Pressan - 30.12.1992, Side 29

Pressan - 30.12.1992, Side 29
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 30. DESEMBER 1992 29 Frjálst,óháð dagblað 293. TBL - 82. og 18. ARG. - ÞRiPJUDAGUR 22. DESEMBER 1982. verdTuí jamMr: tjórnarandstaðan e hæftil samninaa r Jón Baid\dn Hannij fyrir du/arg " a^yndinn»eru5verðirúrL^~.Með;hon. HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HUÓMAR 51. tbl 3. árgangur GULA PRESSAN Miðvikudagur 30. desember Einkaviðtal GP við Gvend Jaka í höfuðstöðvunum á Flórída „Þá herða menn bara sultarálina” Jólasveinn á sólarströ ■ iirg >*? „Auðvitað erþetta ekkert annað en stríð/'sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður verka- mannafélagsins Dagsbrúnar, þar sem blaðamaður GP hafði upp á honum ídulargervi á ótilgreindum stað á Flórída á öðrum degijóla. Allt frá félagsfundi Dagsbrúnar í Bíóborginni á dögunum hefur Guðmundur farið huldu höfði, en fyrirótrúlega röð tilviljana tókstGP að finna verkalýðsfrömuðinn í glæsilegri en afvikinni villu. Guð- mundur féllstgóðfúslega á að veita GP einkaviðtal. CMandi, 30. desember. „Stríð er stríð,“ segir Guðmundur og sýpur á vænum Tequila Sunrise. „Ef það kostar það að ég þurfi að fara huldu höfði og stýra aðgerðum neðanjarðar, þá tel ég slíkan herkostnað ekki eftir mér.“ En er Flórída heppilegasti staðurinn?“ „Tvímælalaust. Eg játa það að mér varð ekki um sel að setja upp stjómstöð verka- lýðsins hér í þessu höfuðvígi kapítalism- ans, en staðurinn hefur marga ótvíræða kosti. f fyrsta lagi myndi engum detta í hug að leita að mér hér. í öðru lagi er stutt yfir til Fídels, þannig að hér eru góðir straumar. Síðast en ekki síst má ekki gleyma því að klukkan hér er fimm tím- um á undan Reykjavík, þannig að ég er ávallt skrefi á undan auðvaldsöflunum í ReykjavíL“ En er þetta ekki dýrt? „Þegar heill og hagur reykvískrar al- þýðu er annars vegar er ekkert of dýrt,“ segir Guðmundur ákveðinn og gýtur aug- unum til myndar af Alberti Guðmunds- syni, sem hann hefur hjá sér á borðinu þarna við sundlaugarbarminn. En dulargervið Guðtnundur, er það nauðsynlegt? „Tja, sjáðu nú til,“ segir Guðmundur og tekur hrausdega í nefið. „í upphafi var búningurinn hrein öryggisráðstöfun, en ég hann varð mér fljótlega miklu meira virði. Ég fékk á tilfmninguna að hann væri í raun hluti af sjálfum mér, sem ég hafði því miður týnt um skeið... mér finnst eins og ég hafi í raun núna fyrst uppgötv- að innra eðli mitt til fulls.“ En hvernigstendur styrjöldin? „Sko... það er náttúrulega algjört hernaðarleyndarmál,“ segir Guðmundur íbygginn og dregur seiminn um leið og hann sýpur á nýju glasi, sem hörunds- dökkur þjónn færir honum. „En þetta verður langt og grimmilegt stríð.“ En er ekki ósennilegt að verkamenn séu til stórrœðanna nú? Jól í fullum gangi, Vísa-nóturnar koma af fullum þunga íjanúar ogfebrúar ogsíðan er at- vinnuástandið almennt varla þannig vaxið að verkföll komi vel viðfólk... „Við skulum hafa eitt alveg á hreinu. Þetta er stríð og það kostar fórnir. Það má enginn skorast undan! Ef það kostar að menn þurfi að herða sultarólina, nú þá herða menn hana bara, en við erum ekki hræddir við að berjast við þessa karla, sem þekkja ekki alvöru verkamanna- vinnu frekar en... öhö... jólasveinninn.“ Fleiri kraftaverk: Fékk sjónina á samkomu hjá Krossinum: HENTI SINNIA DYR Ég skil ekki afhverju enginn sagði mérhvernig hún leit út, - segir Hjalti Karlsson og segist ekki trúa öðru en honum standi eitthvað betra til boða. Og ein gleðiffétt frá liðnu sumri í lokin: Sameinuðu þjóðirnar íhuga Merkur fornleifafundur við Aðalstræti að kaupa Sambandið SAMBANDID ER EFNAHAGS LEGT GEREVBINGARVOPN SegirBoutros Boutros-Ghali, aðalritari Sameinuðu þjóð- ana, og vill nota það til að knésetja Serba. REYNDIST EKKI BÆRINGÖLGS HELDUR ENN EIN FALIN EIGN ÖLAFS LAUFDAL Ekki bær Ingólfs, heldur Óla Laufdals. Framlag þitt skilar árangri HJALPARSTOFNUN KIRKJUNNAR - með þinni hjálp SPBSN Sparisjóður Reykjavíkurog nagrennis Gíróseðlar liggja frammi í bönkum og sparisjóðum

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.