Tíminn Sunnudagsblað - 28.08.1966, Page 7

Tíminn Sunnudagsblað - 28.08.1966, Page 7
Norðmenr. hafa jafnf haldið tryggð við mállýzkur sínar og ýmsa gamla siði. Myndin er af sveitabrúðkaupi I héraðinu Fana við Björgvin, skammt þar frá, sem Árni Böðvarsson dvaldist. Brúðurin ber silfurkórónu á höfðl, og brúðguminn heldur á biblíu. setningafræSilegar einingar, en ekki að því að skýra hugsun á pappír. Persónulega er ég þeirrar skoðunar, að eingöngu beri að nota greinar- merki, þar sem þeirra er þörf til þess að gera málfarið skýrara. Ég vil nota semíkommu til þess að tákna nánari tengsl en punktur sýnir, því að punktur og stór stafur slíta málið óneitanlega mjög í sundur. Kommu vildi ég láta nota miklu sjaldnar en nú' er gert og til að mynda aldrei afmarka tilvisunarsetningu, sem er einkunn, með kommu né setningar, sem stjórnast af forsetningu. Til dæm is um seinna atriðið má taka máls- greinina: „Hann talaði um, að hann kæmi," sem táknar hið sama og „Hann talaði um að koma.“ Þarna sýnist mér órökrétt að hafa kommu. En sums staðar vildi ég hafa kommu, þar sem henni er ekki ætlað- ur staður samkvæmt skólareglum. Við getum tekið setningu eins og „Ég sá Jón bónda og hreppstjóra og fjall- kóng.“ Eins og þetta stendur, getur verið um einn, tvo eða þrjá menn að ræða. En sé nú Jón bæði bóndi og hreppstjóri — og fjallkóngur ann- ar maður, myndi komma á undan seinna „og“-inu taka af öll tvímæli. Ég hygg, að þeim, sem á annað borð geta orðið skrifandi, sé trúandi til mats í þessu efni. Greinarmerkja- setning er mikið deilumál, en ýmsir málsmetandi menn hafa lýst sig fylgj andi breytingum, til að mynda dr. Jakob Benediktsson. — Þá vendum við okkar kvæði 1 kross, og langar mig að spyrja þig, hvaða erlend tungumál þú hefur num ið, sem ekki eru kennd í opinberum skólum. — Ég var um skeið við nám og kennslu í Noregi og kynnti mér þar norsku og norskar mállýzkur. Þá hef ég lagt stund á esperanto, lítils háttar rússnesku og lesið um ýmis mál, svo sem finnsku. Ég hef einkum lagt mig eftir málfræði og hljóðkerfi tungu- mála, og það er ekkert áhorfsmál, að það víkkar sjóndeildarhringinn að kynnast sem flestum erlendum tungu- málum. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 727

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.