Pressan - 29.04.1993, Blaðsíða 4

Pressan - 29.04.1993, Blaðsíða 4
4 PRESSAN Ú R RÉTTARSÖLUM Fimmtudagurinn 29. apríl 1993 íucztifCáfcjir Gragnrýni missir marks „Og þannigfór að búið var að safna saman „andstœðing- um“ ráðherrans í Hrafns- og Heimismálinu svokallaða til að reyna að sauma að hon- um... Enþaðtóksteinfald- lega ekki betur til en svo að þeir tóku smám saman á sig mynd hinna aumkunarverðu sem vafðist tunga um tönn í margendurteknum tilraunum sínum til að niðurlœgja ráð- herrann. Tilraun til aðgera einhverja lögfrœðistofu á Skólavörðustíg vanhœfa vegna kunningsskapar lög- frœðinga þar við forsœtisráð- herrafór beint í vaskinn og sömuleiðis saga utn tiigreind símbréfanúmer í Hekluhús- inu ogáttu aðgefa til kynna spillingu oghagsmunatengsl núverandiframkvœmdastjóra Sjónvarps, Hrafns Gunn- laugssonar, við þá sem þar ráða húsum." Guðmundur Helgason í DV. Ólafur Hannibalsson blaða- maður: „Skrif Guðmundar þessa Helgasonar hljóma grunsam- lega lík því sem gerist, þegar búktalarinn Hannes talar í gegnum brúðuna Hólmstein. Fangelsi í niður- níðslu „Húsnœðismdlin telégheldur lakleg. Það er til skammar og mikillar vanvirðu að Síðu- múlafangelsið og Hegningar- húsið séu enn ínotkun... Aldrei var œtlast til að Síðu- múlafangelsið yrði notað sem einangrunarfangelsi og Hegn- ingarhúsið er að nálgast að verða 130ára...“ Jón Bjarman, fyrrum fangaprestur, í DV. Haraldur Johannessen fangelsismálastjóri: „At- hugasemdir um húsnæðismál fangelsanna eru gömul og ný sannindi, og sjálfur hefur ég gagnrýnt ásigkomulag þessara Enginn verður vanhæfur við það eitt að vinur hans verður forsætisráðherra. Þegar hins vegar forsætisráðherra og for- stöðumanni sjálfstæðrar ríkis- stofnunar lendir saman og báðir njóta ráðgjafar aðila á sömu lögmannsstofu er þessi lögmannsstofa farin að gæta gagnstæðra hagsmuna. Starf- semin er ekki lengur hafin yfir tortryggni og spurning um vanhæfni risin. Jafnveí full- komið traust útvarpsstjóra á Kristjáni Þorbergssyni nægir ekki, því gagnvart almenningi þarf þetta samband að vera hafið yfir allar grunsemdir." bygginga undanfarin ár. Unn- ið er að verulegum breytingum í þessum efitum og nægir að vísa til álits fangelsismála- nefndar frá síðasta ári svo og stefnumörkunar dómsmála- ráðherra sem hann boðaði í framhaldi af skýrslu nefndar- innar. Ákveðið hefur verið að byggja ný fangelsi til að leysa húsnæðisvandann, eitt á svæð- inu unhverfis Litla-Hraun og annað í Reykjavík. Þá hafa þegar verið gerðar breytingar á fangelsinu á Akureyri og hafh- ar eru endurbætur á Kvía- bryggjufangelsinu, sem von- andi lýkur á þessu ári.“ Þröngt um leikhúsin „íhuga Víkverja hafa menn hins vegargengið of nœrri Borgarleikhúsinu að utan. Sérstaklega sker íaugun að sjá út umglugga Víkverja, hversu klemmtþað erþeim megin, sem að Borgarkringlunni snýr. Þar er húsið líkt og vœngbrotin álft. Er reyndar ekki einleikið, hvernigfer með leikhús okkar, því það sama gildir um Þjóðleikhúsið ogþó miklu meir. Aðþvíer svo þrengt á alla vegu, aðþað hef- ur ekkert umhverfi til að setja svip sinn á.“ Þorvaldur S. Þorvaldsson, forstöðumaður borgar- skipulags: „Égermjögósam- mála Víkverja. í Kringlunni er verið að reyna að koma upp miðbæ og því er nauðsynlegt að byggja þar nokkuð þétt. Auk þess kom ekkert annað til greina, svo unnt væri að byggja torgið sem þarna er og setur óneitanlega svip sinn á kjarnann. Byggðin umhverfis Borgarleikhúsið er að mínu viti eðlilegborgarmynd og sama er að segja um Þjóðleik- húsið. Erlendis standa leikhús mjög þétt inni í borgarkjarn- anum en eru þó ævinlega opin á einn veg, eins og raunin er með bæði leikhúsin í Reykja- vík.