Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Blaðsíða 17
Þrándarholt í Gnúpverjahreppi. Hér á bæjarhlaðinu lét Gissur jarl höggva Þórð Andrésson í griðum. Ljósmynd: Páll Jónsson. á Bergsstöðum á Vatnsnesi, er gerði sér eins konar sviíflugu, sem honum virðist hafa tekizt að láta bera sig. Frá Iðu er farið niður með Vörðu- felli að austan, unz sveigt er austur í Hreppa. Þessa leið er ekki unnt að fara, án þess að renna hug- anum til þeirra Birtingaholtsmanna, Heigasona. Það hefur verið farsælt og giftudrjúgt heimili, sem fóstraði þá bræður, efniviðurinn ósvikinn og veganestið gott, og mun vart fylgja neinum samtíðarmönnum þeirra, sem til forystu völdust, meiri heiðríkja og vammlausara eftirmæli. Og alltaf finnst mér það skemmtilega tákn- rænt, að séra Magnús Helgason skyldi ganga upp á Laugarfell til þess að ráða þar við_ sig, hvað gera skyldi, þegar gifta íslands stýrði för Jóns Þórarinssonar austur að Torfastöð- um til þess að biðja hann að gerast kennara í Flensborgarskóla, er síðan leiddi til þess, að hann varð skóla- stjóri kennaraskólans, þegar hann var stofnaður árið 1908. Mér hefur stundum dottið í hug, að það gæti verið fróðleg ættfræði að rannsaka, hvernig rætur slíkra stofna, sem bera af öðrum um mann dóm og menningu, kunna að liggja og hagnýt félagsfræði að leiða rök að þvi, hvaða andrúmsloft og vaxtar- skilyrði leiða til svo mikils þroska. Mér skilst, að slík krufning mann- lífsins væri engu ómerkari en leit manna að þeim aðbúnaði, sem veitir til dæmis jurtum beztan þroska. Þegar kemur austur fyrir Sand- lækjarhverfi er sveigt niður að Þjórs- á. Þar er Árnes milli kvísla í Þjórsá með Þinghóla og Gálgaklett og miklar búðarústir. Þar heitir á ánni Eyjar- vað, og upp frá því er bær í brekku undir lágum múla. Það er Þrándar- holt. Vert er að renna augum þar heim á bæjai'hlaðið. Það var árið 1264. Föstudag einn um haustið kemur flokkur manna í regni miklu austan yfir Þjórsá á Eyjarvaði. Þar er á ferð Gissur jarl með lið sitt og hefur með sér fangna hina fremstu menn af ætt Oddverja, þá er á dögum eru. Þá hefur jarlinn svikið á sáttafundi, þar sem hann sjálfur mælti fyrir griðum. Þeir stefna heim að Þrándarholti, því að þar skal taka gistingu. Nóttin líður, og þegar jarl hefur klæðzt að morgni og lið hans vopnazt, gengur hann í svefnstofu Oddverja, segir í sundur griðum og kveðst mundu láta drepa þá alla. Fyrir bænastað margra manna var það Þórður Andrésson einn, sem út var ieiddur til höggs. Þegar á hlaðið er komið, þar sem hann skyldi höggvinn, mælti hann til jarls: „Þess vil ég biðja þig, Gissur jarl, að þú fyrirgefir mór það, er ég hef afgert við þig.“ „Það vil ég gera, þegar þú ert dauður," svaraði hinn bragðvísi og kaldrifjaði sigurvegari. Þórður lagðist niður á hlaðið með hendur kross, og gekk síðan fram einn liðsmanna jarls og hjó á háls honum. Jarl laut niður að fórnar- lambin-u og breifaði í sárið, þótti ekki trúlega að unnið og lét höggva annað högg. Við horfðum heim að Þrándarholti. Sjö hundruð ár eru liðin síðan jarl- inn stóð þar álútur með blóðuga fingur, þukiaði benina á hálsi síðasta Oddverjans. En okkur ber fljótt hjá, og nú er s-tefnt upp sveitina. Skólinn við Kálfá er ekki reisuleg bygging, en i Ásum er stómannlega hýst. Aldurs- munur þessara bygginga er ekki ýkja- mikill, en engum dyljast þáttaskilin, sem orðið hafa á þeim árum, er á milli ber. Það er á brekkuna að sækja upp hjá Hamarsheiði, en innan lítillar stundaar er aftur haldið að Þjórsá hjá Fossanesi. Það er skammt að Haga, einum þeirra þriggja bæja, sem teljast til ÞjórsárdaLs, þótt hæp- in sé sú skilgreining. Þá erum við komin á slóðir Þorbjarnar laxakarls. Og látum þar nótt sem nemur. SUNNUOAGSBLfiil rímans gengur ört tú purrðar, og svo sem kunnugt er eru nú mörg tölubSöð tyrsta árgangs éfáaníeg, — Svo getur eénnig orðið um nokkui tölubiöð síðari ár- ganga. T I M 1 N N - SLNNUDAGSBLAÐ 785

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.