Pressan - 29.04.1993, Blaðsíða 2
F Y RST & FRE MST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 29. apríl 1993
í ÞESSU BLAÐI
4
Kona stefnir Borgarspítalanum
Hverersr. Gunnlaugur þingmaður?
Bætiflákar
6
Svört spá seiðskrattans
hefur illilega ræst á Islendingum
Árni Magnússon okkardaga
Hannes Hólmsteinn
styrkþegi undir öxinni
Jeppasölumaður fékk
18 þúsund dollara og gufaði upp
88i9
Er einhver framtið i Framtíðarferðum?
11
Patrekshreppur bótaskyldur
vegna snjóflóðsins 1984
12 & 13
Er rétt að selja vin um miðjan dag?
ÞrösturÓlafsson
svarar smábátaeigendum
Árni Páll Árnason um kreppuna
Óli Björn Kárason um bæjarútgerðir
14
Tíska
15
Hver verðurfegurðardrottning?
Gifting og frelsissvipting
16
Afmælisveisla handa konum
Ástfanginpór
Reykjavíkurnætur og -dætur
18
Hvernig standa íslensk fyrirtæki sig?
20 & 21
Kynlifshneykslið
ísjóhernum
Bandarikjamenn
græða á helförinni
Hver erhinn spillti bankastjóri, A ttali?
22 & 23
1. mai: Hvað segja verkalýðs-
forkólfarnir og hvað segir
verkalýðurinn sjálfur?
24
Erótískarsmásögur
sem eignaðar hafa
verið IndriðaG. Þor-
steinssyni
26 & 27
Hellingur um að vera i sumar
Helgi Björns og leitin að frægðinni
GeorgGuðni
SHdraumur
28
Draumadagskrá Ellenar
Dagskráin eins og hún er
29
Tveggja manna karfa
Maðurinn á bak við velgengni ÍR
Iþróttir
31
GULA PRESSAN
Mvnd Hrafns um
sölu Háskólabíós
út af dagskrá
Kvikmyndafyrirtækið Nýja
bíó hefur framleitt fyrir Ríkis-
sjónvarpið þátt um kaup kvik-
myndagerðarmanna á Háskóla-
bíói, en myndin var gerð að
frumkvæði Hrafns Gunn-
laugssonar, framkvæmda-
stjóra Sjónvarps. Friðbert
Pálsson, framkvæmdastjóri
UMMÆLI VIKUNNAR
„Eftirþví sem ég best veit er
salernispappír íflestum
ráðuneytum skjannahvítur
og unninn úr nýfelldum
trjám, hvað þá sá pappír
sem þjónar merkilegra
hlutverki. “
■■■ Þorvaldur Örn Árnason umhverfisvinur
vmkonur
„Það fyrsta sem ég
fékk eftir sigurinn var
súkkulaðisnúður ff á
vinkonum mínum, en
þegar ég kom heim um
nóttina gat ég lítið sof-
ið.“
Kjartan Cuðbrandsson
líkamningur
Eins og veðrið
hefur verið und-
anfarið mætti
svo sem sleppa
því!
„Fólk sem vill fá sínar
veðurfr éttir á að geta
fengið þær í sama
pakkanumogffétt-
irnarsínarán þess að
meðtaka auglýsingar
áður.“
Bogi Ágústsson
fréttahaukur
—Og ég sem var næsturT röBirni!
„Ég er hætt að eltast við karlmenn og nú ætla ég að snúa mér að því að
gera kvikmyndir sem eru merkilegar og hafa mikinn boðskap ff am að
færa.“ Cher plastdúkka 1T
Hverni,
Er Imnii tominn
úf úr slsuminm?
„í tuttugu ár er ég búinn að
vera að æfa mig undir það
að verða leikhússtjóri á Ak-
ureyri — hann þarf að
kunna allt.“
Viðar Eggertsson
eggleikhússtjóri
s ætli
heimilislbók-
haldið sé?
„Upphæðimar, sem
við fáum veittar, era
það lágar að það er
ekki hægt að sam-
ræma áætlanir fjár-
veitingum."
Sigurður Gizurarson
eyðslukló.
AÐSTOÐAR
TOM CRUISE
fisk. Enginn skortur er á miðl-
ungsþekktum viðskiptafræð-
ingum í bókinni, en viðskipta-
frömuðurinn og alþýðuhetjan
Jóhannes Jónsson í Bónus er
hins vegar hvergi sjáanlegur.
