Pressan - 30.12.1992, Page 20

Pressan - 30.12.1992, Page 20
20 JÚNÍ „Við erum alveg í sjokki.“ Farþegar Sólarfiugs. „Þetta íslenska veiðimanna- hugarfar, að verða ríkur í gær er stórhættulegt.“ Davíð Scheving Thorsteinsson vatnsútflytjandi. „Ég ráðlegg þeim sem ætla að fara í fylu út af veðrinu að gera það strax - þá er það búið.“ Trausti Jónsson rigningarspámaður. „Það er búið að rústa fuglalífið í eyjunni með þessu og þar með frístundaverkefni mitt í tuttugu ár. Þetta hefur verið rif- ið niður eins og hendi væri veifað fyrir eitthvert dekur- verkefni." Guðjón Jónatansson eftirlitsmaður ( Gróttu. „Égog Pólverjinn [Bogdan] elskuðumst ekki!“ Sigurður Sveinsson handboltahetja. „Það eru kannski tíu mann- eskjur á landinu sem hafa vit á umhverfismálum og engin þeirra vinnur í ráðuneytinu." Einar Valur Ingimundarson náttúruverkfræðingur. JÚLÍ „Annars er það helst álið sem hefúr sýnt aukningu og það sannfærir mig um að í því sé framtíðin fólgin.“ Jón Sigurðsson álráðherra. „Ath. Þetta er ekki tilraun til fyndni." Árni Þór Sigðurðsson ritstjóri Helgar- blaðsins. „Þetta er gífurleg vinna og ég er til dæmis að fara í vinnuna núna.“ Salóme Þorkelsdóttir á mánudagsmorgni. „Alþýðubandalagið [er] nú í svipaðri stöðu og Framsóknar- flokkurinn var, þegar aðild að EFTA var á dagskrá fyrir 20 ár- um og mikið var rætt um jájá og neinei stefnu fhamsóknar- mánna.“ Björn Bjarnason kaldastríðsrítstjóri. „Við, sem erum annarrar skoð- unar en Hafrannsóknarstofn- un, megum búa við að það er híað á okkur.“ Kristinn Pétursson fiskimaður. „Nú er eins og maður sé að lesa upp úr Njálu; Gunnar, Geir og Héðinn.“ Samúel Örn Erlingsson Islendingur í Barceloria. „Stundum er gaman að fróa sér á nýjum stöðum.“ Jóna Ingibjörg kynfræðingur. „Ef ekki hefðu komið til vaxta- greiðslur af lánum og aðrar fjármagnshreyfingar hefði hún skilað 200 milljónum krónum í hagnað." Markús Örn Antonsson skuldari. „Ég komst aldrei í að tengja seríu við skrokkinn. Ég hafði gott átak á áhaldinu en var með hugann við fæturna.“ Einar Vilhjálmsson spjótkastari f Stokkhólmi. „Við útfararþjónustu sitja allir við sama borð og enginn er af- skiptur. f fyllingu tímans nýtur hennar hver og einn.“ . Jón Á. Gissurarson. „Viðsemjendur hlógu að okkur rétt eins og við værum ofstopamenn og vitleysingar." Birgir Björgvinsson sjómannafélagi. MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992 ANNÁLL 1992 S S 4 V Atí $j£a%a) INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR ÞINGKONA: „Ár hinnar seigdrepandi málgleði.'1. Skoðanaskipti ársins? „Ef ég lít mér næst, eru mér minnis- stæðust orðaskipti mín við Hjörleif Guttormsson vegna EES.“ SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR ÓPERUSÖNGKONA: „Ljósár, því það leið svo hratt og var svo bjart." Tónleikar ársins? , jírið var svo viðburðarrfkt hjá mér sjálfri að ég kemst ekki hjá þvf að nefna þrenna tónleika mína. I fyrsta lagi þegar ég stóð ein og í fýrsta sinn uppi á sviði Gamla bíós í síðum kjól, svo þegar ég söng sem fúlltrúi ís- lands fýrir fjögur þúsund manns á tónleikum í Vilnius og síðast en ekki síst þegar ég söng á vortónleikum í St. John í London." KRISTJÁN KRISTJÁNSSON TÓN LISTAR M AÐU R: ,Ar endurtekninga í tónlist.