Pressan


Pressan - 30.12.1992, Qupperneq 32

Pressan - 30.12.1992, Qupperneq 32
4 s \*J ú staða sem upp er komin vegna trygginga á fiskeldislyrirtækinu Kleifum í Straumsvík hjá Skandia ísland hf. er næsta einkennileg. Eftir að ljóst var að gífurlegt tjón hafði orðið í stöð- inni komu fulltrúar tryggingafyrirtækisins og tóku allt út og virtist í fyrstu ekkert hindra að tjónið yrði greitt. Síðan hljóp babb í bátinn þegar Gísli öm Lárusson og Skandiamenn sögðu að tryggingin hefði verið runnin út. Þetta kom fiskeldismönnum fullkomlega á óvart en þeir munu einmitt hafa verið ný- búnir að greiða hálfa milljón króna inn á trygginguna... s \*Jvo virðist sem prestadeilan í Keflavík sé langt frá því að vera úr sögunni. í Víku- fréttum skömmu fyrir jól er sagt frá því að sóknarpresturinn séra Ólafur Oddur Jóns- son hafi neitað því að séra Helga Soffía Konráðsdóttir fengi að sinna preststörfúm í Keflavíkurkirkju þegar aðilar innan safnaðar- ins fóru þess á leit við hann. Þá er þess getið í Vflcurfféttum að sóknarpresturinn hafi ekki séð sóma sinn í að mæta í kirkj- una er kirkjukórinn hélt afmælistónleika í tilefni 50 ára afmælis kórsins, né heldur er aðventutónleikar voru haldnir í kirkjunni fyrir jól. Framkoma af því tagi var einmitt eitt afþví sem sóknarbörnin höfðu kvart- að yfir... F _L lateyrarhreppur og íshúsfélag Isfirð- inga hafa sem kunnugt er stofnað Þorfinn hf. til að reyna að kaupa togarann Gylli, sem Einar Oddur Kristjánsson og félag- ar í Hjálmi hafa þegar selt til Neskaupsstaðar. Hreppurinn á 30 pró- sent í Þorfinni og vekur athygli að hann skuli tréysta sér út í fjárfest- ingar sem þessar. Fyrir ári síðan var pen- ingaleg staða hreppssjóðs neikvæð sem nemur 156 prósentum af árlegum tekjum og skuldir hreppsins voru 103 milljónir, sem nemur 251 þúsund krónum á hvem íbúa. Það er talið langt yfir viðurkenndum hættumörkum. Þá var rekstur Ishúsfé- lagsins í járnum 1990 og 1991 ogþróunin í sjávarútvegi ekki vænleg á þessu ári sem kunnugt er... T) -LVeiknað er með að framlag Reykja- víkurborgar til Sorpu verði rúmlega 200 milljónir króna á næsta ári, ívið minna en á árinu sem er að Iíða. 1992 var reyndar áætlað að framlagið yrði 160 milljónir, en lokatalan reyndist 210 milljónir, að kostn- aði vegna gömlu hauganna mcðtöldum. Átta sveitarfélög standa að Sorpu og er ljóst að sorphirðukostnaður margra þeirra hefur vaxið stórlega frá því sem áð- ur var, til dæmis hefur kostnaðurinn þre- ef ekki fjórfaldast hjá Seltjarnarnesbæ... m áramótin munu flugeldar og annað afþví tagi upp á nálægt 250 til 300 milljónir fuðra upp landsmönnum til skemmtunar. Ef aðeins er litið á flugeld- ana er giskað á að alls um 165 tonnum verði skotið upp í loftið. En þó 250 til 300 milljónir kunni að hljóma sem há upphæð er hún ef til vill ekki svo yfirþymandi. Hún jafngildir um 1.000 krónum á hvert mannsbarn. Miðað við að flugeldasýningin stendur allt kvöldið þá eru þetta betri kaup en fara í bíó... Kómantík gamla tímans leikur um húsið sem var byggt skömmu eftir aldamót og mtnna flcstir munír innan- stokks á þá tíma. Eins og nafnið gefur til kynna stendur veitingastaðurinn nálægt þcím stað þar sem áður var brú yfir lækinn í Lækjargötu og skóla- piltar gengu unt á leið sinni í Latínuskólann (nú Mennta- skólann í Reykjavík). Skólabrú | veitíngastaður j þarsem j hjartað slær j Skúli Hansen matreiðslumeistari og félagar hans á veitingahúsinu Skólabrú óska landsmönnum gleðilegs nýárs. Veitingahúsið er opið frá kl. 18:00 á nýársdag BORÐAPANTANIR í síma 624455 Skólobrú veitingahús v/ Austurvöll Nú liggur leiðin á veitínga- staðinn Skólabrú til að njóta fýrsta fiokks þjónustu og þess ■ besta í mafrciðslu undir stjórn Skúla Hansen matreiðslu- meistara. Skúli er í hópi okkar bcstu matreiðslumanna og geta matargestir Skólabrúar því gengið að íramúrskarandi vísri. Á efri hæðinni er vistleg bar fyrir matar- og aðra. +

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.