Pressan - 14.10.1993, Page 28

Pressan - 14.10.1993, Page 28
Engar áhyggjur, þetta var ekkert alvarlegt. Fingur mínir renna ekki til á lyklaborðinu á tölvunni enn. Kæri Von Fritz a La Kúst, upp meö kaupmáttinn, minn fylgir á eftir og gef- ur þér sitt X í næstu kosningum. Annars er ástandið alvar- legt! Sumir eru ekki búnir að fá það lengi. Síðan þegar þeir eru loksins að fá það, kannski eftir tíu mánaða bið, alveg í spreng, þá kvarta þeir sem ætluðu að gefa þeim það. Bera því við að þeir hafi ekki verið alveg nógu þurfi. Orðlaus. Ekki hafa þeir prófað að vera án þess í tíu mánuði, ég mundi sturlast. Vitandi lika að allir í kring- um mig væru að fá það óþvegið, í eiginlegum skilningi. Fyrr má nú særa en drepa. Og það virðist næstum því betra að drepast en að komast og fá þaö á íslandi. Tveir örkumlaðir menn komu frá Bosníu, vantaði á þá nokkra líkamsbúta hist og her á anatómíunni. Skítt með það. Fyrir okkar mætu og menntuðu heilbrigðara var þetta ekki nóg. Það á aö kvarta og klaga í útlendinginn. Þeir væru ekki með nógu stórt bátti og því væri svoldið erfitt að láta þá fá það. Lækningu og eða bata. Hippókrít-arkort! Ráð væri að Gvendur Áá Stefáns færi að skera undan einhverjum af þeim sem ráða til þess eins aö þeir hættu að hugsa með klofinu og nýttu blóðið fyrir al- menna heilastarfsemi. Síöan væri hægt að gefa ráðamönn- um þessi heilbrigðiskort. Almennur sparnaður mundi skap- ast því þau yrðu varla fleiri en hundrað. Við hin væmm að minnsta kosti viss um að ráðamenn hefðu staðist heil- brigöistestið og heilinn í þeim fúnkeraði normalt eða næði lágmarksgetu. Fengi alltént nóg af blóði, sem er nauðsyn- legt eðlilegri heilastarfsemi. Hvernig er örkuml í fleirtölu? Þeir virðast aldrei fá nóg. Hvenær er löpp ekki löpp? Þegar það er búið aö sprengja hana af, þá er hún út um allt. Ég er nokkuð dús við þefinn í kamesinu mínu, ég hef ekki geð í mér til að bera hann saman við rafmagnslausa líkgeymsluna í Sarajevo.____________________________________ Einar Ben. BÓKMENNTIR Tvœr unglingabœkur — leiðindi og skemmtun Gekk Sigurður Flosason saxófónleikari sendi á dögunum ífá sér nýjan djassgeisladisk og ber hann nafnið „Gengið á lagið“. Öll lögin á geisladiskinum eru eft- ir Sigurð, nokkur eldri sem hann hefur samið síðustu árin, en hin glæný. Fjórir valin- kunnir hljóðfæraleik- arar koma fram ásamt Sigurði, þeir Eyþór Gunnarsson, sem leik- ur á píanó, Pétur Öst- lund trommuleikari, sænski trompetleikar- inn Ulf Adáker og Daninn Lennart Gin- man, sem leikur á kontrabassa. Útgefandi geisladisksins er út- gáfúfélagið Jazzís, sem nýverið var komið á fót í því augnamiði að auka veg íslenskrar djasstónlistar. Sigurður Flosason er einn stofnenda Jazzís, en að félaginu standa annars vegar djassdeild FlH og hins vegar Jazzvakning. „Með stofnun félagsins erum við, sem höfum ánægju af djasstónlist á íslandi, að reyna að bjarga okkur sjálfir,“ segir Sigurður. „Það hefur reynst mjög erf- itt fyrir okkur djass- leikara að fá tónlist okkar gefna út og því töldum við einu færu SlGURÐUR FLOSASON