Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Blaðsíða 10
Þrjár fágætar bækur: Guðspjailaþýðing Ulfila á forngotnesku, ásamt þýðingum á latínu, sænsku og íslenzku. Ágætar fornmannasögur í útgáfu Björns Markús- sonar og útgáfa Guðbrands Þorlákssonar á Nýja Testamentinu frá 1609. fjögur og nefnt Landsprentsmiðjan. Þorsteinn hallar sér fram á borð- ið: — Eigum við nokkuð að rekja 'þetta lengra? — Ætli það, er ekki bezt að snúa sér að bókunum og safninu. — Jáih, jáh. — Hefurðu safnað sérstökum bóka flokkum? — Já, eiginlega mætti segja það, þó flokkarnir séu nú orðnir það margir, að þeirrar viðleitni verður ekki vart. í upphafi lagði ég eink- um áherzlu á söfnun fornrita, íslenzk og norræn fornrit, þá safnaði ég einkum rímum, tímaritum, þjóðsögn um og ritum varðandi sögu íslands og íslenzkra sagnfræði. Leikritum eftir íslenzka höfunda hef ég og safnað og á seinni árum guðscrrða- bókum. Það má raunar segja, að ég reyni að klófesta allt gamalt prent og fágætar bækur. Nú og skáldverl- íslenzkra höfunda, ljóðabækur . . . — Þú safnar bara öllum flokkum, segi ég til að binda endi á upp- talninguna. — Já, það má kannski segja þa1 sem svo. — Hvaða flokkar eru heilsteyptast ir og stærstir í nafninu? — Stærstu flokkarnir mundu vera fornritaútgáfur og tdmarit. Já og líka guðsorðabækur. En þessir flokkar eru langt í frá að vera heil- steyptir. Mig vantar enn þá í forn- ritaflokkinn og mun líkast til aldrei eignast hann allan. — Þú telur þar með fornar laga- bækur? — Já. Ég á í flokknum flestar út- gáfur fornra íslenzkra og norrænna laga, til dæmis Norges gamle Love í fimm stórum bindum. — Gætirðu nefnt einhverja fágæt- ar bækur úr þessum flokki, sem þú hefur ekki enn getið í samtali okk- ar? — Já, ég get til dæmis nefnt fá- gætustu fornaldarsagnaútgáfuna hér í safninu, en bað er Altnordisrihe Sagen und Lieder, Breslau 1814. Hana fékk ég frá fornbókasala í Ox- ford. Þá má nefna Noregskonunga- tal, Kaupmannahöfn 1787, og ís.end- ingadrápu Hauks Valdísarsonar, Kiel 1874. Ég nefni þessar bækur sem dæmi, auðvitað væri hægt að telja upp fleiri útgáfur, en okkur gefst varla rúm til þess í blaðinu. — Þú nefnir rit um norræna fom- fræði? — Já. Ég á allmikið safn af slik- um ritum. Meðal annars á ég nær allar útgáfur fornfræðirita, sem Det kongelige nordiske Oldskrift-Selskab hefur sent frá sér. Fyrsta ritið gef- ið út árið 1825. — Þú átt mikið af tímaritum, seg- irðu? — Já. Ég á nær öll tímarit, sem hafa verið gefin út á íslenzkri tungu. Mig vantar af gömlum Islandske Maanedstidende, sem raunar er á dönsku, og Hirði. Þá vantaði mig líka tímarit, sem komið hafa út á seinni árum, hin nýjustu. Til tíma- rita tel ég og almanaksútgáfur. — Og þjóðsögurnar? — Þjóðsagnaflokkurinn er • mjög góður og mig vantar lítið, sem máli skiptir, nema Islándisehe Volksagen í útgáfu Konrads Maurers, Leipzig 1860. — Rit um sagnfræði? — Ég á held ég flest rit um ís- lenzka sagnfræði, en fágætast þeirra mun vera Annálar Björns á Skarðsá, I—II, gefið út í Hrappsey 1774. All- mikið vantar mig í safnið af ævi- minningum gefnum út á átjándu og nítjándu öld, en á þó helminginn. — Þú minntist á leikrit? — Já. Leikritasafnið má teljast all gott. Af nítjándualdarútgáfum vant- ar mig leikrit Magnúsar Grímssonar, Kvöldvaka í sveit, 1848, og Bónorðs- förin, 1853. Önnur leikrit, prentuð á íslenzku, held ég mig vanti ekki, utan sáráfá gefin út nú nýlega. Nú — og rímnasafn mitt er mjög gott. Mig vantar tvær rímur gefnar út eftir átjánhundruð, en af eldri rímnaútgáfum á ég aðeins Rímur af Sigurði snarfara, Hrappsey 1773, og slitur af Agnars rímum og Rímum af Hrólfi kraka. — Guðsorðabækur áttu margar? — Já, ég á töluvert. Annars er orðið erfitt að ná í góð eintöl: af gömlum guðsorðabókum. Ég hef nú talið þegar sumt af mínum fá- gætustu guðsorðabókum, en gæti að auki bætt við tveimur útgáfum frá Kaupmannahöfn, það er Verus Ohristianus Edur Sannur Christen- dómur eftir Johan Arndt, I—IV, 1731 —1732, og svo Himins vegur, 1777. Af biblíuútgáfum vantar mig enn þá Þorláksbiblíu frá 1644. Kristileg smárit á ég mörg, til að mynda allt Andlegt smáritasafn séra Jóns á Möðrufelli, áttatíu hefti. Þar að auki á ég aragrúa alls konar guðs- orðabæklinga, biblíusögur, hugvekj- ur, sálmabækur, bænakver og því um líkt. — Hvað vildirðu nefna af ljóða- bókum þínum, Þorsteinn? 970 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.