Pressan - 02.12.1993, Side 6

Pressan - 02.12.1993, Side 6
F R E TT I R 6 PRESSAN_________ Guðni H. Guðnason, eigandi æfingastöðvarinnar Colob Fimmtudagurinn 2. desember 1993 GUÐNIH. GUÐNASON. Enginn efast um áhuga hans á bardagalist og hugrækt — það er hins vegar verra með gráðumar. Þær finnast ekki. SKAMIWTAR SJALFUM SER FERIL OG GRÁÐUR í EIGIN SÖFNUDI Félagar í Svíþjóð kannast ekki við „lífvarðarferH“ þar. Engar staðfestingar á svörtu belti í karate eða júdó né námsferli í sálarfræði við erlendan háskóla. Eftir fremur óvænta uppá- komu um síðustu helgi, þar sem í sjónvarpi mátti sjá unga pilta slást í ímefaleikahring með hanska, hefur starfsemi Guðna H. Guðnasonar, eig- anda Colob-stöðvarinnar í Ármúla, verið í rannsókn. Guðni segist byggja á austur- lenskri bardagahefð í starf- semi sinni, við litla hrifningu annarra íþróttamanna, sem segja hann þvert á móti byggja á blekkingum. Hafa samtök karate- og júdó- manna sent frá sér tilkynning- ar þar sem þeir sverja af sér öll tengsl við Guðna, sem þeir segja próflausan og réttinda- lausan. Margt vekur athygli þegar ferill og störf Guðna eru skoð- uð og fátt af því sem hann segir sjálfur stenst nánari at- hugun. Hann segist hafa búið til eigið kerfi, „algerlega minn stíl“, eins og hann segir sjálf- ur, sem sé afbrigði sem hann hafi þróað upp úr austur- lenskri bardagalist effir tutt- ugu ára feril í mörgum af- brigðum þessarar bardagalist- ar. Stílinn heitir fujuka-do sem er „nútímakerfi byggt á tækni ýmissa gamalla bar- dagalista“ — eins og segir á auglýsingaspjaldi frá honum. Gagnrýnendur Guðna segja að hann hafi bara soðið þetta nafn upp úr nöfhunum kung- fu, júdó og karate. Því neitar Guðni ekki. 1 viðtali við DV fyrr á árinu segist hann blanda saman hugrækt og bardagalist og hafa búið til „... kokkteilblöndu af öllu því besta í þeim bardagastílum sem ég hef verið að æfa“. Það er í samræmi við það sem hann hefur úthlutað sjálfum sér, gráðuna 10 dan, sem aðrir bardagalistamenn segja að sé tóm vitleysa. Varla séu til menn sem hafi náð þessu, en Guðni segir á móti að hann hafi skilgreint sjálfan sig á þessum styrkleika í eigin stfl. Fimmtán ára gömul íslensk að- ferð varð að 2.000 ára gömlu fyrirbæri En ferill Guðna byggist á ýmsum eyðum sem hann á erfitt með að fylla upp í. Fyrir ellefu árum fór hann til Sví- þjóðar í samfloti með Herði Harðarsyni, hreyfilista- og myndlistarmanni. Hörður hafði ásamt Hauki tvíbura- bróður sínum þróað kerfi hér heima sem þeir kölluðu kime- wasa og þótti athyglisvert. „Þetta var unnið úr ýmsum áttum sem hreyfilistakerfi og við notuðum það fyrst og ffemst sem listform. Þetta var þó sjálfsvarnarkerfi á vissan hátt,“ sagði Haukur, en þeir bræður höfðu verið í júdó áð- ur og margfaldir Islands- meistarar þar. Hjá þeim hófst ferill Guðna, sem var nemandi þeirra. Síðasta haust auglýsti Guðni hins vegar kennslu þar sem hann sagði að kimewasa væri 2.000 ára gamalt bar- dagakerfi, þó að allir viti að þeir bræður Haukur og Hörður þróuðu kimewasa. 1 samtali við þá kom ff am mikil óánægja með þetta frum- hlaup Guðna, enda hætti hann að auglýsa kimewasa þegar hann var beðinn um það. Engar upplýsingar að hafa um fjögurra ára „Irfvarðarferil" Fyrir nokkru komst Guðni í sviðsljósðið þegar hann boð- aði stofnun „lífvarðaskóla" sem hann sagði að byggðist á sinni eigin reynslu, en hann segist hafa starfað um íjögurra ára skeið sem lífvörður í Sví- þjóð. Hann vill hins vegar ekki útlista nánar í hverju það var fólgið eða hvar starfið fór fram, — segist hafa unnið víða um Svíþjóð. „Það eru trúnaðarupplýsingar hjá hvaða viðskiptavinum maður hefur unnið. Það þekkist nefnilega að menn verði fórn- arlömb hryðjuverka ef fféttist að þeir hafi lífverði,11 sagði Guðni þegar hann var beðinn umdæmi. Þeir sem gleggst þekkja feril Guðna í Svíþjóð segja að þetta sé bull. Allan tímann sem Guðni dvaldi í Svíþjóð bjó hann í Linköping og Gauta- borg. Þar kynntist hann Peter Olming og ráku þeir æfinga- stöð saman um skeið. „Þetta er tómt bull,“ sagði Peter þeg- ar hann var spurður hvort hann þekkti lífvarðarferil Guðna og bætti við: „Þegar hann var hér sagði hann okk- ur að hann hefði unnið sem lífvörður á Islandi og rekið líf- varðaskóla þar. Það er mín reynsla að ekki sé hægt að trúa orði af því sem hann seg- ir,“ sagði Peter, sem vinnur nú sem næturvörður í Lin- köping. Eftir því sem næst verður komist eru einu af- skipti Guðna af slíkum störf- um þau að hann fór í viðtal vegna öryggisgæslu hjá Saab- verksmiðjunum. Að sögn Harðar kom Guðni