“ Mesti blús ársins? „Margir góðir menn féllu í valinn, svo sem Haukur Morthens, Karl J. Sig- hvatsson og Guðmundur Ingólfsson." Matthías Bjarnason hefur ekkert á móti sæ- greifum. í raun er það helsta sorg hans að hafa ekki hlotið sjávarútvegsráðherradóm- inn 1974 ævilangt, því hann hefir í raun aldrei komist yfir valdamissinn. Á móti hefir honum hlotnast það að skjóta Þorvaldi Garðari ref fyrir rass í eitt skipti fyrir öll. En jafnvel það virðist ekki nægja. Æ síðan Matti missti ráðherrastólinn hefur hann litið út fyrir að vera nývaknaður og úrillur hvenær dags sem er (og hvenær árs sem er ef út í það er farið). Sem væri sosum í lagi ef hann væri ekki eins til skapsins og útlitið segir til um. Matthías hefir nefnilega ekkert á móti pólitíkinni hjá þessum piltum fyrir sunnan og kann meira að segja ágætlega við Davíð að mörgu leyti, því hann er einn örfárra, sem nennir að hlusta á gamansögur Matta af Hagalín. Nei, það sem plagar Matta er einfaldlega skapstirðnin og sú staðreynd að heimurinn hefur breyst frá því hann var og hét. Og það batnar ekki með árunum. Konungurinn er látinn. Lengi lifi konungur- inn! Vandi Halldórs Ásgrímssonar, erfða- prins Framsóknarflokksins, er sá, að þrátt fyrir að Steingrímur konungur sé allur, er Steingrímur Hermannsson það ekki og þangað til kemur kallið ekki. Steingrímur lítur greinilega á andstöðu sína við EES sem síðasta hálmstráið til þess að hans verði minnst fyrir eitthvað annað en græn- ar baunir, plat og sjóðasukk. Að dómi Hall- dórs gat Steingrímur ekki valið sér óheppi- legri málstað og ákvað að láta hann heyra það með eftirminnilegum hætti á flokks- þinginu í haust. Um leið gaf hann mjög ákveðið til kynna að Steingrímur hefði aðeins eitt tækifæri enn til þess að Ijúka ferlinum með sæmilegum hætti. Allir vita að Halldór verður næsti formaður Framsóknarflokksins og að það er aðeins tímaspursmál hvenær af því verður. Og þó svo menn vilji ógjarnan sparka í Steingrím vilja þeir enn síður styggja hinn verðandi formann. Halldór hefur leikið öll kortin sín rétt, sýnt að hann er slyngur stjórnmálamaður innan flokks og jafnframt sýnt ábyrgð út á við, sem kannski er ekki síður nauðsynlegt ef bjarga á flokknum frá því að steingerast. Þetta gerist örugglega úti í heimi á árinu 1993 Fyrirfram séð verður árið 1993 verður stóráfallalaust á alþjóða- vettvangi. Krísurnar gera ekki boð á undan sér, en stórstyrjaldir eru varla I kortunum. Hér er sumt af því sem búið er að setja á dagskrá. JANÚAR • Innri markaður Evrópubanda- lagsins tekur gildi. Hann nær til tólf landa og 350 milljón manna. Ann- að eins hefur ekki sést síðan á dög- um Rómaveldis. • Danmörk tekur við forsæti í Evrópubandalaginu. • Hið sjötíu og fimm ára gamla sambandsríki Slóvakíu og Tékk- landa leysist upp. • Kosningar haldar í Mónakó, Níger og á Arúba-eyju í Karíbahafi. • Bandaríkjamenn Ijúka brott- fiutningi herliðs frá Filippseyjum. • Herstjórnin í Nígeríu lætur völdin í hendur borgaralegri ríkis- stjórn. • Bill Clinton verður forseti og Al Gore varaforseti Bandaríkjanna. • Ár hanans byrjar i Kína. Febrúar • Kosningar á gríska hluta Kýp- ur, í Senegal, Tonga og á Salóm- onseyjum. • Ramada-trúarhátíð múslima byrjar. • Tvö hundruð ár frá því Lúðvik sextándi Frakkakóngur var líflátinn. • Þýska þingið byrjar umfjöllun um nýfjárlög. • Breski