SAXÓFÓNLEIKARI. Nýbúinn að senda frá sér djassgeisladisk sem inniheldur bæði gamalt og nýtt. á LEIFESPER ANDERSEN: BRENND Á BÁLI ★ MATS WAHL: HÚSBÓNDINN ★★★★ MÁL OG MENNING 1993 KOLBRUN Sjálfsfróunaráráttan er farin að valda mér miklum áhyggjum. Þetta viröist alltaf stefna í eitthvað en síðan kemur ekki neitt: ekki blístur eða stuna eða vott hljóð. Bara ekki neitt! Þetta hlýtur að vera einhver ónáttúra. Og ég sem er með nýjasta þingmannatalið fyrir framan mig. Eða ætti ég að kalla það þingmannahjal. Þau hafa virkaö vel hingað til fyrir mig. Öll hin gömlu bindin eru saman- klesst uppi í bókaskáp, sæta anganina leggur frá skápn- um. Eina sem eyðileggur þessa angan er daunninn frá log- andi tóbaksglóðinni, samt heyrist frá útvarpinu hið gullfal- lega Adagio eftir Albinoni. Allar aðstæður eru eins og best veröur á kosið. Það er eitthvað að! Enginn nágranni er að gægjast meö kfki, kon- ' an farin að sofa, ég er einn og ætti aö geta flaggað í það minnsta í hálfa. Er ég búinn að vinna of mikið? Ég hef heyrt að vinnuálag skapi dofa og deyfö. Bæði í blóðrás og kirtlum. Andskotinn! Nú fer ég að trúa þessum elskum sem eru fyrir framan mig í þessu þingmannahjali, að kaupmáttur sé farinn aö rýrna og menn þurfi að vinna meira. Til þess eins aö borga helstu reikninga. Ég sé fram á að ég slaki á sultarólinni um vömbina á mér og vefji henni um tippið næst, og ég sagði næst, þegar ég fæ standpínu. Stoppa bara blóðið f að fara aftur til heilans. Og til hvers líka? Svo að heilinn geti haldið áfram að hafa áhyggjur af hreyfing- um á hlutabréfamarkaöi VÍB. Nó vei. Ég vil mitt... núna. Augnablik, það virðist eitthvað vera að gerast, mig svimar í það minnsta. Danski rithöfundurinn Leif Esper Andersen vann tii verð- launa fyrir bók sína Brennd á báli. Efnið er hið áhugaverð- asta. Unglingsdrengur flýr þorp sitt eftir að móðir hans, sem stundað hefúr lækningar, er sökuð urn galdra og brennd á báli. Á flótta sínum hittir drengurinn gamlan mann, læknisíróðan. I bókar- lok bíða gamla mannsins sömu örlög og móðurinnar; honum verður kastað á bál. Og drengurinn er enn á flótta. Þetta er sérlega drungaleg og þunglyndisleg saga og uppeldisgildið vegur þarna allmiklu þyngra en skemmt- anagildið, sem er nær ekkert. Hér er varað við hjátrú, for- dómum og þekkingarleysi og allt kemst það sæmilega tii skila, en ósköp er maður mæddur eftir lesturinn. Hér ríkir engin frásagnar- gleði. Frásögnin er nákvæm en fremur lífvana, það er ein- hver mjög ábyrgur og með- vitaður tónn í bókinni allri, en hann hljómar ekki sann- færandi og gerir bókina til- gerðarlega. Gamli maðurinn og dreng- urinn eru mestallan tímann einir á sviðinu og höfundur segir okkur að á milli þeirra myndist sterk tengsl en orð persónanna endurspegla eng- an sérstakan trúnað eða væntumþykju. Samtöl þeirra eru stirð og persónurnar daufgerðar. Þetta er allt ffem- ur niðurdrepandi og lítt skemmtilegt. Húsbóndinn eftir Mats Wahl er nær allt sem bók Andersens er ekki. Wahl kann svo sannarlega að segja sögu. Saga hans gerist í upphafi 19. aldar og segir frá