Pressan - 02.12.1993, Side 2

Pressan - 02.12.1993, Side 2
I 2 PRESSAN FYRST OG FREMST Fimmtudagurinn 2. desember 1993 ÞORGEIR BALDURSSON. Forstjóri Odda er talinn eiga mikinn þátt í kaupum Fróða á Samútgáfunni-Korpus. MAGNÚS HREGGVIÐSSON. Sendi tilboðin ekki til Samútgáfunnar, heldur til prentsmiðjunnar Oddi vill hcalda líftóru í tímarit- um Kaup Fróða hf. á útgáfurétti tímarita Samútgáfunnar- Korpus komu þeim ekki á óvart sem fylgst höfðu með fyrirtækinu síðustu mánuði. Nokkra undrun vakti þó hversu slæm staða þess var, en ekki eru nema tuttugu mán- uðir síðan fyrirtækin runnu saman í eitt. Það var stærsti kröfuhafinn, Prentsmiðjan Oddi, sem hafði á endanum mest um söluna á útgáfunni að segja og talið er hafa vakað fyrst og fremst fyrir Odda- mönnum að tryggja sér fram- tíðarviðskipti um prentun á tímaritunum. Ekki var um að ræða opna leit að tilboðum, heldur fyrirspurnum beint einkum til þeirra sem þegar eru í viðskiptum við Odda. Þannig var Frjálsri fjölmiðlun, útgáfufyrirtæki DV, ekki gef- inn kostur á að koma að mál- inu, en þar á bæ eru vanga- veltur um að auka umsvifin á tímaritamarkaði. Það er talið til marks um hvernig Samút- gáfan-Korpus hafði misst sjálfsforræðið til Odda að kauptilboð í útgáfú fyrirtækis- ins voru ekki send á skrifstofu þess í Ármúla, heldur beint á skrifstofur prentsmiðjunnar. Nýdanskir í fýlu vio Hemma Gunn Glöggir áhorfendur Hemma Gunn sáu hljóm- sveitina Nýdanska „mæma“ frumsamið lag í síðasta þætti. Áður var það viðtekið að hljómsveitir „mæmuðu“ eða þættust spila tónlist sem var búið að taka upp áður í þætti Hemma. Nú þykja það hins vegar ekki góðar tvíbökur, enda telst atriðið þá ekki nema að hálfu leyti í beinni útsendingu. Því þótti það undarlegt að sviðsvön hljóm- sveit á borð við Nýdanska treysti sér ekki til að spila á hljóðfæri sín nema í þykjust- unni. Enda er forsaga að mál- inu. Það þykir ekki ónýtt nú þegar jólaauglýsingaslagurinn stendur sem hæst að komast í þáttinn hjá Hemma. Eins og menn muna hefúr Björn Jör- undur verið aðalgestur Hemma og auðsótt mál að hljómsveitin fengi að spila lag í þættinum. Nýdönsk átti að spila annars staðar seinna um kvöldið og var eitthvað að vandræðast með hljóðfæri sín. Það var því ákveðið af að- standendum þáttarins að grípa til gamla góða „mæm- bragðsins“. Nýdönskum barst það til eyrna og brugðust þeir við því með að segja að þeir þyrftu ekkert á þessum þætti að halda, Hemmi gæti bara átt sig. Nú fór í verra, því það var þegar búið að auglýsa þá í þættinum. Það var svo á síð- ustu stundu að Egill Eðvarðs- son útsendingarstjóri hringdi til þeirra drengja og sagði þeim að annaðhvort stæðu þeir við skuldbindingar sínar eða.... Útkomuna sáu sjón- varpsáhorfendur á miðviku- dagskvöld fýrir rúmri viku. Kuldakast hjá gömlum vinum Gamli gúanórokkarinn Bubbi Morthens fer hvorki í grafgötur með ástina til konu sinnar né lífsins um þessar mundir. Opinberlega syngur hann um hve lífið sé ljúft og I tónlistarmyndböndum er hann meira að segja farinn að hleypa áhorfendum inn í einkalíf sitt með því að sýna börn sín og konu. Ekki er honum þó jafnhlýtt til allra; allir vita um fjandskap hans og Steinars Bergs en færri vita að Megas og hann eru ekki ýkja góðir vinir um þessar mundir. Megas og Bubbi hafa löngum náð saman í tónlist- inni meðal annars á plötunni „Bláir draumar“ sem þeir gerðu saman. Fatlafólið er frægur dúett þeirra og þannig má lengi telja. Ekki er ljóst með hvaða hætti slettist upp á vinskapinn, en það fór ekki framhjá neinum sem tók á móti þeim uppi á Rás 2 á tíu ára afmælinu í gærmorgun að á milli þeirra andaði köldu. Þeir töluðust hvorki við né vildu vera nálægt hvor öðr- um. Menn spá því þó að ekki muni líða á löngu þar til grær um heilt þeirra á milli, svo sterk séu vináttutengslin. Baltasar fljótari til en Diddi fiðla A&standendur söngleiksins Hársins, sem settur var upp viö miklar vinsældir hér á landi snemma á áttunda áratugnum, ákváðu síðastliðið sumar að það qæti verið sniðug hugmynd að endurtaka leíkinn.