Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 10
Bezt þófcti, að vatniil tærí ekki iniklu meira en í kvið fyrir klyfjar, sér- staklega þakjárn og timbur, en það varð oft að fara það, þótt dýpra væri, aillt að því í taglmark, og var þá betra, að ekki þyrfti að fara þvert yfir álinn, einkum með járn og timb- ur. Var bezt að fara á móti straumi, enda varla unnt annað í stórvötn- um. Ofit kom það fyrir, að þeir, sem voru að velja vötnin, skruppu á sund, sem kallað var (skall yfir hestinn og hann synti með manninn á sér), og stundum sundriðu menn vötn. Reið þá á að sitja hestinn rétt og hafa rétt taumhald — hafa tauminn hvorki of slakan né of stríðan og varast að kippa í hann, beygja sig heldur fram á makkann og vera ró- legur. Aidrei var hættulaust að hieypa á sund í miklum straumvötn- um og sízt þar, sem sandbleytu gat verið von, sem víðast var, ef hest- inn bar fram af brotum. Ekki var síður vandi að fara yfir vötnin á vetrum, er þau vori spillt af frostum, eða í leysingum, þegar skarir voru að þeim og kannski grunnstingull í botni. Var það krapi, sem safnaðist í botninn á brotum og var til trafala hestafótunum, ef hann var mikill. Gerðist það ekki nema í miklum frostum. Ef skarir voru út á vötnin, var oft harður straumur á milli þeirra, og verst, ef djúpt var við skarirnar. Var að sjálfsögðu unnt að kanna, hvort ekki væri of djúpt, þar sem farið var út í, en verra var að sjá, hvort ekki væri of djúpt þar sem fara átti upp úr. Ef mjög djúpt var við skörina, þar sem fara átti upp úr, varð að stöðva hestinn við skör- ina og höggva úr henni með staf ( venjulega höfðu menn hann með í vetrarferðum), þar til hún hélt manninum. Stökk hann þá úr hnakknum upp á skörina og hélt í taum hestsins og lét hann hlaupa upp á eftir sér. Ef vatnið náði hest- inum í taglmark eða vel það, undir skörinni, var betra, að hesturinn væri stífur og stilltur. Sama var, ef jakaferð var í vötnunum á milli skara í leysingum. Varð þá að fara mjög gætilega. svo að jakar lentu ekki á hestinum, stöðva hann eða ríða í strauminn, ef sýnilegt var, að hann myndi lenda á hestinum og væri of stór til þess, að hesturinn þyldi hann í straumvatninu. Var ekki síður nauð- syniegt, að hestarnir væru stilltir, traustir og óragir en mennirnir, sem á þeim sátu í þessum vötnum, hvort heldur var surnar eða vetur. ef vötnin voru viðsjál. Ég held, að mest hætta hafi verið að ríða straumvötnin, þegar jakafar var i þeim vegna leysingar, sérstak lega ef blindjakar voru, sem kallað var — iakar, sem flutu í 'iálfu kafi. Voru beir í hálfu kafi vegna þess. að mikill aur var í þeim — höfðu losnað við eyrar og tolldi í þeim aur- grjót. Það var líka mikið svolk og erfiði að reka stpra fjárrekstra yfir þessi stórvötn. Var það mjög misjafnt, hvernig féð tók. Stundum setti það sig strax í álinn, þegar það kom að honum,' en stundum tók engin kind —- allt féð spyrnti við fótum. Varð þá stundum mikið stríð að koma því yfir. Reynt var að draga kindur út í og þjarma smáhóp út í strenginn og láta strauminn taka hann. Tókst það stundum, en stundum sneri allt til baka. Líka var stundum reitt á hestum til þess, að féð sæi kindurnar hinum megin, og tókst þá oft að þvæla því út í, sérstaklega ef það, sem yfir var komið, jarmaði mikið. Stundum varð að reiða kindur, sem alls ekki tóku eða voru orðnar hálf- loppnar af vosi og voru oft búnar að snúa við í vatninu. Var þá betra, að hestar, sem reitt var á, væru trausfcir, kannski þungur maður á hestinum með fullorðinn sauð fyrir framan sig, og vatnið í taglmark í hörðum straum. Áttu ekki að gera við það nema þrekhestar. Ekki var sama, hvernig eða hvar var riðið að vötnunum. Var bezt, ef unnt var, að féð gæti vaðið út í, áður en það tók sundið, og um fram allt, að straumurinn kastaði því frá landi, en lægi ekki að því og kastaði því að