Pressan


Pressan - 29.04.1993, Qupperneq 27

Pressan - 29.04.1993, Qupperneq 27
GÆFA & GJÖRVILEIK Fimmtudagurinn 29. apríl 1993 PRESSAN 27 Skipulögð ringulreið virðist ríkja í kringum íslenskar hljóm- sveitir. Flestar virðast þær á leiðinni út; sumar farnar og aðr- ar nýkomnar heim, allar með frægðina í vasanum. SSSÓL er á leiðinni út til London, aftur. Ég á að hitta Helga Björns en hitti óvart Jakob Magnússon bassaleikara, sem segir mér að þeir ætli að stofiia klúbb nálægt Kings Cross í London og hann eigi að heita COOL WORLD. Það sé þeirra gengi í London sem standi fyrir þessu og nú verði kynning SSSÓL gerð eftir grasrótarleiðum. Helgi Björns birtist og Jakob tjáir honum að hann sé búinn að segja allt og Helgi eigi ekki afturkvæmt í poppið. Helgi hvítnar upp, sest og segir: „Splæstu á mig kakói:“ SSSÓL er með tvær plötur til- búnar til útgáfu. Aðra ætlaða landanum og hina útlandinu. Hvers vegna tvær plötur og tveir upptökustjórar, vitið þið ekki hvað þið ætlið að verða þegar þið verðið stórir? „Ég lít á þetta sem ákveðna skynsemi. Við erum búnir að starfa hér í fimm ár, og það er kominn ákveðinn grunnur fyrir bandið, en sá grunnur er ekki endilega sá sem við viljum taka með okkur út. Þetta er alveg eins og með fisk; hann er settur í mismunandi umbúðir eftir því hvar á að markaðssetja hann. Þetta eru sömu hljóðfæri og sömu menn en það eru aðrir pakkarar notaðir. Ef við ætlum að vinna hér heima á sama markaði og við höfum gert — keyra á félags- heimilin með þessa danstón- leika — þá treysti ég því ekki að keyra alveg nýja stefnu á liðið. Þetta er okkar lifibrauð. Þar á móti kemur að möguleikarnir hér heima eru þó nokkuð tak- markaðir, það vita allir, þess vegna viljum við reyna fyrir okkur erlendis." Vel á minnst nú bytjar sum- arharkið, spilirí um land allt fram á haust. Það eru margir um þessa aura, fœrðu aldrei skrekk svona í upphafi vertíð- ar? „Jú, jú. Þetta er bara ákveðið prójekt, síðan er frumsýnt og .síðan getur stykkið bara flopp- að. Platan kemur út í maí og síðan er keyrt áffam.“ Hin almenna skynsemi SSSÓL virðist vera til. En er ekki ósatmgjarnt að leyfa ekki okkur hér heima að heyra hvað þið hafið eyrnamerkt útland- inu? Ætlið þið að bíða lengi tneð útgáfu erlendis á þessari plötu? „Við gefum hana út á þessu ári. Við höfum óháða útgáfu bakvið okkur þar sem DEVA Records er, en það kostar pen- inga að gefa út og kynna al- mennilega, þannig að við ætlum að bíða og sjá hvað setur. Okkur liggur þannig séð ekki á en við viljum kanna hvort stærri fiskur bíti ekki á öngulinn.“ Hefur það einhvern tímann hvarflað að leikaranum að segja hingað og ekki lengra, ég erhœttur í poppinu? „Já, mjögoft." Hvað, einu sinni í mánuði eða oftar? „Tja..“ Einu sitmi á ári? Frægð og frami í Cannes? Helgi er á leiðinni til Cannes á kvikmyndahátíðina frægu. Sód- óma Reykjavík verður sýnd þar, en Helgi fór með eitt aðal- hlutverkið í þeirri mynd. „Cannes-hátíðin er kannski ekki lykillinn að frægð og frama hjá mér, en þarna gefst mér að minnsta kosti tækifæri til að kynnast fólki sem er í þessurn bransa. Lista- og skemmtiiðn- aðurinn er ákveðið happdrætti og fyrir mig verður vonandi iærdómsríkt að sjá það í návígi. Annars er Sódóma dúndurgóð mynd og ég vona bara að húm- orinn í henni skili sér, þótt hann sé öðruvísi, á önnur menning- arsvæði. En þetta verður sennilega í fyrsta og eina skiptið sem ég fer til Cannes sem aðalleikari í kvikmynd sem er á aðalhátíð- inni þarna suðurfrá.