^Sig- urður Rúnar Jónsson, alías Diddi fiðla, var sendur út af örkinni og samdi hann við Nýja bíó um sal undir syningar. Síðan var haldið af stað til Ameríku og fenginn réttur að sýningunni. Þeaar heim kom var tekið til við að lesa smáa Tetrið og kom þá í Ijós að aðeins mátti setja sýninguna upp á ensku. Það þótti ekki par sniðugt, svo aftur var haft samband við ameriska rétthafann. Hann benti Didda fiðlu á fyrirtæki í Kaup- mannahöfn sem seldi réttinn til að „lókalis- era" verkið, þ.e. hafði til sölu réttinn til að setja Hárið upp á íslensku. Diddi hringir þangað, en þa bregður svo við að fyrirtæki sem ber heitið West Side River Company var nýbúið að festa sér réttinn til að setja Hárið upp á íslensku. Þeaar farið var að kanna hvaða fyrirtæki þetta væri fyrir nokkuð kom í Ijos að það var skráð á nafn Baltasars Kormaks, sem er leikari við Þjóð- leikhúsið. Nú gera menn því skóna að west Side River Company sé fyrirtæki á vegum Þjóðleikhússins, sem þarna krækti í sýning- arréttinn rétt við nefið á Didda fiðlu og Brynju Benediktsdóttur leikstióra. En sagan er elcki búin enn, því amerísícu rétthafarnir setja þau skilyrði almennt fyrir uppfærslu Hársins að það sé ekki sett upp i stofnana- leikhúsi heldur helst hjá „jaðarleikhópi" og sé þannig uppruna sínum trútt. Þjóðleikhús- ið nafi m.ö.o. eingöngu verið að „kaupa is- lenska staðfærsluréttinn" til að koma i veg fyrir samkeppni frá Brynju Ben, Didda fiðlu og co. Hafi Pióðleikhúsið þar lært af reynsl- unni frá því leikhúsið neitaði að setja upp Litlu hryllingsbúðina fyrir nokkrum árum, sem Hitt leikhúsið tók upp og rífleaa fimm- tíu þúsund áhorfendur sau. Það fylgir sög- unm að Brynja og Diddi nái ekki upp í nef sér yfir þessu meinta framferði Þ|oðleik- hússins. BALTASAR KORMÁKUR OG DIDDIFIÐLA. Bítast um sýningarréttinn að Hárinu. Gibson kemur, hann kemur ekki, hann kemur ... Lengi hefur staðið til að ástralski leikarinn Mel Gibson kæmi hingað til lands til að vera viðstaddur frumsýn- ingu nýjustu myndar sinnar, sem hann bæði leikur í og leikstýrir. Forsýning myndarinnar, sem ber titilinn A Man Without a Face, er áæduð í Regnbog- anum 19. desember en frumsýning þremur dögum síðar, eða þann 22. Enn er óljóst hvort kappinn kemst. Það væri þá helst á forsýninguna, því Gibson hyggst eyða jólunum með fjöl- skyldu sinni í Ástralíu, sem er víst hin- um megin á hnettinum. Sótt qð Markúsi Erni Mikils titrings gætir nú í röðum sjálfstæðismanna eftir að skoðana- könnun DV sýndi að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mundi stela borgarstjóra- sætinu af Markúsi Erni Antonssyni án mikillar fýrirhafnar stæði valið á milli þeirra tveggja. í lesendabréfi í DV í vikunni var svo kvartað yfir því, og vitnað í umræðuþátt í útvarpinu, að þótt sjálfstæðismenn æduðu í prófkjör í borginni í janúar væri búið að taka frá fýrsta sætíð fýrir Markús Örn borg- arstjóra. Margir sjálfstæðismenn munu sáróánægðir með þessa óvenju- legu tilhögun á lýðræðinu og mun þessi óánægja ná langt inn í raðir full- trúaráðs Sjálfstæðisflokksins. Hafa óánægðir fulltrúaráðsmenn farið á stúfana að leita að frambjóðanda á mótí Markúsi Erni og hefur m.a. verið leitað til Guðrúnar Pétursdóttur, dó- sents og lífeðlisfræðings og Tjarnar- ráðhússandstæðings, um að gefa kost á sér. BJÖRN JÖRUNDUR. Hann og félagar hans móðguðust og vildu sleppa „performans" hjá Hemma. BUBBI MORTHENS. Eitthvað ekki sáttur við sinn gamla vin. MEGAS. Ekki alveg dús við Bubba. MEL GlBSON. Óvíst hvort hjartaknúsarinn lætur sjá sig á Fróni. InARKÚS ÖRN ANTONSSON. 1. sætið frátekið fyrir hann. GUÐRUN PÉTURSDÓTTIR. Leitað hefur verið til hennar vegna borgarstjórastóls- ins. UMMÆLI VIKUNNAROabar vaxa epli og bananar! „Æpýðubandalagið er litrænn tlökkur. Ólafur Ragnar Grímsson Það er ýmist í ökkla eða eyra ... .. « .AA0/ „Þjóðleikhúsinu færi ég hamingjuóskir og um B vlglS 111011II11111 l>l*tlgcl IJÖlgcU* lllll löö /0 leið þakkir fyrir að færa okkur þessa einstöku „Islensk þjóð má vera stolt af því að eiga annan eins listrýni og listamann og listaverkagjöf.“ Braga Ásgeirsson.“ Súsanna Svavarsdóttir bestaskinn Sveinn Björnsson þverhaus $ÆLL OC BLESSAÐUR! „Það er auðvitað mjög hryllilegt að það skuli vera skuldir en þetta stjómast af þeim aðstæðum sem menn hafa verið að skapa.“ Árni Hjörle'rfsson Hafnarfjarðarkrati Af hverju sagðirðu það ekki strax? Mín skoðun er sú að til staðar þurfi að vera heilbrigt og traust samband útgef- enda og flytjenda þar sem faglegur metnaður ríki og skýr verkaskipting eins og í allri góðri samvinnu.“ Steinar Berg krossfari

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.