Pressan - 29.04.1993, Qupperneq 31
PBFSSA Hlsr
Sm BiWi M HV pressmu Mgir
fiSff mæ Mrn IUHMb MB H JHf wSBSm án endurgjalds]
HAFA SKAL ÞAÐ SEM BETUR HLJOMAR
i
i
<
<
i
Sveinn Bárðarson hefur stefnt nágrannakonu sinni eftir að barn hennar
fékk eyrnabólgu og grét fyrir klukkan sjö einn morguninn.
Ungur maður í Sólheimum
STEFNDIKONU
VEGNA HÁVAÐA FRÁ
BARNIHENNAR
Stefnan kom í kjölfar samskonar kæru frá kon-
unni vegna gelts í hundi mannsins.
Reykjavík, 29. aprfl.___________
„Það er skýrt tekið fram í hús-
reglum að íbúar skuli ekki vera
með háreysti fyrir ldukkan sjö á
morgnana. Eftir sem áður vakn-
aði ég þrjá morgna í röð í mars
við ærandi barnsgrát, fyrir
klukkan sex í öll í skiptin. Ég vil
því láta reyna á hvort mér sé
skylt að búa við þetta bótalaust,“
segir Sveinn Bárðarson, íbúi í
einni af Sólheimablokkunum, en
hann hefúr stefnt nágrannakonu
sinni fyrir röskun á heimilisfriði
vegna barnsgrátsins. Sveinn
krefst 1,5 milljóna í miskabætur.
Konan, Vilborg Lárusdóttir,
heldur því fram að ástæða stefhunn-
ar sé sú, að hún hafí stefnt Sveini
fyrir tveimur mánuðum þar sem
hann neitar að láta lóga hundi sem
hann á og heldur, þrátt fyrir að það
sé bannað í húsreglum. Sveinn neit-
arþessu.
„Þetta mál snýst um grundvallar-
mannréttindi," segir Sveinn. „Á ég
að h'ða kvalir í minni íbúð þótt ein-
hver sé með eyrnaverk í þeirri
næstu? Ef fólk er of tilfinningasamt
til að neita þessu vegna þess að ann-
ar aðilinn er barn, þá get ég allt eins
gert kröfur til þess að Vilborg taki út
hluta af timburmönnunum mín-
um,“ segir Sveinn.
Enn setið um Útvarpshúsið
Hættum ekki
áinngöngu
- segir Böðvar Bragason lögreglustjóri. „Það er aldrei að vita til
hvaða ráða fólið grípur efvið ögrum því."
Reykjavík, 29. apríl._______________-
„Ég trúi því að eina leiðin til að
ná húsinu aftur sé að svelta fólið
inni. Ef við ráðumst til inngöngu
er aldrei að vita til hvaða ráða það
kann að grípa,“ segir Böðvar
Bragason, lögreglustjóri í Reykja-
vík, en umsátur lögreglunnar um
Útvarpshúsið hefúr nú staðið í
þrjár vikur.
Samkvæmt heimildum GULU
PRESSUNNAR hafa samningavið-
ræður lögreglunnar við Arthúr
Björgvin Bollason, talsmann fólsins,
ekki gengið sem skyldi. Um tíma var
talið að fólið mundi fallast á sáttatil-
boð, þar sem gert var ráð fyrir að það
fengi að sjá um Poppkom í sjónvarp-
inu, en á síðustu stundu hætti fólið
við. Það hefúr nú aftur sett ffam sínar
upphaflegu kröfur; að það fái að ráða
og reka starfsfólk að eigin geðþótta og
að diplómatinn í fólinu fái að vera
með hugvekju í lok dagskrár á hverj-
um degi.
„Því miður höfúm við ekki heimild
stjórnvalda til að semja á þessum nót-
um,“ segir Böðvar. „Ríkisstjórnin hef-
ur fjallað um málið og heldur fast við
sitt. Hún er tilbúin að ganga að öllum
kröfúm fólsins utan hvað hún vill ekki
samþykkja að ákveðinn starfsmaður
verði látinn fara.“
Samkvæmt heimildum GULU
PRESSUNNAR hafði lögreglan búist
til inngöngu fyrir helgi en við hana var
hætt vegna frétta frá Waco í Texas,
þar sem sértrúarsöfnuður kveikti í
búgarði sínum ffekar en að gefast upp
fyrir lögreglunni.
„Eins og í Waco segist fólið hér ætla
að klára greinargerð sem það er með í
smíðum og hyggst senda ffá sér síðar.
Við ædum að bíða þar til hún birtist í
stað þess að ráðast til inngöngu eins
og löggan í Waco gerði,“ segir Böðv-
ar.
Hneyksli í Melaskóla
KENNARILAUG BÖRNIN FULL
Sagði ísland vera hér-
að í Tyrklandi, einræð-
isherra þess héti Her-
mann Gunnarsson og
aðalatvinnuvegurinn
væri vændi og dópsala.
Reykjavík, 29. apríl._______
Kristján Sveinsson, kennari átta
ára bama í Melaskóla, hefúr orðið
uppvís að stórkosdegum lygum í
kennslustundum. Upp komst um
málið þegar nemendur hans geng-
ust undir samræmt próf innan
skólans. Þeir fengu allir núll.