ung- lingsdrengnum Kalia sem ræður sig í vist hjá Pétri Gothberg og fjölskyldu hans. Gothberg þessi býr á lítilli eyju og drýgir tekjur sínar með sjóránum og morðum. Dætur Gothbergs, nokkru eldri en Kalli, taka þátt í þess- ari óskemmtilegu iðju föður sins og njóta hennar mjög, enda eru þær hin mestu flögð. Þarna eru flögðin sem kvikmyndagagnrýnandi P.RESSUNNAR, Guðmundur Ólafsson, saknar svo mjög úr kvikmyndum og bókum og hefur auglýst eftir. Hér eru flögðin tvö og valsa um með exi og höggva mann og ann- an meðan sæluhrollur fer urn lesandann. Gothberg og fjölskylda hans eru þessi tegund ill- menna sem lesandinn fer ósjálfrátt að halda með. Þetta „Gothberg býr á lítilli eyju og drýgir tekjur stnar með sjórán- um og morðum. Dœtur Gothbergs taka þátt íþessari óskemmtilegu iðjuföður sins og njóta hennar mjög, enda eru þœr hin mestu flögð. Þarna eruflögðin sem kvikmynda- gagnrýnandi PRESSUNNAR, Guðmundur Ólafsson, saknar svo mjög úr kvikmyndum og bókum og hefur auglýst eftir. “ er litríkt fólk og bráð- skemmtilegt en hefur vita- skuld enga sómatilfinningu eins og iðja þess bendir til. Þetta eru hin sympatísku ill- menni sem svo mikil ánægja er að lesa um. Mats Wahl nýtur þess greinilega jafnmikið að segja söguna og lesandinn að lesa hana. Frásögnin er fúll af fjöri og spennu. Þetta er saga sem lesandinn lifir sig inn í. Hún er dulítið óhugguleg. Þarna eru axarmorð og flóttatil- raunir og eitthvað af kynferð- islegu káfi (það eru flögðin vergjörnu að þreifa á ung- lingspiltinum). En það er allt í hollum hasarstíl og jafnvel siðprúðasta lesanda ætti ekki að verða meint af. Þetta er bók fyrir hina fjölmörgu að- dáendur Gulleyju Roberts Louis Stevenson. Bókin er sérlega vel þýdd, en það er Hilmar Hilmarsson sem á heiðurinn af þýðing- 28 PRESSAN ISLENSKUR DJASS Fimmtudagurinn 14. október 1993 lagið leiðina að reyna að standa að útgáfunni sjáifir. Við erum þeirr- ar trúar að það komi íslenskri djasstónlist hvað mest til góða ef verk hinna ýmsu og ólíku tónlistarmanna eru kynnt hér og er- lendis undir einu og sama nafninu.“ Að sögn Sigurðar er hafin áskriftasöfnun í tengslum við útgáfufé- lagið nýja, en meining- in er að þrír djassdiskar komi út á ári á vegum Jazzís og er Gengið á lagið sá fyrsti í röðinni. Út- gáfuflokk- arnir verða þrír og til- heyrir disk- ur Sigurðar þ e i m fyrsta, sem tekur til nýrrar ís- lenskrar djass- tónlistar. Annar fiokkur inniheldur endurútgefið gamalt efni og verður fyrsta útgáfan tveir diskar sem gefnir verða út í mars til minningar um Guðmund Ingólfsson heitinn. Þriðji flokkur- inn nær yfir diska sem líklegir eru til að stækka áheyrendahóp djasstónlistarinnar, en ekki mun víst af veita. Þegar Viðar Egg- ertsson setti upp Drög aö svínasteik var svínið eitt á leik- sviðinu all- an tímann. Ekki ósvip- að og Hann- es Hólm- steinn nýtur þess að vera í I sviðsljósinu. Það * vantar bara að Hann- | es sleppi fram af sér | beislinu og leyfi sér J að skella upp úr. Þá sæist varla hvor væri I hvor. I I I I________

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.