“ Ég hef aldrei unnið mér það til frægðar að fara til Cannes, hvað þá að spila á sveitaballi, en þetta er það sem Helgi fær að upplifa núna á næstu mánuð- um. Cannes verður nýtt fyrir honum en sveitaböllin, langar hann alltaf til að vakna á morgnana vitandi að hann þarf að mæta til vinnu um kvöldið, aldrei leiði? „Jú, en mér finnst gaman að sjá fólk skemmta sér, sletta úr klaufunum. Ég mundi aldrei gera þetta nema út af því að mér finnst vera einhver orka þar sem fólk er að skemmta sér.“ Mér stendur til boða að koma með SSSÓL á baíl í Njálsbúð og upplifa eitthvað nýtt. Þangað til hugga ég mig við að SSSÓL heldur jafnvægi á miðfætinum. EinarBen MYNDLIST í djúpum dal málverksins „Georg Guðni á verulegt tilkall til að eiga sceti á topp tíu-listanum yfir ís- lenska málara í dag. Nokkuð vel afsér vikið, efsatt er, því miðað við lífaldur málara er hann rétt nýbyrjaður. “ GEORG GUÐNI HAUKSSON NÝLISTASAFNINU Um síðustu helgi voru marg- ar sýningar opnaðar í bænum og því af nógu að taka. Að þessu sinni ætla ég að staldra við í Nýlistasafninu. Af ein- hverjum ástæðum er aðsókn að Nýlistasafninu ekki sem skyldi, þrátt fyrir að það sé einn besti sýningarstaður borgarinnar og í alfaraleið. Svo virðist sem stór hluti almennings veigri sér við að heimsækja staðinn, jafnvel þótt um sé að ræða góðar sýn- ingar sem fengju betri aðsókn annars staðar. Sá sem nú sýnir heitir Georg Guðni Hauksson. Hann er af yngri kynslóð myndlistar- manna og á ekki langan feril að baki, því sex ár eru liðin frá því hann lauk námi í Hollandi. Samt sem áður hafa töluverðar vonir verið bundnar við hann og gallerí á Norðurlöndum tek- ið myndir hans til sýningar. Þessi sýning staðfestir að þær vonir voru ekki á misskilningi byggðar. Georg Guðni festir sig æ betur í sessi sem vandaður og sterkur málari. Það sem fyrst vakti athygli manna voru sérstæðar lands- lagsmyndir Georgs, þar sem landið hafði verið einfaldað niður í ávöl form og samfelld litbrigði breiddu sig yfir allan flötinn. Einföld landslagsform eru engin nýlunda og margir hafa unnið með svipuð mótíf. CUNNARJ. Oft vilja slíkar myndir enda sem óáhugaverðar stílfærslur og formstúdíur, sem eru kannski ósköp huggulegar fyrir augað, en frekar óspennandi málaralist. Enda sneri Georg sér að geómetrískum myndum um skeið og skerpti tilfinningu sína fýrir myndfletinum og meðferð olíunnar og litanna. Nú þegar hann tekur aftur til við landslagsmótíf er greinilegt að sú vinna hefur skilað sér, því það er afar náið samræmi milli landslagsformanna og með- ferðar málningarinnar, sem er lögð á með reglubundnum lóð- réttum og láréttum pensil- strokum. f íslenskum landslagsmynd- um beinist athyglin jafnan að tilteknu kennileiti, yfirleitt fjalli, sem