gunnlaugur Ástgeirsson sagði á Rás 1 í lofsamlegum dómi um þessa bók að hún fjallaði meðai annars um öryggi og öryggisleysi. Og þessi þrá persóna eftir öryggi mitt í öryggisleysinu endurspegl- ast að mínu mati hvergi betur en í lokaorðum bókarinnar þar sem Þórarinn talar til föður síns og veit fullvel af vonlausri aðstöðu þeirra. Það felst örvæntingarfull blekk- ingarvon í orðunum: „Ef ske kynni... þá vill hún kannski...“ f byrjun bókar er frásögnin afar hæg og ofur nákvæmnisleg. Um tíma jafnvel um of og það má velta „Seinnihluti bókar- innar er með því magnaðra sem sést hefur í íslensku skáldverki síðustu / • « arin. því fyrir sér hvort bókin hefði ekki grætt á því að fyrri hlutinn hefði verið styttur örlítið. Ég er helst á því, en viðurkenni um leið að hin rólega og næstum nostursamlega frásagnaraðferð gegnir ákveðnu hlutverki. Hún leiðir til þess að sá atburður sem gerist nákvæmlega um miðja bók og veldur straum- hvörfum í lífi persóna kemur les- andanum í opna skjöldu. Eftir það kemst þvílíkur skriður á atburða- rás að með ólíkindum er og seinnihluti bókarinnar er með því magnaðra sem sést hefur í ís- lensku skáldverki síðustu árin. Ólafur Gunnarsson kann að láta enga þessara bóka ffamhjá sér fara. Ólafur Gunnarsson hefur um langt skeið verið í hópi athyglis- verðustu rithöfunda þjóðarinnar. Hann hefur sent frá sér djarfar bækur og frumlegar, nokkrar mjög góðar. Nú hefur hann skrif- að sitt mesta verk. Skáldsaga hans Tröllakirkja gerist á sjötta áratugnum. Aðal- persónan er Sigurbjöm Helgason arkítekt sem eitt sinn vann hjá húsameistara ríkisins. Sigurbjörn á sér háleita drauma um að reisa stórbyggingu. Óvæntur og átak- anlegur atburður sem snertir Þór- arin yngsta son hans verður til að kippa öllum stoðum undan til- veru Sigurbjörns og gera drauma hans að engu. Á bókarkápu segir að þetta sé skáldsaga um sekt og fyrirgefn- ingu, manninn og Guð. Það er nokkuð til í því en fyrst og fremst er þetta verk sem fjallar um skömmina. Sigurbjörn fær ekki lifað með þeirri skömm sem hon- um finnst fylgja sér og sínum effir Sororicide er hápunktur plöt- unnar, enda ólíkt hinum hljóm- sveitunum búin að gefa út plötu; hina frábæru „Entity“ sem kom út í fyrra. Þeir verða varla þéttari en hér. Strigaskór nr. 42 eru líka skemmtilegt band, þyngst af þessum þremur og fjandi gott. In Memoriam er svo sem ágætis band líka en síst af þessum þrem- ur. Þeir eru dálítið villuráfandi í drununum og söngvarinn er ekki sannfærandi rymjari. Dauðarokk tekur á og er ansi þreytandi fyrir óvana til lengdar. Það væri líka gaman að heyra þessa stráka spila eitthvað annað en þessa rosalegu keyrslutónlist. Það er líf eftir dauðarokk. Gunnar Hjálmarsson á stað þar sem eitthvað af þessum þremur böndum er að spÚa getur hún stundað hausaskak, slamm eða jafnvel hent sér fram af svið- inuofaníkösina. Þær þrjár sveitir sem hér eru mættar eru sterkustu fulltrúar dauðarokks á fslandi. Þær hafa allar æff stíft í bílskúrum, líklega árum saman, sé miðað við hrika- legan þéttleika þeirra og samæf- ingu. Þetta eru strákar sem eru þrælöruggir á hljóðfærin sín og þeir þeytast í gegnum lögin af krafti æskunnar, eins og Hrafn Gunnlaugsson mundi orða það. Það er annars skrítið að Hrafn skuli ekki hafa leitað til þessara pilta með sándtrakk fýrir „Hvíta víkinginn" í huga — fátt hefði passað betur en góður slatti af dauðarokki. Það eru þrjú lög á hljómsveit á plötunni, öll á ensku nema eitt með In Memoriam. Textamir eru off bráðfyndnir; forynjur, púkar, dauði, eilíff myrkur, Guð, djöflar, morð og fleira er dauðarokkur- unum hugleikið. Þeir hafa örugg- lega lesið helling af hasarblöðum, spilað mörg tölvuspil og jafnvel kíkt í læknisfræðirit á latínu. Ef