Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 2

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Page 2
Hann ræktaði skóg, skrifaði heimsádeilu og trúði á tiivist Krýsa og steinaldar- manna á landi hér 4 Jochum Eggertsson í skógarlundi, er hann annaSist á sumrum vestur í Þorskafirði, og steinasafn það, er hann dró saman og taidi vitnisburð um dvöl steinaldarfólks þar vestra. Ljósmyndir: Þorsteinn Jósepsson. Jochum Eggertsson, sem lezt fyrir ekki löngu, var einn hinn sérkennilcg. ustu manna, sem uppi hafa verið á okkar dögum. Það lætur að likum, að hann þræddi ekki troðnar slóðir. Þótti hann penna- fær í bezta lagi og flestum kin nyrtari, skorti hann það taumhald á sjáifum sér og pennanum, að hann gæti unnið lönd og ríki með þeim hætti. Hneigðist hug- ur hans lengi að þjóðflokki einum, sem hann taldi, að búið hefði á landi hér fyrir daga norskkynjuðu landnáms- manna, og ætlaði, að hefðu haft höfuð setur sitt í Krýsuvík. Hafði hann uppi margar sögur af Krýsum, menningar- afrekum þeirra og endalokuni. Á efstu árum sinum dvaldist hann sumar hvert vestur á óðali ættar sinn- ar, Skógum í Þorskafirði, þar sem hann starfaði að skógrækt með ágætum árangri og safnaði steinum, er hann ætlaði öngla og önnur tæki steinaldar manna ,er verið hefðu vistum í Þorska firði í fyrndinni. Viðaði hann sér firna miklu safni slíkra steina og geymdi vandlega i kjallaranum hjá Eggerti list- málara Guðmundssyni, þar sem hann átti athvarf á vetrum. 962 f Í IH I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.