Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 6

Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 6
é° var í, og varð þá að láta fang- a a úr honuni fara yfir i annan. Þ varð mikil þröng og svitinn bog- a. ; af manni, enda var hiti mikill. Fe.ðin stóð alian daginn og fengum við hvorki vott né þurrt. En á járn- brautarstöð, þar sem við áttum að fara í lest, gátu þeir, sem höfðu peninga, keypt sér ís og ávexti, en við hinir horfðum á með lafandi tnngu. Þegar til átti að taka, var lestin farin, og var þá ekið með okk- ur aftur til baka sömu nóttina! Við vorum eina átta daga í þess um fangabúðum, áður en farið var með okkur af stað aftur og nú tii Liverpool og þaðan til aðalfangabúða Bretlands á eynni Mön úti fyrir vesturströnd landsins. Þar vorum við í nokkra mánuði, en síðan fluttir aft- ur til Liverpool. Höfðu óMlgerð hús j árn brautarstarf smann a borgarinnar verið t-ekin í notkun sem fangabúð- ir. Ég fór strax að vinna hjá Eng- lendingunum, því að maturinn var ekki heldur góður þar. Miklar loft- árásir voru gerðar á Liverpool, en aidrei kom fyrir, að sprengja félli á fangabúðasvæðið, en einu sinni féll ein svo nálægt, að ég endasentist, ásamt nokkrum öðrum föngum, eftir undirgangi, sem lá milli fangahús anna, bara af loftjjrýstingnum ein- um saman. Sífellt loguðu ógurlegir eldar í borginni, sem lýstu langar leiðir. En ég og félagar mínir vorum á eilífum þeytingi. Næst vorum við fluttir aftur til Skotlands. Fangabúða stjórinn var hinn sami, sem við höfð- um haft fyrst, en staðurinn var ann- ar. Ég var í eldhúsinu og mátti hafa mig allan við til þess að gæta þess, að varðmenn okkar stæJiu ekki frá okkur brauðinu: Þeir fengu nefni- lega minna en við og voru Sísvang- ir. Það kom oft fyrir, að við feng- um ekki böggla, sem okkur voru send ir að heiman, eða þá, að stundum var ekki nema helmingur þess í þeim, sem átti að vera. Okkur var sagt, að þeir hlytu að hafa opnazt og týnzt úr þeim, en við vissum sjálfir hvers kyns var. Þannig leið lífið, hver dagur öðr- um líkur. Við ræddum oft um stríð- ið eg flestum var ljóst, að Þjóð- verjar hlytu að tapa. Við gátum fylgzt með gangi þess í - dagblöðunum, sem við fengum, en þó voru oft klipptar úr þeim klausur, sem okkur var ekki ætlað að sjá. Svo fengum við líka að hlusta á útvarp, en tak markað. Um þessar mundir frétti ég, að elzti sonur minn hefði verið tekinn fastur heima á íslandi og sæti nú í fangelsi í Liverpool. Ég talaði við fangabúðastjórann og spurði hann, hvort ekki væri mögulegt, að hann yrði flulttur í fangabúðimar til mín. Hann lofaði að athuga málið, en ég heyrði aldrei neitt frá honum rnn þetta. Sonur minn var hafður einn í klefa þarna í Liverpool, kunni ekki stakt orð í ensku og gat ekki við neinn talað, — loftárásimar allt í kring, og honurn leið mjög illa. Senni lega hafa orð fangabúðastjórans kom ið því til leiðar, að einn daginn kom prestur til hans og ég lánaði honum spil. Hann var síðan fluttur til Lundúna. Og fyrir tilstuðlan Péturs Thorsteinssonar sendiherra og Alþingis tókst að fá hann send- an heim. En það kostaði lagabreyt- ingu. Þá var hann orðinn átján ára, og hafði því leyfi til að sækja um íslenzkan borgararétt. Lögum sam- kvæmt varð hann að vera á land- inu til þess að hann gæti fengið ís- lenzkan borganarétt, en Alþingi breytti lögunium, einkum fyrir fram göngu Hermanns Jónassonar, þáver- andi forsætisráðherra, þannig, að hann gat fengið borgararétt engu að síður, og var hann þá sendur heim sem íslenzkur þegn. — Hvenær komu svo fangaskiptin til greina? — Við heyrðum fyrst um það ár- ið 1942, að hugsanlegt væri, að Eng- Iqndingar og Þjóðverjar hefðu skipti á' föngum. Fangamir urðu sjálfir að sækja um skiptin, og var síðam val- ið úr. Ég sótti um, en meira en ár leið, áður en ég