tekur á móti augnaráði áhorfandans og svarar því. Jörð og himinn eru skarplega að- skilin og landið býr yfir mass- ífri mótstöðu efnisins. Ekkert af þessu á við um myndir Georgs. Þar eru engin fjöll, engar ár eða klettar, öll kennileiti eru útmáð. Hvergi eru skörp skil, heldur renna jörð og himinn saman í eina heild. Það sem blasir við er dalur, eða dalverpi, afrnarkað- ur af dalbotni, ávölum hh'ðum til beggja handa og himni. Dýptarskynið í myndinni dreg- ur augað inn að miðju hennar, en þangað sem auganu er beint er ekkert að sjá. Augnaráðið staðnæmist hvergi. Dalur, hlíð- ar og himinn renna saman. All- ur mismunur eyðist milli jarðar og himins, fjarlægðar og ná- lægðar, myndrýmis og mynd- flatar, sjónblekkingar og pen- silfars. Það sem er gert sýnilegt í myndunum er það sem af- markast á fjóra vegu af dal- botni, hlíðum og himni. Hið ósýnilega, sem svarar til and- rúmsloftsins í dalnum, er gert sýnilegt eða allt að því áþreifan- legt. Það er eins og Georg hafi fýllt upp í þá keilu, sem dalur og himinn affnarka, með hæg- um og reglubundnum pensil- strokum, hálfgegnsæjum og einhvers staðar stöddum í rými sjónblekkingarinnar. Það er eins og dýpt dalsins þjóni þeim tilgangi að gefa okkur tilfinn- ingu fyrir dýpt málverksins, sem skapast af vinnuferli lista- mannsins á yfirborði strigans. Myndir Georgs eru ekki um eða vegna landslagsins, heldur eru þau málverk, hrein og klár. Gæði þeirra byggjast á því sem þau gera sem málverk, en ekki því sem þau koma til leiðar sem miðill fyrir ytri skírskotan- ir eða upplifanir listamannsins. Málverkin eru ekki nema átta talsins, en þess ber að geta að þau eru seinunnin og Georg hugsar greinilega um að ein- beita sér að hverri mynd fyrir sig* enda erú gæðin mjög jöfn. Innan um eru smáar teikningar og vatnslitamyndir af lands- lagsmótífúm sem standa vel fyrir sínu og létta heildarsvip- inn á sýningunni. Öllu er kom- ið þannig fyrir að áhorfandinn njóti hverrar myndar sem best. Georg Guðni á verulegt til- kall til að eiga sæti á topp tíu- listanum yfir íslenska málara í dag. Nokkuð vel af sér vikið, ef satt er, því miðað við lífaldur málara er hann rétt nýbyijaður. Popp FIMMTUDAGURINN| LAUGARDAGURiNN| 29.APRÍL 1 . MAÍ • Móeiður Júníusdóttir söngkona verður með sér reyndari mönnum, þeim Agli B. Hreinssyni píanóleikara og Bjarna Sveinbjörnssyni kontrabassaleikara, í djass- veislu á Mímisbar í kvöld og næstu fimmtudagskvöld. Skemmtileg sumarsveifla. • SSSól verður á Plúsnum í kvöld ásamt Bylgjunni sem ætlar að útvarpa geislum Sól- arinnar. Sem fýrr verður hinn íslenski Mick Jagger (Helgi Björns) trylltur á sviðinu. • Lipstick Lovers ætla ekki að vera minni menn en þeir í Jet Black Joe. Þeir hafa allir fagurlagaðar varir og ætti það að nægja til að trylla kvenlýðinn. Þeir verða á Gauk á Stöng fram á sunnudag. • Haraldur Reynisson trúbadorá Fógetanum. • Borgardæturnar Andrea Gylfadóttir, Ellen Kristjáns- dóttir og Berglind Björk Jónasdóttir verða í anda Andrews-systra við undirleik Setuliðsins á Hótel Borg. Að- stoðin er í formi Eyþórs Gunnarssonarog fleiri eðal- tónlistarmanna. Kvöldverður