Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Qupperneq 14

Tíminn Sunnudagsblað - 29.08.1965, Qupperneq 14
gríms, dauða Gauks og aðfarar þeirr- ar, sem Þjórsdælir gerðu Þuríði Arn- geirsdóttur hinni þingeysku. Margan villini stig ríða konungsmenn. Fram til jómfrúrbúðanna. langar þá enn. Þjórsdælum hinum fornu hefur þótt með ólíkindum, á hvaða „villini stig“ Gaukur Trandilsson lagði. Dauði sá, sem þeir ætluðu Þuríði, hæfði galdrakindum einum. Þeim hefur skilizt svo, að hún hafi tryllt Gauk með fomeskju. Myndin er orð- in nokkuð skýr þrátt fyrir alla þá dul, sem hvílir yfir þessari sögu. Samt hefur einn aðilinn týnzt með öllu: Maður Þuríðar Arngeirsdóttur, Steinólfur, hefur læðzt út af sviðinu, án þess að skilja eftir spor. Hans hlutskipti er óvirðing í lifanda lífi og síðan þögn og gleymska. Ljóst má vera, að hér hefði verið mikið söguefni þeim, sem kunnu svo penna að stýra sem höfundar íslend- ingasagna Og reyndar hafa þær sagn- ir lengi verið á kreiki, að saga Gauks Trandilssonar hafi verið rit- uð, þótt glötuð sé. Og svo var líka. Aftur á móti er vafasamt, hve treysta má því, að þá sögu hafi borið fyrir augu fó’iks sem uppi var á nítjándu öld. Tveir slíkir vitnisburðir eru þó til. Um miðbik síðustu aldar var aust- ur í Skaftafellssýslu maður sá, sem hét Vigfús Jónsson, auknefndur geys- ir. Hann var af góðum ættum, ná skyldur mörgum vei metnum prest- um. Sjálfur byrjaði hann skólalær dóm, en flosnaði upp frá því námi, þótt greindur væri, og lifði alla ævi við litinn kost og oft á flækingi. Hann var fróður og minnugur, en miklaði stundum frásagnir sínar og þótti ei öliu trúandi, sem hann sagði. Hann varð að lokum úti nálægt Hunkubökkum á Síðu veturinn 1869. Svo er frá sagt, að árið 1855 væri Vigfús geysir, er sumir nefndu lika hinn víðförla, á ferð í Gnúpverja- hreppi. Sagði hann þar að hann hefðu lesið Þjórsdælasögu og jafnvei átt hana sjálfur og hefði hún eink- um fjallað um Gauk Trandilsson. Vigfús kvað hann hafa búið i Stöng og lagzt á hugi við- húsfreyjuna á Steinastöðum, er hann sagði hafa verið nefnda Steinólfsstaði. Ásgrím- ur Elliðagrímsson var frændi kon- unnar, að sögn Vigfúsar, og vandaði um við Gauk, fóstbróður sinn. Varð af þessu fjandskapur þeirra á milli, og lyktaði beirra samskiptum svo, að Ásgrímur sat með þrjátíu manna sveit fyrii Gauki, er hann kom neð- an af Eyrum, og felldi hann. Vigfús segir einnig að í þessari sögu hefði Skeljastaðii verið nefndir Skeljungs- stííli SkeljafeH Skeljungsfell. 78‘z Ekki mun hafa verið lagður mikill trúnaður á sögu Vigfúsar í Hrepp- unum. Tveimur áratugum síðar, árið 1875, sagði gömul kona í Haukholt- um, Solveig Helgadóttir, sögu, sem kann líka að benda til þess, að Þjórs- dæla saga hafi verið til. Þegar hún var í uppvexti í Valdakoti í Flóa- gaflshverfi, bjó í Magnúsfjósum í Kaldaðameshverfi Bjami nokkur Bjarnason. Þennan Bjama heyrði hún segja frá því, að hann lá á unglingsárum sínum við sjóróðra á Selatöngum hjá Guðmundi bónda Þorsteinssyni í Krýsuvík. Þegar land- legur voru, var hann iðulega heima í Krýsuvík, og komst þá þar gamla og rotnaða skræðu, þar sem sagði a£ Steini bónda á Steinastöðum í Þjórsárdal. Þóttist hann muna það úr bókinni, að Steinastaðabóndi fór ofan á Bakka með syni sínum frum- vaxta, og voru þeir báðir drepnir í þeirri ferð. Þetta eru þær sagnir um sögu Þjórsdæla, sem unnt er að henda reiður á. Við frásögn Solveigar í Haukholtum er þó þess að gæta, að engar líkur em til, að neinn Steinn hafi búið á Steinastöðum að fornu, og það var mál hennar samtíðar að nefna Eyrarbakka Bakka. Þar hét fyrram Eyrar. En hvort sem menn vilja leggja trúnað á það eða ekki, að Þjórsdæla saga eða einhverjar dreifar hennar hafi verið til fram á nítjándu öld, þá er þó sannað, að hún var skrif- uð. í Möðruvallabók, sem varðveitt er í Árnasafni í Kaupmannahöfn, er minnisgrein krotuð neðan á auða síðu, þar sem Njálu lýkur. Þetta krot hafði lengi verið talið ólæsilegt, þar til Jón prófessor Helgason leysti þrautina. Þarna standa þau orð, er taka af allan vafa í þessu efni: „Láttu rita hér við Gauks sögu Trandilsson- ar, mér er sagt, að herra Grímur eigi hana.