Pressan - 29.04.1993, Qupperneq 19
S K I L A BOÐ
Fimmtudagurinn29. apríl 1993
PRESSAN
XOCHITLERÚR
NAHUATL...
\ Ekki er nóg með að
I flestir veðji á Brynju
Vífilsdóttur sem
næstu fegurðardrottningu fs-
lands heldur ber hún og
frumlegasta nafnið; hennar
rétta nafn er Brynja Xochitl
Vííilsdóttir. Á tímum harðra
nafnalaga spyrja sig margir
hvaðan þetta einstaka nafn sé
komið. Vífill Magnússon,
arkitekt og faðir Brynju, upp-
lýsti PRESSUNA um að það
væri upprunnið í Mexíkó, þar
sem Brynja fæddist og bjó
fyrstu æviárin. Xochitl er
blómanafn, upphaflega kom-
ið frá indíánaþjóðflokknum
Aztekum sem tala tungumál
sem kallað er Nahuatl. „Xoc-
hitl er jafnalgengt í Mexíkó og
kvenmannsnafnið Rósa á fs-
landi,“ segir Vífill.
„Þegar við flutt-
um til íslands
var millinafn
hennar ekki
°g
gleymdist því.
Þegar Brynja
var fermd var
skírð í
°g
þá að
þessu
nafni án
nokkurra mót-
mæla.“
FRIÐRIK ÞÓR FÉKK
HÆSTASTYRKINN...
Á fundi evrópska
kvikmyndasj óðsins,
Eurimages, í Amster-
dam var Friðriki Þór Frið-
rikssyni og
kvikmynd hans
Bíódögum veitt-
ur 19 milljóna
króna styrkur.
Þetta var hlut-
fallslega hæsti styrkurinn úr
sjóðnum miðað við kostnað-
aráætlun. Að sögn Ólafs Arn-
arsonar, fulltrúa íslands í
sjóðnum, er venjulega miðað
við 11% af kostnaðaráætlun
en styrkur Friðriks Þórs nær
15%. Af 24 umsóknum fengu
6 jákvæða afgreiðslu.
SEXBANKASTJÓRAR
f STAÐ ÞRIGGJA_
l Skipulagsbreytingar
) íslandsbanka hafa
verið kynntar eins og
þær fælu í sér sparnað. f stað
þriggja bankastjóra verður
bara einn, Valur Valsson.
Hinir tveir, Bjöm Bjömsson
og Tryggvi Pálsson, verða
framkvæmdastjórar. Fyrir
voru tveir ffamkvæmdastjór-
ar og sá þriðji er nýráðinn,
Ásmundur Stefánsson.
Valur var áður formaður
bankastjórnar. Ekki eru líkur
á að hann fundi mikið með
sjálfúm sér og mun hann því
líklega stýra fundum banka-
og framkvæmdastjórnar. Þá
fundi munu sex manns sitja;
einn bankastjóri og fimm
framkvæmdastjórar. Það má
því ef til vill segja sem svo að
íslandsbanki hafi fengið sex
bankastjóraígildi í stað
þriggja með
þessum
breytingum.
I ofninn, grillið
pottinn eða
pönnuna, aðeins
484% í næstu verslun
BESTU KAUPIN í LAMBAKJÖTI
Mörg hundruð
bílastæði í boði
í miðborginni.
Nýtum ný bílhýsi og bílastæði
i stað þeirra sem hverfa.
INGÓLFSGARÐUR
KOLAPORT
TRAÐARKOT
VESTURGATA 7
BÍLAKJALLARI RÁÐHÚSS
ALÞINGISREITUR
TRYGGVAGATA 15
BERGSTAÐIR
Upplýsingasími
Bílastœðasjóðs
er 632380.
Vegna framkvæmda í miðborginni í sumar verða fjölmörg bílastæði tekin úr notkun,
- sum endanlega, önnur tímabundið. Þrátt fyrir þetta hefur heildarframboð bílastæða í mið-
borginni ekki minnkað. Það er vegna þess að fjömörg ný stæði hafa undanfarið verið tekin í notkun.
í þessu sambandi er sérstaklega bent á bílastæði í bílhýsum miðborgarinnar.
Mikilvægt er því að þeir sem leið eiga í miðborgina vegna starfa sinna eða annarra erinda, geri sér
grein fyrir þessum breyttu aðstæðum.
Leidð upplýsinga um allt er lýtur að bílastæðum og staðsetningu bílhýsa og bílastæðasvæða í
miðborginni.
BILASTÆÐASJOÐUR