aftur. Var næstum óhugsandi að koma fé yfir, ef það tók ekki — því betur, væri alveg einlægt, ef straumur lá illa til að reka í. Mis- jafnlega tókst mönnum að reka rekstra yfir vötnin. Sumum tókst oft- ast vel, öðrum miður. Ég get ekki stillt mig um að skýra frá einni ferð, sem ég fór yfir Þverá á Hemluvaði. Mér er hún svo minn- isstæð, og man ég ekki eftir því, að ég teldi mig í beinni lífshættu í vötnum nema í þetta eina sinn Ég ætlaði vestur að Stórólfshvoli að hitta Guðmund Guðfinnsson lækni. Er ég reið vestur Landeyjar, var þoka og rigningarsúld. í Hemlu- bótinni, sem kölluð var, skammt fyr- ir austan Hemlu, hitti ég mann, sem ég þekkti, undan Eyjafjöllum. Kom hann utan yfir Þverá, og var kona hans með honum. Spurði ég hann, hvernig áin væri, og sagði hann, að flugvatn væri í henni, bæði vegna rigningar og svo lægi Markárfljót mikið i henni. Sagðist hann hafa fengið ferju, enda var hann með konu sína, en bætti svo við: „Þú ríður hana nú víst — þið eruð vanir að gutla í vötnunum, Skaftfell- ingar, þótt þau séu ekki sem bezt. og þú á Skjóna þínum.“ Hann þekkti bæði mig og hestinn. Ég lét þetta gott heita og ríð að ánni. Sé ég, að flugvatn er í henni. Þoka var og súld, og sá ég tæplega yfir hana, og eyrin, seu, er vestan til í ánni, sást alls ekki. Rann alveg yf- ir hana og meira en það, og mun áin ekki hafa verið talin reið. Samt ríð ég út í hana, en er ekki langt kominn, er skellur yfir, og fór hest- urinn á bólasund. Að snúa við á sundi var illgerlegt, sérstaklega af því að ég teymdi fola við hlið mér. Reyndar mátti sleppa taumnum. á honum, en hann gat þá orðið fyrir hestinum, sem ég sat á, og hélt ég áfram í einhverju kæruleysi, en vissi þó, að þetta yrði feiknalangt sund, því að áin er breið þama. En ég vonaði, að einhvers staðar myndi kraka niðri í henni, sem þó varð ekki. Vanalega er áin ekki straum- hörð þarna, en þegar svona mikið vatn er í henni, er æðimikill straum- þungi, og bar hestana töluvert und- an, þótt Skjóni synti afburðavel. Ég ætlaði að sleppa taumnum á folan- um, ef hann fylgdi ekki Skjóna. en hann gerði það alveg, enda laus. Mér leizt verst á, ef ég bærist mik- ið suður fyrir eyrina, því að þar vissi ég, að bleytur voru. Loks finn ég, að hesturinn krakar niðri, og sé ég eða þykist vita, að ég muni vera kominn sunnan í eyraroddann. Var þefcfca sandhringur, sem þeir kenndu botns í, og fóru þeir á bólakaf aftur. Gekk það svo nokkra stund, að þeir brjótast um í sandbleytu þarna sunn- an í eyrinni, oft alveg á kafi, svo að ekki sást nema í eyru og nasir. Bjóst ég hálfvegis við, að bilað gætu móttök í hnakkgjörðinni, sem þó ekki varð, því að átökin voru mikil, þegar hesturinn var^ að brjótast um í sandbleytunum. Á endanum fer að festast undir fótum og grynnka, og er ég þá að komast upp á eyr- ina. Var þar þá nærri kviðvatn, sem þurrt er þegar meðalvatn er í ánni. Það var auðvitað hestinum að þakka, að ég komst lifandi úr ánni. Ég vissi, að hann var mikill þrek- hestur og sérstaklega góður á sundi, og hafði ég oft skroppið á sund á honum. Er það mjög misjafnt, hvern- ig hestar synda með mann á sér. Sumir halla sér mikið á hliðina í strauminn, svo að þeir velta næst- um á hliðina. Er mjög hættulegt að lenda á sundi á svoleiðis hestum. Aðrir synda teinréttir eins og þeir séu að vaða. Vestan eyrarinnar á Hemluvaði er vanalega smááll sem var vel reiður. Að leggja þarna í ána og ætla sér að sundríða hana svona mikla var náttúrlega hreinasta fifl- dirfska, eins og Einar hreppstjóri í Garðsauka sagði mér, er ég kom til hans alblautur frá hvirfli til ilja, í þetta sinn held ég, að mér hafi þótt það einhver lítillækkun fyrir mig að fara að biðja um ferju, eftir orðin, sem Jón í Drangshlíðardal hafði við mig, er ég hitti hann í Hemlubólinni. >78 T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.