“ En „herra Grímur," sem mun hafa átt heima i Stafholti í Stafholtstung- um, að minnsta kosti um eitt skeið, varð okkur ekki sú heillaþúfa, þrátt fyrir bókeign sína, að saga Gauks varðveittist í Möðruvallabók. Hún glataðist, og ef til vill hefur þar far- ið forgörðum eitt af öndvegisverkum fornbókmenntanna. Með þessa vitneskju um hina fomu Þjórsdæli hefjum við ferðalagið. IV. Leiðin liggur upp Grímsnes, sveit Sighvats Þórðarsonar og Tómasar Guðmundssonar. Sighvatur ólst upp við Apavatn fyrir þúsund árum dró þar fagran urriða á öngul og át höfuð- ið þar sem fólgið er vit hvers kvikind- is. Sagan gefur í skyn, að þaðan hafi honum komið snilligáfan. Tómas átti aftor á móti bernskudaga á Efri-Brú, þar sem Sogið byltist fram úr kyrru djúpi Úlfljótsvatns. Það varð honum fljótið helga: Þar hvarf mér sú veröld, sem vök- unnar beið. Þar varð mér hver ævinnar dagur að heilögum söng, er um hjartað leið svo harmdjúpur, sár og fagur. Báðum skáldum sínum lét Gríms- nesið í té mikið veganesti. En þó að mér fljúgi nú skáldin tvö í hug, er Sogsbrúin dunar undir hjólbörðum bifreiðarinnar og hið myrka vatn árinnar blasir við aug- um, var þó sú tíðin, að Grímsnes- ingar vora annað fremur í mínum augum en skáld. Þeir voru ekki skáld- legir, hinir þybbnu, hæglátu bændur úr Grímsnesinu, sem komu á haust- in vestur yfir fjall í Hrafneyrarrétt. Þeir áttu aftur á móti sauði, og reksturinn, sem þeir fóru með, var oft álítlegum. Og þá hef ég eina manna séð vædda skinnsokk- um. Það þarf heldur ekki sérlega skyggnt auga til þess að sjá hvort tveggja, þegar yfir Sogsbrú kemur, að þar er sauðland gott og hefur Ika verið óspart notað. Kyrkingslegt og margstýft skógarkjarrið í tung- unni á milli Sogsins og Hvítár ber merki um harkalega og síendurtekna limlestingu af völdum sauðtannarinn ax. Svo nærri skógargróðrinum hefur hún gengið, að jafnvel gamla birk- inu innan girðingar í Þrastaskógi virðist um megn að rétta sig úr kútnum. En kannski veldur þar nokkru um, að hún hefur oft verið illá sauðheld. Nú er allmikið kjarrlendi þarna neðst í Grímsnesinu komið í eigu Skógræktarfélags Árnesinga, sem fyr- ir allmörgum árum keypti Snæfoks- staði. Er þegar búið að gróðursetja talsvert af barrviðarplöntum í landi þeirra jarðar. Ungmennafélag íslands hefur aftur á móti lengi átt Þrasta- skóg, og gaf Tryggvi Gunnarsson því það skóglendi. Lengi stóð allmyndar- legt gistihús, Þrastarlundur, við jað- ar Þrastaskógar, örskammt frá aust- ursporði Sogsbrúar. En það brann fyrir mörgum árum. Nú í sumar var reistur nýr og snotur veitingaskáli á hinum gömlu branarústum, og er þess að vænta, að Ungmennafélag íslands sýni Þrastaskógi meiri sóma en verið hefur á köflum. Staðurinn er hinn hugþekkasti, og þar er áreið- anlega auðvelt að koma upp mynd- arlegum trjálundum, ef ekki skortir natni og elju, með þeirri kunnátto, sem íslendingar hafa öðlazt í skóg- ræktarmálum fyrir ötult starf Hákon ar skógræktarstjóra Bjarnasonar og samstarfsmanna hans. Þegar kemur spölkorn upp í Gríms7 nesið, blasa við einkennilegir hólar T t M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.