Meðal þess sem Kristján laug í
. börnin var að tveir plús tveir væru
' undanrenna; að Vestfirðingar væru
með tannstöngla í stað fótleggja; að
Davíð Oddsson væri lyf sem notað
væri til að bæta kjötfyllingu í hrein-
dýrum; og að álfar væru settir saman
úr öllum þeim líffærum og líkams-
hlutum sem þyrfti að fjarlægja á Borg-
arspítalanum.
„Mér voru sýndar þessar niður-
stöður barnanna,“ segir Ólafúr G.
Einarsson menntamálaráðherra.
„Sérfræðingar ráðuneytisins segja
mér að þær séu rangar í öllum helstu
atriðum. Ég tel því eðlilegt að kennar-
inn víki á meðan rannsókn fer ffam.“
„Auðvitað laug ég í börnin,“ segir
Kristján Sveinsson kennari. „Ég gerði
það ekki af illkvittni og ég gerði það
ekki vegna þess að ég er á lágum laun-
um. Ég gerði það eindfaldlega af leið-
indum.“
„Ég veit að allir kennarar sem hafa
setið uppi með sama námsefni ára-
tug eftir áratug skilja mig," sagði
Kristján Sveinsson kennari þegar
hann var leiddur út úr skólanum í
morgun.
Engin stólaskipti íríkisstjórninni
RAÐHERRARNIR MUNU
SKIPTAST Á BÍLUM
Meðal tillagna var að ráðherrarnir skiptust á konum en
ekki stólum. Jóhanna Sigurðardóttir hafnaði þvi.
Reykjavík, 29. apríl.
Á næturfúndi síðustu nótt tókst
loks að höggva á þann hnút sem
myndast hafði í ríkisstjórninni
vegna yfirlýsinga um stólaskipti.
Þegar til kom sátu allir ráðherr-
amir sem fastast og ekki var hægt
að ná stólnum undan neinum
þeirra. Á endanum samþykktu
þeir að skiptast á bílum, til að gera
eitthvað.
Um tíma í nótt leit út fyrir að ráð-
herrarnir mundu skiptast á konum.
Af því varð ekki eftir að Jóhanna Sig-
urðardóttir rauk á dyr og hótaði að
segja af sér. Hún átti að fá eiginkonu
Jóns Sigurðssonar. Jón átti hins veg-
ar að fá eiginkonu Þorsteins Páls-
sonar, sem sat uppi konulaus þar
sem Jóhanna gat enga konu skaffað til
skiptanna.
Fyrr um nóttina höfðu ráðherrarnir
rætt um að skipta um ráðuneytis-
stjóra, en sú hugmynd féll á því að
enginn vildi ráðuneytisstjóra úr
menntamálaráðuneytinu, þar sem
sýnt þótti að á þeim bæ væru menn
aldir upp við að standa í bréfaskiptum
í nafni ráðherra en án hans samþykk-
is.
Heimir er sammála Ólafi G. um að
hann sé ekki sá sem Ólafur taldi sig
hafa ráðið.
Athugasemd frá
Heimi Steinssyni
ÉG ER EKKISÁ
HEIMIR SEM
ÓLAFUR RÉÐ
Vegna ummæla Ólafs G. Einars-
sonar menntamálaráðherra um að ég
sé ekki sá Heimir Steinsson sem hann
réð sem útvarpsstjóra vil ég taka fram
að þetta er rétt hjá ráðherranum. Ég,
Heimir Steinsson, sótti til dæmis
aldrei um sem útvarpsstjóri. Seinna
frétti ég að Ólafur hefði fengið um-
sókn í mínu nafni og veit ég ekki
hvaðan hún kom. Sá sem skrifaði þá
umsókn mun vera sá Heimir sem Ól-
afur réð. Þegar Ólafúr hringdi í mig
og bauð mér starfið gat ég hins vegar
ekki hafnað því.
Heimir Steinsson
útvarpsstjóri.
Sparnaðar-
verðlaun ríkis-
forstjóra
GUÐMUNDUR í
ÞJÓÐMINJA-
SAFIMINU SPAR-
AÐI MEST
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra veitti
honum fyrstu verð-
laun í sparnaðar-
átakinu í gær.
Reykjavik, 29. aprfl.__
„Það er ekki aðeins að Guð-
mundur hafi sparað mest í
krónum talið heldur báru að-
ferðir hans af sakir frumleika,“
sagði Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra meðal annars þegar
haxm afhenti Guðmundi Magn-
ússyni þjóðminjaverði verðlaun
í spamaðarsamkeppni ríkisfor-
stjóra.
Eins og fram hefúr komið í ffétt-
um brann allt bátasafn Þjóðminja-
safhsins fyrir skömmu. Samkvæmt
útreikningum ríkisendurskoðunar,
sem var dómneftidinni til ráðgjafar,
hefði varðveisla þessara báta kost-
að safhið um 125 milljónir á næstu
tíu árum. Þetta var langmesti
sparnaður sem nokkur ríkisfor-
stjóri náði. Sá sem kom næstur,
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, lagði fram 800
króna sparnað með því að semja
sérstaklega við Kaffibrennslu 0.
Johnson & Kaaber um kaffiveiting-
ar á stjómarfúndum.