með kaffi og konfekti er í boði, eigifólkaur. • Stripp karla og kvenna heldur áfram á Dansbarnum. Þeir sem vilja heldur hlusta á diskó geta snúið sér undan. • Kredit er blússveit að norðan sem ku vera vel þekkt þar nyrðra. Þeir verða á Blús- barnum í Reykjavík að koma Sunnlendingum á norð- lenska blússporið. • Lipstick Lovers, öðru nafni varalitaelskhugarnir, á Gauká Stöng. • Geirmundur Valtýsson leikur undir íslenskri fegurð vegna krýningar Ungfrú ís- lands á Hótel íslandi í kvöld. Glys, glaumur, gleði og spenna. • Rokkabillíband Reykja- víkur hefur upp raust sína og hitar hana upp á Tveimur vin- um, áður en lagt verður með látum í Gaukinn. • Björgvin Halldórsson og satt og logið um landann á Hótel Sögu. • Bara tveir er dúett úr Keflavík sem gerir út á fyndni og söng á Fógetanum. • Tvær sýnir er nafn á dúett sem hefur í raun ekkert nafn. Annar meðlimurinn kemur úr Tveimur logum en hinn úr Sýn. Þeir verða á Rauða Ijón- inu, nema hvað? • Stripp og annar dóna- skapurá Dansbarnum. • Gal í Leó eru Rabbi trommari og félagar. Þeir ætla í samvinnu við Plúsinn að efna til sveitaballs í mið- borg Reykjavíkur. Sætaferðir verða frá Lækjartorgi með stóra gula bílnum. • Lipstick Lovers tæta og trylla á Gauknum. • Júpíters taka gúmbudans- inn á Tveimur vinum í kvöld og boða rómantíska nautn. • Geirmundur Valtýsson syngur í sveiflu, en að vísu undir misjafnri fegurð á Hótel íslandi. • Björgvin Halldórsson, Halli, Laddi, Lolla og Hjalii Ijúga upp á landann á Sögu. • Bara tveir flautaþyrlar á Fógetanum. • Rokkabillíband Reykja- víkur heldur fimm ára tón- listarhátíð á Gauk á Stöng í kvöld. Þeir munu af því tilefni skreyta hljómsveit sína með þeim Kristni Svavarssyni saxófónleikara og Kjartani Valdimarssyni hljómborðs- leikara, auk þess sem Bylgjan hyggurá beina útsendingu. Rokkabillíbandið ætlar ekki að hætta fögnuðinum á Gauknum fyrr en seint á þriðjudagskveld. • Guðmundur Rúnar fer ’*í| liprum fingrum um gítarinn á Fógetanum. SVEITABÖLL FOSTUDAGURINN 30. APRÍL • Hótel Borgarnes: Todmo- bile, sú stormvindaglaða grúppa, skemmtir Borgnes- ingum og nærsveitungum. • Sjallakráin, Akureyri: Skriðjöklarnir eru aftur að skríða saman eftir smáhlé og leika í heimabænum. • Þotan í Keflavík heldur stórhátíð í kvöld, þar sem Spíritus, Stjórnin, danskar fatafellur og Berlínurnar ætla að leggjastöll á eitt. • Höfðinn, Vestmannaeyj- um: Paparnir; írsku munkarn- ir, leika í eina skiptið í Eyjum um þessa helgi. Góða skemmtun. • Krúsin á ísafirði verður án stórátaka um helgina.Gleði- gjafar skemmta ásamt Ragga Bjarna, Ellý Vilhjálms, Bjarna Ara og fleirum. LAUGAR DAG U RIN N 1 . MAÍ I • Hótel Akranes: Vinir Dóra skapa Plússtemmningu á Skaganum. • Hótel Selfoss: Leikur að vonum er dagskrá með lög- um Labba í Mánum sem end- urtekin verður í kvöld. • Sjallinn, Akureyri: Stjórn- in tekur nýja lagið með Siggu Beinteins. • Höfðinn, Vestmannaeyj- um: Papar í síðasta sinn í Eyj- • Krúsin, ísafirði: Hljóm- sveitin Gleðigjafar, Raggi Bjarna, Ellý og allir hinir sem voru í gær á sama stað.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.