“ Ung kona ðryrki eftir fall úr glugga geðdeildar Borgarspítalans FÉU. SEX METRA NIÐUR ÚR GLUGGA GEÐDEILDAR BORGARSPÍT- ALANS Vaktmaður sjúkrahússins fann konuna fyrir hreina tilviljun. Það óhapp átti sér stað á geð- deild Borgarspítalans í janúar 1987 að ung kona sem þar var vistuð féll út um ólæstán glugga á annarri hæð, tæpa sex metra. Atvikið varð undir morgun og urðu starfsmenn sjúkrahússins einskis varir. Konan fannst síð- ar fyrir hreina tilviljun og var hún þá illa haldin af verkjum og kulda. í ljós kom að hún var illa brotin á fæti, auk þess sem hryggjarliðir höfðu laskast, og hlaut hún 35 prósent varanlega örorku. Konan höfðaði skaðabótamál á hendur borgarsjóði Reykja- víkur í ljósi þess að glugginn var ólæstur er óhappið varð og því væri um gáleysi af hálfu starfs- manna spítalans að ræða. Ekki var fallist á það í héraði að slysið hefði orðið vegna trassaskapar starfsmanna geðdeildar og í júní 1990 sýknaði bæjarþing Reykjavíkur borgarsjóð af öll- um kröfum. Málinu var áfrýjað og flutt í Hæstarétti í gær, mið- vikudag, þar sem krafist var rúmlega fimm milljóna í skaða- bætur til handa konunni. Orðin bláleit af kulda Málsatvik voru þau að konan var lögð inn á geðdeild Borgar- spítala 13. janúar 1987. Geðræn vandamál hennar Iýstu sér meðal annars í ofsóknarhug- myndum og mikilli hræðslu og töldu bæði foreldrar konunnar og starfsfólk deildarinnar ráð- legast að hún yrði lögð inn, enda þótt hún væri því sjálf mótfaÖin. Degi síðar, aðfaranótt 15. janúar, vaknaði konan urn miðja nótt, með óráði og undir áhrifum lyfja. Undir morgun, að því er talið er, ráfaði hún inn í nærliggjandi herbergi þar sem geymt var lín, án þess að starfs- fólkið yrði þess vart. Á herberg- inu reyndist vera opnanlegur gluggi, sem konan setti sig út um og féll niður á gangstétt fýrir neðan. Nokkru síðar, eða um hálf- sjöleytið, sá vaktmaður sem var á gangi um sjúkrahúsið fyrir hreina tilviljun til konunnar út um glugga þar sem hún lá á milli bíla á bifreiðastæði austan við spítalann. Fram kemur í skýrslu vaktmannsins, Reynis Karlssonar, hjá Rannsóknar- lögreglu ríkisins, að konan hafi verið orðin bláleit af kulda er hann fann hana og ekki hafi stoðað neitt að tala við hana. Gert var að sárum konunnar, en hún reyndist brotin á öðrum hæl og auk þess voru hryggjar- liðir brotnir og úr lagi gengnir. Konan hlaut örorku af völdum slyssins sem metin hefur verið 100 prósent í þrjá mánuði, 65 prósent í aðra þrjá mánuði og 35 prósent varanleg örorka. Gluqqinn án öryqq- islæsmgar Konan skýrði frá því fyrir dómi að umrædda nótt hefði hún verið á stjái á ganginum og orðið gripin gífurlegri hræðslu við fólk, sem henni fannst vera alls staðar á eftir sér. Eina hugs- un sín hafi verið að komast út af spítalanum. Undir morguninn hafi dyr út af deildinni verið opnaðar stutta stund og hafi hún þá reynt að komast út, en vaktmaður hafi stuggað við henni og læst. Hún hafi þá heyrt glugga í nærliggjandi herbergi skella til og ffá og farið þangað inn. Að sögn konunnar var eng- in öryggislæsing á glugganum og því hafi hún hæglega getað opnað hann og smokrað sér út. Fram kom að konan gerði sér engan veginn grein fyrir því hvað fallhæðin var