taka ætti textana alvarlega mætti ætla að meðlimir sveitanna lifðu í þunglyndi og eilíffi ógn. Vonandi er ástæðan þó sú að þeim finnst þetta dauðahjal bara töff. Text- arnir eru auðvitað fluttir með eins djúpum rym og hægt er — stundum heldur maður jafnvel að Guðmundur Jónsson sé mættur með Jón tröll á 16 snúningum. Verk Ólafs Gunnarssonar UÓÐ 1970 ★ Lítil nett söguljóð úr undirheimum Reykjavíkurborgar. Það grillir í hæfi- leika. Upprisan 1976 H Fremur lífvana skáldskapur. Ber hins vegar vitni um mikla löngun og virðingarverða við- leitni til að verða skáld. HROGNKELSIN 1977 ★★ Smásaga. Lífsreynsluhjal konu, skrif- að á óvönduðu talmáli. Óvenjuleg saga og býsna skemmtileg, hefði getað nýst vel í skáldsögu. Henni lýkur eiginlega þegar hún er að byrja. MILUÓN PRÓSENT MENN 1978 ★★★ Svellandi skemmtileg bók. Frásagn- argleðin ómæld, sums staðar ívið margmál en úr því síðar bætt. Mun byggja á reynslu höfundar sem stundaði nám í Verslunarskólanum og átti að verða viðskiptamógúll. LJÓSTOLLUR 1980 ★★★ Djarfasta bók sem höfundur af þess- ari kynslóð hefur gefið út. Vakti um- tal, hneyksli og deilur. Mögnuð lýs- ing á hörkulegum og beinlínis skepnulegum karlaheimi- GAGA 1984 ★★★ Stutt en hrollvekjandí saga um mann sem vaknar einn dag og telur sig staddan á Mars. Vérulega frum- legt verk og .culC-bók. HEILAGUR ANDI OG ENGLAR VfTIS 1986 ★ ★ Imyndunarafl höfundar lék lausum hala í sögu um mann sem fær vitr- un frá himni. Ef frásögnin nálgast stundum þreytandi fíflaskap pá er pað fyrirgefið vegna bréfs sem söguhetjan skrifar til jarðarbúa, það er snilldarlega samið og flygi inn í sýnisbók af því besta sem skrifaö var hér á landi á níunda áratugnum. FALLEGI FLUGHVALURINN 1989 ★★ Ljúf og indæl barnasaga um hvala- strák sem kann að fljúga og bjargar jörðinni frá varanlegu sólskinsleysi. SÖGUR ÚR SKUGGAHVERFINU 1990 ★★ Tvær sögur. Sú fyrri er verulega góð og einkennist af mikilli frásagnar- gleði en sú seinni um tímavélaráp er öllu slappari. MILUÓN PRÓSENT MENN (endurbætt útgáfa) 1991 ★★★ Styttri og slípaðri gerð sögunnar sem kom út 1978. skapa persónur. Þær eru dregnar skýrum dráttum, eru trúverðugar, fremur hversdagslegar að Sigur- birni undanskildum. Samtöl eru mjög vel gerð. Stfllinn býr yfir ró og ögun, er gjörólíkur þeim hráa, dálítið kærulausa stíl sem ein- kennir mörg fyrri verk höfundar. Ólafur Gunnarsson hefur skrif- að eina afþrem bestu skáldsögum þessa árs. Þetta er feiknavel hugs- uð saga sem býr yfir dramatískum þunga, skáldsaga sem kemur les- andanum beinlínis úr jafnvægi. Svo áhrifarík er hún að það er býsna erfitt að losa sig undan mætti hennar. Ólafur Gunnarsson hefur stundað ritstörf í tvo áratugi og hann er einn þeirra höfunda sem hafa þurft að berjast fyrir sínu. Seigla hans hefur örugglega kom- ið honum til góða við samningu þessa verks. Þetta er verk sem ég held að hver einasti gagnrýnandi skynji að hefur kostað mikla vinnu og yfirlegu. Fæstir hafa efast um hæfileika ðlafs Gunnarssonar en ýmsum hefur fundist sem hann hafi ekki fullnýtt þá í fyrri verkum, sem mörg hver eru reyndar svo óvenjuleg að þau geta ekki verið við allra hæfi. Og nú hefur rithöfundurinn, sem áður skrifaði sig frá eldri höfundum, skrifað sig í átt til þeirra með hefð- bundinni skáldsögu. Ólafur tók áhættu með samningu þessa mikla verks. Sú áhætta hefur margborgað sig. Bókin er tilnefnd til íslensku bókmenntaverðlaunanna og nefndarmenn skandalíseruðu ekki í því vali. Verkið er tileinkað Alfreð Flóka sem eitt sinn faðmaði höfundinn að sér og sagði: „Þú ert afskaplega talenteraður rithöfundur, elsku drengurinn minn.“ Flóki vissi hvað hann söng. Kolbrún Bergþórsdóttir

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.