Rannsóknar-
lögreglustjóri
kærður til
umboðsmanns
Það hefur gengið á ýmsu í
innanhússmálum Rannsóknar-
lögreglu ríkisins. Deilur hafa
staðið á milli Boga Nilssonar
rannsóknarlögreglustjóra og
óbreyttra rannsóknarlögreglu-
manna um langa hríð. Bogi
kom einhliða á nýju vinnufýrir-
komulagi á síðasta ári sem
leiddi til þess að sú ráðstöfun er
nú fýrir félagsdómi og er úr-
skurðar að vænta næstkomandi
mánudag. f tengslum við þær
deilur gripu hinir óbreyttu til
aðgerða og neituðu að vinna
svokallaðar bakvaktir. Bogi
mun hafa kallað alla yfirmenn
RLR til sín og spurt þá um af-
stöðu sína til aðgerða hinna
óbreyttu. Einn þeirra, Gunn-
leifur Kjartansson, leyfði sér
að lýsa yfir stuðningi við undir-
mennina og var honum í kjöl-
farið refsað þannig að manna-
forráð voru tekin af honum og
honum fengin störf sem
óbreyttir sinntu jafnan. Hann
FRIÐRIK SOPHUSSON. Hálft stjórnkerfið heldur að hann verði
sendiherra íParís. SlGRÍÐUR DÚNfl KRISTMUNDSDÓTTIR. Hún
og væntanlegur fjárlagahalli kynda undir getgáturnar.
Sigríður Dútta og
fjqrlqgahallinn
Sá kvittur gengur nú ljósum
logum innan stjórnkerfisins að
til standi að gera Friðrik Sop-
husson að sendiherra í París
þegar Albert Guðmundsson
lætur af embætti. Eftir því sem
næst verður komist er þetta úr
lausu lofti gripið, en tvennt gerir
söguna lífseiga. Það fýrra er að
til stendur að Sigríður Dúna
Kristmundsdóttir taki sæti í
stjórnarnefnd UNESCO, sem
hefur aðsetur í París. Hitt er að
við frumvinnu fjárlagafrum-
varps næsta árs hefur komið í
ljós að fjárlagahalli næsta árs
verður ekki undir fimmtán
milljörðum að óbreyttu og er þá
ekki reiknað með nokkurra
milljarða hugsanlegum kostn-
aði vegna kjarasamninga. Þegar
Friðrik samþykkti samningatil-
boð ríkisstjórnarinnar fékk sú
skoðun nefnilega hljómgrunn
að það gæti ekki verið að Friðrik
ætlaði í framboð aftur rheð
kannski tuttugu milljarða fjár-
lagahalla í farteskinu — ráð-
herrann sem ætlaði að útrýma
hallanum á tveimur árum.
Eftirmaður
Hrqfns í sjénmáli
Þegar eru uppi getgátur um
mögulega kandídata í starf
deildarstjóra innlendrar dag-
skrárdeildar Ríkissjónvarpsins,
þótt vart sé að vænta svara við
því fyrr enn að nokkram vikum
liðnum. Ber fyrstan að nefna
Stefán Jón Hafstein, en hann
hefur verið nefhdur allt frá byrj-
un og þykir hafa nógu sterk
bein í nefinu til að standa uppi í
hárinu á framkvæmdastjóran-
um Hrafni Gunnlaugssyni.
Einnig hefur heyrst að Sigrún
Stefánsdóttir fféttamaður hafi
áhuga, en ekki þykir hún þó lík-
legur eftirmaður Hrafns. Til
sögunnar hafa líka verið nefnd
Baldur Hermannsson, vara-
dagskrárstjóri og persónulegur
vinur Hrafns, Þórhildur Þor-
leifsdóttir leikstjóri og kvik-
myndaleikstjórinn Ágúst Guð-
mundsson. Þá er jafnvel
minnst á Þráin Bertelsson,
formann Rithöfundasambands-
ins, og Lárus Ými Öskarsson
leikstjóra. Hann er einn höfuð-
andstæðinga Hrafns innan
kvikmyndagerðar, en var líka
einn þeirra sem sóttu um stöð-
una síðast þegar hún losnaði.
Umsóknarffestur rann út í gær
en útvarpsstjóri, Heimir
Steinsson, skipar í stöðuna að
fenginni umsögn útvarpsráðs.
Háskólabíós, var ekki par hrif-
inn og taldi þáttinn geta skaðað
viðskiptaímynd kvikmynda-
hússins. Háskólarektor, Svein-
björn Bjömsson, mun heldur
ekki hafa verið alls kostar
ánægður, en hann fékk bréf ffá
umsjónarmanrii þáttarins,
Ragnari Halldórssyni, þar
sem þessvar farið á leit við
hann að koma til viðtals í þátt-
inn. Sýná átti umræddan þátt í
sjónvarpiriu í næstu viku, auk
þess sem umræða í beinni út-
sendingu átti að fylgja í kjölfar-
ið, en útvarpsráð ályktaði að
rétt væri að stöðva væntanlega
útsendingu þar sem lögff æðing-
ur stofhunarinnar taldi að for-
svarsmenn Háskólabíós gætu
höfðað mál á hendur henni.
Ekki er vitað með vissu hver
heildarkostnaður við gerð þátt-
arins var, en PRESSAN hefur
heyrt að hann hafi nálgast hálfa
milljón króna.