mikil, hún hafi aðeins hugsað um að kom- ast á brott. í undirréttardómi segir að með hliðsjón af framburði stefndanda, atvikum öllum og ástandi gluggans megi telja lík- legt að hann hafi ekki verið fast- ur í öryggislæsingu er konan kom að honum. Síðar við vett- vangskönnun hafi verið búið að setja læsingu á gluggann, sem aðeins var hægt að opna með lykli. Við nánari athugun hafi komið í ljós að öryggispinni í gluggakarmi, sem koma ætti í veg fyrir að glugginn opnaðist meira en nokkra sentímetra, virkaði ekki. Eftir að öryggis- pinni hafi verið stilltur hafi læs- ingin virkað eins og til var ætl- ast. I bréfi Ingvars Kristjáns- sonar geðlæknis til fram- kvæmdastjóra Borgarspítalans kemur meðal annars fram að konan hafi greinilega verið haldin ofsóknarhugmyndum þegar hún var lögð inn á deild- ina. Ekki hafi það þó verið talið merki um sjálfsvígs- eða ofbeld- ishugmyndir. Að morgni næsta dags, það er að segja daginn sem slysið varð, hafi verið ákveðið að viðhafa „sérstaka aðgát við umönnun sjúklings". Hannes Pétursson, yfirlæknir geðdeildar, skýrði frá því fýrir dómi að með því væri átt við að starfsmenn deildarinnar gættu þess að hafa útidyr lokaðar. Læknar þeir er komu að málinu töldu ekki ástæðu til að hafa konuna undir stöðugu eftirliti gæslumanns deildarinnar. Engin rannsókn af haífu spítalans Borgarspítalinn fór ekki fram á að rannsókn yrði gerð á slys- inu og tilkynnti það hvorki til vinnueftirlits né lögreglu. Því var ekki farið að kanna málið fyrr en faðir konunnar kærði það til Rannsóknarlögreglu rík- isins, tveimur dögum eftir óhappið, og var þá tekin skýrsla af starfsmönnum spítalans. Lögmaður konunnar færði fýrir dómi rök fyrir skaðabóta- kröfu á hendur borgarsjóði. Fram kemur í máli hans, að konan hafi verið lögð inn á geð- deild Borgarspítalans mjög illa haldin af geðveiki. Hún hafi þurft á gæslu að halda og það hafi verið í verkahring starfs- fólksins að sjá til þess að hún færi sér ekki að voða. Raunin hafi orðið allt önnur og konan hafi augsýnilega getað gengið um húsnæðið eftirlitslaust. Starfsmenn hafi ekki orðið þess varir að konan var horfin af deildinni og megi teljast mikil mildi að hana kól ekki í hel á stéttinni fýrir utan spítalann. Lögmaður vísaði til megin- reglu skaðabótaréttarins, svo- kallaðrar „culpareglu“, þar sem tjón stefnanda væri sennileg af- leiðing saknæmrar og ólög- mætrar hegðunar starfsmanna Borgarspítalans, og væri þá átt við trassaskap þeirra, hirðu- og kæruleysi við læknismeðferð, gæslu og eftirlit með mikið veikum sjúklingi, auk van- rækslu varðandi öryggislæsing- ar á gluggum. Lögmaður taldi réttlátar skaðabætur 7,5 millj- ónir. Fram kom í máli lögmanns stefnda að hann teldi enga van- rækslu felast í því af hálfu starfs- manna spítalans þótt stefnandi hefði með einhverjum hætti komið ffam þeim vilja sínum að fara út um gluggann. Geðsjúk- dómar væru öðrum sjúkdóm- um fremur óútreiknanlegir og gætu tekið óvænta stefnu. Til þess væru sjúkrahús að lækna fólk og geðdeild Borgarspítalans væri ekki þannig útbúin að ókleift væri að brjótast út af henni. Óhugsandi væri að sök væri að finna hjá starfsmönnum spítalans er leiddi til skaðabóta- skyldu. Því bæri að sýkna borg- arsjóð af öllum kröfum. Ætlaði ekki að fara sér að voða Bæjarþing Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að konan hefði aðeins haft eitt í huga umræddan morgun, það er að segja að koma sér út