Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Blaðsíða 17
 " • ■ : ::: ’: ■■ 'v'': . ::: iSnaSSwttK . ‘i 1 iSl !, ^ :;l : ':: ’ ' 1 * c 111 . Lýðháskólinn í Ry á Jótlandi — myndin tekin í hlaSvarpanum aS voriagi. um tremur, hafa haft mjög heilla- rík áhrif meðal nágrannaþjóðanna í uppeldislegu tilliti. Um það ber öU- um saman, sem kynnt hafa sér þessi mál og um þau fjallað. Hér verður aðeins minnt á þessa staðreynd, án þess, að hún verði frekar rædd, þar sem greinarhöfundur gerir ráð fyrir því að lesendum Sunnudagsblaðsins sé hún ljós, svo og saga lýðháskól- anna í stórum dráttum. Hins vegar get ég tæpast stillt mig um að rifja hér upp örstuttan kafla úr ræðu, sem Ásbjörn skólasjóri flutti, þegar hann bauð námskeiðs- gesti velkomna til Ry. Einkunnarorð ræðu hans voru tek in úr s:káldsögu eftir skáldkonuna Karen Blixen, þar sem lögð er megin á'herzla á skapgerðaruppeldið, — á að finna sjálfan sig, — 'Sð verða það, sem guð ætlast til að við ver'ðum. „f>etta,“ sagði skólastjóri, „er ein- mitt það, sem lýðháskólinn hefur alltaf keppt að og mun gera: að hjálpa einstaklingnum til að finna sjálfan sig — að vera Iiann sjálfur. Á þessum nýju tímum er sannarlega ekki minni ástæða en fyrr að rækja þetta hl-utverk lýðháskólans. Það er raunar enn þá brýnna en nokkru sinni í hinum mikla erli og eirðarleysi nútimans, þegar svo margir virðast ekKi finna neinn tilgang í lífinu né hafa nokkra ábyrgðartilfinningu." Og niðurstaða skólastjóra var sú, að þjóðirnar þyrftu einmitt nú, frem ur en nokkru sinni fyrr, að tileinka sér grundvallarhugsjónir lýðháskól- ans: að kenna hinum unga að treysta skapgerð sína og manngildi — að finna sjálfan sig — að verða það, sem guð ætlast til, að við verðum. í fyrstu ferðinni var einkum að því stefnt, að kynna okkur þátttak- endum klaustur eitt mikið og merki- legt, sem eitt sinn starfaði um langt árabil þar í nágrenninu, Ömldaustur. Því miður er nú klaustur þetta að- eins rústir einar. En saga þess hefur varðveitzt í stórum dráttum og verð- ur hér stiklað lauslega á nobkrum þáttum hennar. Ömklaustur starfaði frá 1170—1560, en þá var það lagt ni'ður og litlu síð ar riíið tií grunna, þegar siðbót Lúth ers hélt innreið sína í Danmörku. Klaustur þetta tilheyrði grámunka- reglunni svonefndu, en sú munka- regla var upprunnin í Frakklandi, og hlutu munkarnir nafn sitt af lit kuflsins, sem þeir báru. Þessi munka regla var aðeins ein af mörgum, sem stofnaðar voru, eins og kunnugt er. Flestir munu til dæmis kannast við Fransiskusarmunkaregluna, kennda við heilagan Franz frá Assisí, Bene- diktsmunkaregluna, kennda við Bene difct frá Núrsíu, Dóminíkanaregluna, kennda við heilagan Dóminíkus, og Birgitturegluna, sem kennd var við 'heilaga Birgittu. Nokkur klaustur, sem tillieyrðu þessari reglu, voru stofnuð í Dan- mörku, en þetta var þeirra langstærst og kunnast. í nær því samfellt fjórar aldir bjó þar mikill fjöldi munka, sem unnu margþætt og merkileg störf. Og þótt mörgum sé nú harla fjarlægt að hugsa til þessara gömlu stofnana, mega menn gjarnan minnast þess oftar en þeir gera, að hin gömlu munkasamfélög voru menningarmiðstöðvar þeirra tíma og höfðu því miklu hlutverki að gegna. f því sambandi má til daémis nefna ritstörf, lækningar, skólahald og líkn arstörf, auk hinna trúarlegu iðkana. Ég get ekki stillt mig um að skjóta því hér inn, að þótt ekki væru stofn- uð mörg klaustur á íslandf; né held- ur starfstími þeirra ýkjalangur, gegndu þau miklu og ómetanlegu hlutverki í þjóðlífi okkar. En svo sem kunnugt er, voru þar skráðar og síðar varðveittar ýmsar af forn- sögum okkar. Þótt ekki væri nema um það eitt að ræða, ber okkur ís- lendingum að halda minningu þeirra í heiðri. En þetta var nú kannski útúrdúr. Ömklaustur varð innan skamms mjög efnað, átti mikið fé, bæði í lönd um og lausum aurum. ÞaS var þvi sí- fellt byggt við klaustríð, eftir því sem tímar liðu, og starfsemi þess aukin og endurbætt. Um það bera ýmsar glöggar heimildir vitni. Og þeim ber einnig sgjnan $5 þettl mikla munkasámfélál í Öm háfi ver- ý T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 977

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.