Pressan - 22.12.1993, Qupperneq 22
E N G L A R A
22 PRESSAN .
Miövikudagurinn 22. desember 1991
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
félagsmálaráðherra
Burtséð frá átökunum í Alþýðuflokknum hefur það sýnt sig að það er ekki auðvelt
hlutskipti að vera kona í valdhrokanum í ríkisstjórninni. Vinsælasti ráðherrann og að
margra dómi engill í mannsmynd.
ÓSKARMAGNÚSSON
forstjóri Hagkaups
Stýrir fyrirtæki sem reynir nýjar leiðir við að selja ódýran mat í vaxandi fátækt. Slyngur, en samt alltaf eins og sakleysið uppmálað.
ANNA MJÖLL ÓLAFSDÓTTIR
söngkona
Líkt og Elísabet Taylor var hún afar góð við
vin sinn Michael Jackson á árinu. Það
mundu aðeins englar gera. Svo lítur hún
svona út. Eins og engill.
Hvernig lítur engill út í huga okkar? Vafalaust hrokkinhærður, Ijóshærður, kynlaus snáði
með björt augu og hjarta úr gulli. Og ekki má gleyma því að hann spilar á hörpu. Það reynd-
ist PRESSUNNI enda ekki auðvelt að komast yfir fullorðinsenglabúning. Það tókst þó að
lokum og það tókst líka að fá eðalmennin Halldór Blöndal, Erlu Rafnsdóttur, Svövu Johan-
sen og Eyþór Arnalds - - sem eru í okkar huga Englar ársins, ásamt nokkrum í viðbót - - til
að klæðast þeim. Hefðu þau gengið um göturnar eins og þau birtast hér á myndunum má
búast við að þau hefðu — líkt og þingmennirnir sem birtust á forsíðu PRESSUNNAR í sum-
ar íklæddir hippafötum — stöðvað alla umferð. Englar dagsins í dag eru væntanlega ekki
bara þeir sem leika hlutverk Móður Teresu daginn út og inn. Ef svo væri færu fáir íslending-
ar til himna. Englar íslands eru bara fólk sem er duglegt, elskað af einhverjum, lætur gott
af sér leiða (ef til vill eitthvað smáslæmt líka) og er áberandi í umhverfi sínu. Þetta eru svo-
kallaðir „survivors", sem því miður er ókleift að þýða vel yfir á íslensku en nær yfir þá sem
standa af sér alla vinda, hvursu hvassir sem þeir kunna að vera. Þeir skila sér heilir til
baka. Og ef til vill meira en það. Þetta eru dægurhetjur síðasta árs. Englar íslands.