verkamannaflokkurinn eitt hundrað ára. MARS • Þingkosningar í Frakklandí. • Forsetakosningar í Indónesiu. • Óskarsverðlaun afhent í Hollywood. • Nýir (og þó gamlir) valdhafar taka við f Kína. APRÍL • Kosningar í Irak. Saddam Hussein sigrar. • Kosningar um nýtt kosninga- fyrirkomulag á (talíu; kosningar um nýtt stjórnkerfi i Brasilíu; Erítrear greiða atkvæði um sjálfstæði frá Eþíópíu. • Kosningar í Kambódíu undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna; fyrstu fjölflokkakosningarnar í Ke- nýa; kosningar í Kamerún. • Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. • Austurríki tekur við forsæti i Evrópuráðinu. • HOOárfrá þvíDanirlögðu Thames-dal i rúst. ■ST %^SPin.9#r' Bolivíu. • Austur-Asíuleikar í Sjanghæ. • Kvikmyndahátíðin í Cannes. • Fyrsta afhending verðlauna i nafni rússneska nóbelsverðlauna- hafans og andófsmannsins Andrei Sakharovs. JÚNÍ • Kosningar í Austurríki eigi síð- . arennúna. • Robin Leigh-Amberton hætt- ir sem Seðlabankastjóri Bretlands og Arthur Dunkel sem æðsti yfir- maður í GATT. • Fertugasta flugsýningin í Par- is. • Toppfundur forsætisráðherra og forseta innan Evrópubanda- lagsins. • Mannréttindaráðstefna Sam- einuðu þjóðanna byrjar í Vínar- borg. • Fjörtíu ár frá því Edmund Hill- ary og Tenzing Norkay komust á tind Mount Everest. JÚLÍ • Utanríkisráðherrar ASEAN- ríkjanna hittast í Singapore. • Belgía tekur við forsæti i Evr- ópubandalaginu. • Kosningar til Diet, neðri deildar japanska þingsins. • Leiðtogafundur Karabíska Efnahagsbandalagsins. • Leiðtogar G7, sjö helstu iðn- ríkja heims, hittast í Japan. • Leiðtogafundur Efnahags- bandalags Vestur-Afríkuríkja. ÁGÚST • Rússneski herinn yfirgefur Lit- háen. • Kosningar í Paragvæ. SEPTEMBER • Hans Tietmeyer tekur við af Helmut Schlesinger sem aðalgjald- keri Evrópu, öðru nafni Seðla- bankastjóri Þýskalands. • Kosningar í Hollandi. • Olíumálaráðherrar OPEC-ríkja hittast. O Kosningar í Noregi eigi síðar en núna. • Leiðtogafundurfrönskumæl- andi ríkja. • Bílasýningin iTókýó. NÓVEMBER • Kosningar í Kanada eigi síðar en núna. • Væntanlegur leiðtogafundur Bandaríkjanna og Evrópubanda- lagsins. • LeiðtogafundurG15, fimm- • Bílasýningin í Frankfurt. • Alþjóðleg ráðstefna al- mannasamtaka í umhverfisvernd i Lundúnum. • Fundur Alþjóðabankans og Alþjóðgjaldeyrissjóðsins í Wash- ington. • Alþjóðaólympíunefndin ákveður hvar leikarnir verða haldn- irárið 2000. • Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefst. • Gyðingar byrja árið 5754. OKTÓBER • Tilkynnt um úthlutun Nób- elsverðlauna. • Kjörtímabili Hosni Mubarak, forsætisráðherra Egyptalands, lýk- urog annað tekurvið. • Bókasýningin í Frankfurt. • Kosningar á Spáni og Nýja- Sjálandi eigi siðar en núna. tán þróunarríkja. • Alþjóðavörusýningin í Santiagó i Chíle. • Maraþon-hlaupið í New York. • Kosningar í Hondúras. • Olíumálaráðherrar OPEC-ríkja hittast aftur. Desember • Forseta- og þingkosningar í Chíle. • Forseta- og þingkosningar í Venesúela. • Leiðtogafundur Evrópu- bandalagsins í Brussel. • Utanríkisráðherrar RÖSE-ríkja hittast. • Leiðtogafundur Samstarfs- ráðs Suður-Asíuríkja. • Göngin undir Ermarsund formlega opnuð (kannski). • Fríverslunarsvæði Norður- Ameríku tekur gildi á morgun.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.