Pressan - 30.12.1992, Blaðsíða 25

Pressan - 30.12.1992, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR PKESSAN 30. DESEMBER 1992 25 ANNÁLL1 Báðir hafa þeir myndað sterk tengsl við orkuna, Yoda álfurinn góði úr Star Wars og Halldór Jónat- ansson, forstjóri Landsvirkjunar. Og báðir hafa tví- fararnir sama yfirbragð góðra vætta: dádýrsaugu, góðlegt glott og hátt og viskulegt enni. Af myndinni af David Ben-Gurion heitnum, fyrrum for- sætisráðherra ísrael má Ijóslega sjá hvernig Davíð Oddsson, forsætisráðherra mun líta út á efri árum. Það sem eftir er af hári Ben-Gurions er eins og hárið á Davíð. Sömu sögu er að segja um alit hitt: nefið er eins, brosið er eins, hakan eins og meira að segja eyrnasneplarnir eru eins. Hinrik n. konungur sat stutt aö völdum í Frakk- Landi á sextándu öld og að sama skapi sat Jónas Jónasson stutt á valdastóli útvarpsstjóra á Akur- eyri. Angun, nefið og skeggið eru eins iy á tvíf ör- unum og auk þess eru báðir þekktár fyrir afburða- snyrtimennsku í klæðaburði. Enginn man lengur eftir Bud Spencer, þeim feitari af Trinitybræðrunum og Birni Grétari Sveinssyni, for- manni Verkamannasambandsins. Enda virðist eitt- hvað vera við útlit þessara nauðalíku manna, sem fær fólk til að gleyma þeim hratt og örugglega. Þaö er lygilega mlkill svipur meö þeim, Dr. Hasting Banda, fyrsta forseta Mala- wi og Biöi Guönasyni ráðherra. Báöir eru sundurgeröarmenn í klæöahurði og þykja ákveðnir og stjórnsamir. Reynd- ar hefur Eiöur aldrei sést brosa jafn- breitt og Dr. Banda og eins er hann nokkru fölari. Þeir eru ekki likir, Haukur Halldórs- son, formaður Stéttarsambands bænda og Hinrik Englandskonungur VIII. Þeir eru eins. Gj arðarvíddin er sú sama og sömu- leiðis skeggvöxturinn, brúnaþunginn, roðinn í kinnum og siðast en ekki sist kónganefið. Séra Jón Dalbú Hróbjartsson og fréttamaðurinn Þórir Guðmundsson eru sem eitt. Báðir hafa hinn hreina svip sakleysingjans, neyðarlegt brosið er það sama og hárgreiðsla beggja jafnafgerandi og sviplaus. Ofan á bætist að fatasmekkurinn er eins. Ótrúlega margt er líkt með þeim Herdísarvíkur-Syrtlu, þekktustu rollu aldarinnar, og Steingrími J. Sigfússyni, þingmanni. Bæði eru þau langleit, með smá augu og loðin á neðanverðu andlitinu. Stór munur er þó á höf- uðlaginu, því hún er hyrnd en hann kollóttur. SEPTEMBER „Það er búið að vera að skamma mig I heilt ár íyrir að pína sjúklinga, gamalmenni og ég veit ekki hvað. Er þetta þá allt bara vitleysa, bara mis- skilningur?" Sighvatur Björgvinsson niðurskurðarhnífur. „Það er eitthvað magnþrungið hér í Laugardalnum sem ég get ekki misst af.“ Einar Vilhjálmsson veðurfræðingur. „Ert þú Santos? Komdu hérna. Við erum frá Stöð 2 hérna. Við viljumtalavið þig.“ Ólafur E. Jóhannsson fréttahaukur. „Þetta er bara ævintýri." Santos. „Ég er ósköp hógvær hún- vetnskur lektor." Hannes Hólmsteinn Gissurason. „Borgarstjórn Reykjavíkur.. ,er yfirmaður Markúsar Arnar, en ekki öfúgt. Þetta verður hann að fara að skilja.“ Ólína Þorvarðardóttir borgarfúlltrúi. „Sem betur fer hef ég alltaf ver- ið frekar gefin fyrir böm.“ Björnfríður Ó. Magnúsdóttir 17 barna móðir. „Þegar ríkisstjómin er lítil og vandinn stór, má búast við skópissingum.“ Jónas Kristjánsson leiðarahöfundur. „Það fór starfsmaður á klósett- ið og fann einhveija gaslykt.“ Sigurður Gunnarsson verslunarstjóri (Bónus. „Ég er eins og filamaðurinn, allur vafinn um höfúðið og heldur ósjálegur.“ Einar Garðar Hjaltason forseti bæj- arstjórnar á (safirði. „Það virðist færast fjör í rann- sóknarstörf tannlækna fyrir jól og hátíðir því þá seljum við þeim meira.“ Höskuldur Jónsson forstjóri ÁTVR. OKTÓBER „Ég legg á það áherslu að ég er kominn til að vera.“ Markús Örn Antonsson borgarstjóri. „Ég hef sagt það áður að ef við fáum ekki leiðréttingu okkar mála verður haldin hér mesta brenna sem sögur fara af þegar trillurnar fara á eldinn.“ Arthur Bogason trillutröll. „Síðast en ekki síst verða stjómvöld að kenna fólki að vera atvinnulaust." Páll Kr. Pálsson framkvæmdastjóri. „Ég hætti ekki við þessar að- stæður í þjóðfélaginu." Steingrímur Hermannsson fjallkona. „Ég veit ekki hvort mönnum finnst það fúrðulegt að ég skuli hugsa mig um áður en ég neita að taka við opinberu fé.“ Kári Þorgrímsson bóndi. „Það getur vel verið að ég sé leiðindagaur.“ Jóhannes Jónsson útvarpshlustandi. „Ég hef heyrt að sumir ímyndi sér að ég sé með eitthvert gjafa- kjöt. Það er mikill misskilning- ur enda er ég ekki 1 neinni sjálfsmorðsherðferð." Kári Þorgrimsson bóndi. „Ég er hins vegar sannfærður um að ef á að létta á sjávarút- vegsfyrirtækjum með því að skattleggja almenning þá syng- ur allt í sundur.“ Guðmundur J. Guðmundsson for- maðurDagsbrúnar. Það leikur ekki nokkur vafi á því lengur að Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitenda- sambands Islands, er fyrirmyndin að bamabókahetj- unni Valla víðförla. Því er það engin tilviljun að „vaffið" hans Þórarins stendur fyrir „Valli". Stórhættulegur vélbyssukjafturinn er ekki það eina sem þeir Hannes Hólmsteinn Gissurarson dósent og banda- ríski sjónvarpsmaðurinn David Lettermann eiga sam- eiginlegt. Ef bornar eru saman mynd af Hannesi og teikning af Lettermann, er vart hægt að trúa því að ekki sé um einn og sama mann að ræða. Khalid heitinn konungur af Sódí-Arabíu og Ingólfur Guðbrandsson ferðafrömuður eru nauðalíkir í úHifi, en ekkert skal þó fullyrt um innrœtið. Bóðir eru kappamir mjög dökkir yfirlitum, með kónganef, sérkennilegan skeggvöxt og Irtil kvik augu, með baugum hins ihugula manns. Vart má á milli sjá, hvor þessara ungu lista- kvenna er Móeiður Júniusdóttir söngkona og hvor bandaríska leikkonan Uma Thurman. Enda er allt eins hjá þeim stúlkunum: renni- slétt hárið, augabrúnimar, seiðandi augun, nefið og þykkar varimar.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.