frétti, að ég kæmi til greina. En sá böggull fylgdi skammrifi, að mig langaði ekkert til að fara til Þýzkalands í fangaskipt- um: Ég vildi náttúrlega fara til ís- lands. Ég sneri mér því til famga- búðastjórans og spurði hamn hvort ekki gæti komið til greina, að ég kæmist til íslands en ekki Þýzka- lamds. Hann sagði mér að skrifa til enska innanríkisráðuneytisims um þetta. Það gerði ég, en fékk ekkert svar. Fangabúðastjórinn sagði mér að bíða rólegur: Enskar myllur mala hægt, sagði hann, en þær mala samt. Hann sagðist skyldi grennslast eftir þessu, þegar við færum frá Mön til Emglands. Svo kom að þeim mikla degi, að við áttum að fá frelsi í skiptum fyrir enska fanga, sem fengju sitt frelsi. Við vorum fluttir til Liverpool, en þar beið sæmska skipið „Dronming- holm“ komu okkar. Það átti að fara með okkur til Gautaborgar, en þang- að höfðu ensku fangamir verið flutt- ir frá Þýzkalamdi. Ég reyndi allt, hvað ég gat, til þess að ná sam- bandi við fararstjóramn, svo að ég yrði ekki fluttur til Þýzkalands, en mér var ekki sinnt. Svo þokuðumst við upp landgöngubrúna, og þá sá ég hann, þar sem hann stóð öðrum megin við hana. Ég reyndi að halda mér þeim megin í mammþrönginmi, sem að honum sneri, og þegar ég kom á móts við hamn, ávarpaði ég hann: Will you please — en lengra var það ekki, því að mér var hrint áfram af næsta raanmd, og nú var fokið í öll skjól — Þýzkalamd yrði það, en ekki fsland. Skipið sigldi burt frá Englandi í stórum boga norður á bóginn ala leið undir Færeyjar. Þá var stutt heim, og einkennileg tilfinnimg var það, þegar skipið beygði suður á bóg- inn og fjarlægðist íslamd æ meira. Hið fyrsta, sem gaf til kynma, að við værum að nálgast yfirráðasvæði Þjóðverjanna, voru þýzkar eftirlits- flugvélar, sem renndu sér yfir skipið. Frá Gautaborg fórum við með lest og svo með ferju til Rúgem, eyjar úti fyrir Þýzkalamdi. Þar var te'kið á inóti okkur með lúðrablæstri og söng. Hitlersæska stóð í röðum í hátíða- búningi og gamall herprestur hélt ræðu og notaði stór orð en innam- tóm: Veikomnir til okkar ástkæra föðurlands, sagði hann, og svo hélt hann áfram tölunni. — En ég kemst aldrei til íslands aftur, hugsaði ég. Þarna voni líka særðir hermenn og bæklaðir og til þeirra var bastað brjóstsykri og bjórflöskum. Flestar flöskumar brotnuðu og brjóstsykur- inn dreifðiist út um allit, þótt eimm og einm fengi heila flösku eða poka. Okkur var búin ríkiuleg máiltíð í stórum sal, og hópur af stúlbum úr Hitlersæskunni stóð við borðin og söng fyrir obkur. Við höfðum litla lyst á matnum, enda höfðum við ferng ið mikinn og góðan mat um borð á skipinu. Við áttum nóg af öllu, með- al annars mjög mikið af sápu og sígarettum, sem við höfðum tekið með okkur frá fangabúðunum. Þetta voru hlutir, sem mikill hörgull var á í Þýzkalandi. Og ég mam, að þegar við gengum í gegnum raðir Hitlers- æskunnar á hafnarbakkanum, breytt- ist nazistakveðja í útrétta hönd eftir brjóstsykri. — Stúlkumar í salnum störðu líka á matinn, stórum kringl- óttum augum. Við eftiriétum þeim mest af matnum, og þær rifu í sig eins og hungraðir úlfar. — Og nú voru fangabúðirnar að baki. — Já, og Þýzk-aiamd tekið 'við. Fjögur ár voru liðin frá því ég var tekinm á íslandi, og enn var ég fjarri fjölskyldu minni og ekki tök á að komast þangað í náimmi framtíð. — Vairstu ekki hræddur við að vena tekinn í herinm? — Jú, en það voru sarnt samnings- ákvæði milli Englendinga og Þjóð- verja, að ekki mætti nota það fólk, sem fengi frelsi í famgaskiptum, í hernað eða hergagnaframleiðslu. Þess vegna gættu báðir aðilar þess, að þessir faugar væru efcki fagmenn, — ég var líklega einn af fáum fagmönn- um í þessum hópi. —■ Iívað tókstu nú til bragðs? — Ég fór til systur minnar, en 774 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.