um gluggann. Því skipti ekki meg- inmáli hvort hann hefði verið fastur í öryggispinna eða ekki, þar sem ásetningur konunnar hefði verið sá fara þar út. Ekki yrði á það fallist að kenna mætti um trassaskap starfsmanna spítalans og því bæri að sýkna borgarsjóð. Málió var flutt í Hæstarrétti í gær, miðvikudag, og fór lög- maður konunnar, Andri Árnason, ffam á rúmar fimm milljónir í skaðabætur. Gagn- rýndi hann ályktun þá sem hér- aðsdómur byggði á, þ.e. að kon- an hefði farið út um gluggann hvort sem hann hefði verið læstur eða ekki. Ósannað væri með öllu að konan hefði kunn- að á öryggislæsinguna hefði glugginn verið læstur. Sam- kvæmt skýrslu lækna var engin ástæða til að ætla að konan hefði í hyggju að fýrirfara sér. Glugginn hefði verið ólæstur og því hefði hún treyst því að hún myndi ekki fara sér að voða. Það eina sem fyrir henni vakti hefði verið að strjúka af spítal- anum._______________________ Bergljót Friðríksdóttir debet gunnlaugur stefánsson kredit „Hann hefúr einna helst félagslegar taug- ar í þingflokki Alþýðuflokksins og hann er vakandi fýrir hagsmunum landsbyggðar- innar. Þá á hann það til að vera ákveðinn í að ná málum sínum fram,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, sem situr með Gunn- laugi í félagsmálanefnd Alþingis. „Gunnlaugur stendur ávallt við orð sín og lýkur þeim verkum sem hann tekur að sér. Hann er einnig mjög hreinskiptinn og traustur og góður vinur vina sinna,“ segir Guðmundur Árni Stefánsson, bæjar- stjóri í Hafnarfirði og bróðir Gunn- laugs. „Gunnlaugur er duglegur maður og ég þekki hann ekki að öðru en góðu,“ segir Jónas Hallgrímsson á Seyðisfirði, sem starfað hefur með Gunnlaugi á stjóm- málasviðinu. „Gunnlaugur leggur sig fram í því sem hann tekur fýrir hendur og það er skemmtilegt að vinna með honum. Hann er alltaf í góðu skapi og það er aðdáunarvert hversu vel hann rækir sóknarbörnin," segir Árni Mathiesen, þingmaður og vinur Gunnlaugs úr Hafnarfirði. Hreinskiptinn og traustur — eða fljótfœr ogstífur þingmaður? Gunnlaugur Stefánsson beitti sér fyrir því að fjárlaganefnd Alþingis tæki mál Hrafns Gunnlaugssonar upp á sínum tíma, en síðan skipti hann um skoðun og samdi um að Rík- isendurskoðun athugaði málið. „Gunnlaugur mætti sinna betur störfum sín- um í fjármálanefnd og hann er of stífur í túlkun sinni á þingskapalögunum þegar hann er þing- forseti. Hann á það til að lemja fullfast í bjölluna og æra þannig ræðumennina,“ segir Kristinn H. Gunnarsson þingmaður, sem situr með Gunnlaugi í félagsmálanefnd Alþingis. „Hann er eilítið fljót- huga og jafhvel stundum fljótfær. Þá er hann einnig dáh'tið „bláeygur“ á fólk, hann á það til að treysta of mikið á náungann. Þó er ekki hægt að segja að hann sé auðtrúa í þessu sambandi,“ segir bróðir hans, Guðmundur Árni Stefánsson, bæj- arstjóri í Hafharfirði. „Mér hefiir oft fundist sem Gunnlaugur sjáist ekki fýrir í málflutningi sín- um,“ segir Jónas Hallgrímsson, framsóknarmaður á Seyðisfirði. „Hann er fljótfær og sést eklci alltaf fyrir í ákafanum. Þá finnst mér sem hann geti ekki alveg gert upp við sig hvort hann ætlar að vera sóknarprestur eða alþingismaður. Svo er hann einnig of vinstrisinnaður fyrir minn smekk og flestra félaga hans í þingflokki Al- þýðuflokksins,“ segir Árni M. Mathiesen þingmað- ur, sem situr með Gunnlaugi í umhverfis- og fjár- málanefndum Alþingis.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.