Mallhías, en eng-
inn Slyrmlr_____________
Þegar íslenska alfræðiorða-
bókin kom út og hinn vinsæli
leikur Trivial Pursuit varð að al-
mannaeign settust nokkrir al-
fróðir menn niður og veltu því
fyrir sér hvað það væri sem teld-
ist ekki til alfræði, eða væri ekki
þess virði að ota að vitund al-
þýðunnar. Sömu spurningar
hafa ýmsir spurt sig varðandi
nýútkomna bók, Samtíðar-
menn, sem Vilhelm G. Krist-
insson ritstýrir. Þar er nefnilega
ekki síður fróðlegt að sjá hverja
vantar í upptalningu á tvö þús-
und frægum íslendingum.
Nokkur dæmi: Þrátt fyrir AP,
Stöð 2 og heimsfrægðina er
sjálfan Kristján Jóhannsson
hvergi að finna í bókinni og því
Hallur Helgason, barna-
stjarna úr Punktur, punktur,
komma, strik, framleiðslu-
stjóri Sódóma Reykjavík og
Kátur piltur með meiru, er
einn hinna ungu kvikmynda-
gerðarmanna sem komist
hafa á jötuna hjá Propaganda Film, kvikmyndafyrirtæki Sigur-
jóns Sighvatssonar í LA.
Hallur hefur ekki setið auðum höndum eftir að hann kom vest-
ur um áramót. Um þessar mundir er hann aðstoðarleikstjóri ekki
minni manns en sjálfs hjartaknúsarans og toppleikarans Toms
Cruise, sem er að þreyta frumraun sína við leikstjórn. Cruise
leikstýrir einum sjónvarpsþætti í röð sjálfstæðra þátta sem Sidn-
ey Lumet fr amleiðir.
Hallur hefur þegar aðstoðað við gerð nokkurra annarra sjón-
varpsþátta úr þessari sömu þáttaröð. Stórleikararnir Gary Old-
man, sem nýlega sást á hvíta tjaldinu í hlutverki náttfarans Dra-
kúla, og Laura Dem, sem leikið hefur aðalhlutverk í nokkram
myndum Davids Lynch, léku til dæmis aðalhlutverkið hvort í sín-
um þættinum.
Kvikmyndin Sódóma Reykjavík er fýrsta íslenska myndin sem
kemst í aðalhluta Cannes-hátíðarinnar. Hyggst Hallur verða við-
staddur hátíðina í Cannes ásamt Óskari Jónassyni, leikstjóra
Sódómu, Jóni Ólafssyni í Skífimni og leikurunum Eggerti Þor-
leifssyni, Helga Björnssyni og jafnvel Bimi Jömndi Frið-
bjömssyni.
Hjartaknúsarinn Tom Cruise,
leikari og leikstjóri, og aðstoðarmaður hans, Hallur
Helgason, hittast um þessar mundir á hverjum degi.
síður aðra útlenska íslendinga á
borð við Helga Tómasson og
Sigurjón Sighvatsson. Annar
útlendingur, Ásgeir Sigur-
vinsson, finnst hvergi, en bróð-
ir hans, Andrés leikstjóri, er á
sínum stað. Þeir sem kunna
eitthvað fýrir sér í kremlólógíu
Morgunblaðsins geta svo velt
fýrir sér af hverju ferill og ættir
Matthíasar Johannessen eru
raktar, en hvergi er minnst á
hinn ritstjórann, Styrmi
Gunnarsson. Af athafna-
mönnum fær til dæmis Rolf Jo-
hansen hvergi um sig stafkrók í
bókinni og ekki telst heldur til
nafntogaðra samtíðarmanna
Þorvaldur Skúlason í Sfld og
var talinn hafa brotið „trúnað-
ar- og hlýðniskyldu“. Þessari
ráðstöfun Boga var vísað til
Gauks Jörundssonar, um-
boðsmanns Alþingis, sem aftur
hefur beðið nokkuð lengi eftir
afstöðu Þorsteins Pálssonar
og félaga í dómsmálaráðuneyt-
inu. Afstaðan mun vera nýkom-
in; ráðuneytið styður Boga.
Þessi linnulausa deila hefur að
vonum virkað mjög letjandi á
starfsmenn RLR, sem bitnar á
þeim sem telja á sér brotið,
enda liggur fýrir að nálægt tvö
þúsund mál hafa alls enga af-
greiðslu hlotið hjá embættinu
og sum þeirra orðin ansi göm-
ul.
STEFÁN JÓN HAFSTEIN. Margnefndur sem arftaki Hrafns. ÁGÚST GUÐMUNDSSON. Enn talinn vilja starfið, þrátt fyrir þættina um RÚV. LÁRUS ÝMIR ÓSKARSSON.
Hætt við að Krumminn krúnkiefhann kemur á Laugaveginn. SVEINBJÖRN BJÖRNSSON. Neitaði að ræða sölu Háskólabíós. KRISTJÁN JÓHANNSSON. Að
minnsta kosti tvö þúsundIslendingar frægarien hann að mati Vilhelms G. STYRMIR GUNNARSSON. Er Vilhelm að reyna að segja honum eitthvað?