fram með honum á hreyfilistasýningum fyrst eftir að komið var til Svíþjóðar, en síðar auglýsti hann námskeið og tók nemendur. Var þá helst að kenna kimewasa. Um leið sagði hann öllum að hann væri með svarta beltið í karate og júdó. Hörður segist sjálfur hafa gert athugasemdir við þær blekkingar og það hafi fleiri gert. Fljótlega eftir það hætti starfsemin í Linköping og Guðni fluttist til Gautaborgar. Þar gerði hann tilraun til að koma undir sig fótunum með námskeiðahaldi og stofnun skóla, en Peter taldi að það hefði haft slæmar afleiðingar fyrir hann fjárhagslega. Á síð- asta ári flutti hann síðan aftur til íslands. Sérfræðingur á öllum sviðum mannltfsins Fyrst í stað tilkynnti Guðni að hann ædaði að stofria líf- varðaskóla og kom meðal annars fram í útvarpsviðtali vegna þess. Námskeiðið átti að standa í sex vikur og kosta 250 þúsund krónur og ætlaði Guðni að kenna mörg athygl- isverð námsefni sjálfur, s.s. glæfraakstur, meðferð sprengiefria og meðferð skot- vopna. Óljóst er hvort aðsókn var nokkur, fýrir utan einhver námskeið fyrir starfsmenn Vöktunar, enda ljóst að um- fangsmikil leyfi þarf frá lög- reglustjóraembættinu fyrir sumum þeirra. Guðni aftekur hins vegar að hugmyndin um skólann sé dottin upp fýrir, en ber fýrir sig aðstöðu- og tíma- leysi. Auglýst þekking Guðna er víðfeðm. Fyrir utan að bjóða upp á kennslu í flestum grein- um austurlenskrar bardaga- og sjálfsvarnarlistar kennir hann margskonar hugrækt. Þegar hann var spurður hvort hann ætti við jóga svaraði hann: „Ekki beinlínis, heldur vesturlenska hugrækt.“ Af samtölum við Guðna má ráða að hann sé hugfang- inn af margskonar dulhyggju þótt hann neiti algerlega öll- um tengslum við nýaldarfólk. Heimildir eru fyrir því að hann vilji kenna „hvítagald- ur“ og úttalaði hann sig um það meðal annars í viðtali við Morgunblaðið í september. í því sama samtali íjallaði hann um margskonar heilsumeð- ferð sem hann hygðist bjóða upp á, svo sem kristallaheilun, árunudd og orkupunkta- nudd. Allt eru þetta kunn ný- aldarfyrirbæri. 1 samtali við blaðamann vildi hann ekki fjalla um það nánar. Námskeið fyrir fórnarlömb nauðgunar Þá hefur Guðni auglýst námskeið í sjálfsvamarlist fyr- ir eldri borgara við misjafriar undirtektir karate- og júdó- manna. Þeir segja einfaldlega að það sé tóm vitleysa að kenna öldruðu fólki sjálfs- vamarlist. Það sé mun líklegra til að skaða sjálft sig en árásar- manninn við beitingu vamar- bragða. Guðni hefur einnig auglýst sjálfsvarnarnámskeið fyrir konur eftir „... kerfi sem ég hef sett saman. Þar er t.d. unnið með vöm gegn nauðg- un og sálfræði tengda henni. Við skoðum alla möguleika í kringum hugsanlega árás, hvernig best sé að bregðast við, og förum jafnvel í það hvað hægt sé að gera ef nauðgari nær að koma ffarn vilja sínum,“ eins og hann sagði í fýrrgreindu samtali við Morgunblaðið. Eftir því sem næst verður komist kennir Guðni þetta sjálfur og byggir þá meðal annars á „sálfræðinámi mínu við Gautaborgarháskóla“. Hann sagði sjálfur að hann hefði aldrei lokið neinum prófum þar en aðrar heimild- ir segja að háskólaganga hans hafi fyrst og fremst falist í stopulli námskeiðasókn. Áð lokum má nefna enn eitt námskeiðið sem hann ætlar að halda og byggist á kynlífsfræði sem hann lagði — að eigin sögn — stund á við Gautaborgarháskóla. Það er námskeið í erótík fýrir pör, nokkurs konar sjálfshjálpar- námskeið. Skjól fyrir utangarðsunglinga Þegar gengið er um æfinga- stöðina í Armúla með Guðna kemur fram að hann hefur miklar fýrirætlanir. Hann seg- ist ætla að hafa þar nokkurs konar félagsmiðstöð fyrir utangarðsunglinga og boðaði meðal annars að þar yrði opið hús yfir jólin með fastri dag- skrá. Sagðist Guðni vera sannfærður um að hægt væri að koma unglingum á rétta braut með slíku samspili hug- ræktar og bardagalistar- kennslu. Sagðist hann hafa átt viðræður við forráðamenn forvarnadeildar lögreglunnar og starfsmenn útideildar um það. Ekki náðist samband við þá til að fá staðfestingu á slflcu samstarfi. í samtali við Guðna og Heiðar fýlgismann hans, sem blandaði sér í samtalið, kom greinilega fram að þeir sækja sér fyrirmyndir víða. Var gjarnan vitnað í leikarann Bruce Lee og heimspeki „Ninja Turtles“-myndanna. Guðni kallar reyndar nám- skeið fyrir 6 til 12 ára börn „Turtle Kung Fu“ eða skjald- bökuaðferð. Afdrif þessara fýrirætlana munu hins vegar að nokkru ráðast af lögreglu- rannsókninni sem nú stendur yfir vegna bardagans um síð- ustu helgi. Siguröur Már Jónsson

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.