Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Qupperneq 9

Tíminn Sunnudagsblað - 13.11.1966, Qupperneq 9
****** ,. . : - Titilblöð á Schedæ og Grönlandiu (Íslendinynbók) Ara prests fróða lærða. Bækurnar prentaðar í Skálholti af Hendirk Krúse árið 1688. Arngríms 1756- Þær bækur eru ihér í safninu, svo og tvær fyrstu þýddu skiáldsög- urnar, sem út komu hér á landi, en þær eru: Þess Svenska Gustav Land- Krone Og þess Engelska Berhholds Faabreitilegar Robinson / Edur Lijfs Og Æve Sögur, Hoolum 1756. Af öðrum bókum, sem út komu í stjórnartíð Björns, á ég til dæmis: Ein lijtil Psalma og Vijsna Book, I—II, 1757. Hún er ein íd fágætustu átjándu aldar bókum mínum og óvenjulega fallegt eintak. Haustið sautján hundruð sextíu og fimm tók Gísli Magnússon við stjórn prentsmiðjunnar og hafði hana með höndum til dauðadags, árið sautj án hundruð sjötíu og níu. Gísli veitti prentsmiðjunni góða forstöðu, og ég á nokkrar útgáfubækur frá hans tíð, til dæmis Nokkur ljóðmæli Þor- láks Þórarinssonar, 1775, og allar út- gáfur þeirra síðan. Hann þagnar, lítur á mig: — Heyrðu, ég gleymdi áðan Hóla- Harmóníu, frá 1749. Enn verður hann hugsi og segir loks: — Er ekki bezt, að ég ljúki prent- sögunni og telji svo upp eitthvað af bókunum frá þeim tíma á eftir? Telji svona upp af handahófi? Það er ógern ingur að nefna þær allar. — Jú, jú, gerðu það bara eins og þú vilt. — Ja. — Eftir daga Gísla biskups fór prentsmiðjunni sífellt hnignandi, bæði vegna harðinda og eymdar og eins vegna lélegrar forstöðu. Það er mjög sárt til þess að vita, að slík skuli hafa orðið örlög Ilóla- prentsmiðju að grotna niður og verða eyðingu að bráð í höndum lít ilsigldra manna. Árið sautján hundr- uð níutíu og sjö var gerð tilraun til að lífga prentverkið við, og stóð Sigurður biskup Stefánsson fyrir því fyrirtæki. Misjöfnum augum litu landsmenn á þessa endurlífgun og kenndi jafnvel háðungar í skrjfum um prentverkið. Ég get lesið hérna fyrir þig um það, sem Magnús Stephensen skrifar um þennan at- burð. Þorsteinn setur upp gleraugu opn ar bók og les: „Mér sparast ómak greinilega að útskýra, hversu Hólaprentverk eftir formála Sigurhrósshugvekjanna, sem í vetur eru þar útklesstar og afklastr- aðar, bókast nú við að brölta aftur á knén.“ Hann leggur frú sér bókina og tek- ur gleraugun ofan. — Svo fór ljka, að Hólaprentverk- ið lognaðist út aí, og var prentsmiðj- an lögð til Landsuppfræðingarfé- lagsins. — Gg meginorsök þess harðæri og léleg forstaða, segirðu. — Já, og svo tilkoma nýju prent- smiðjunnar í Hrappsey árið sautján hundruð sjötíu og þrjú. Sunnlendingar létu ekki af kröf- um sínum um prentsmiðju í Skál- holtsdæmi, og konungur veitti leyfi sitt að lokum árið sautján hundruð sjötíu og tvö. Ólafur Olavíus kom svo út hingað með prentverk árið eftir, og var það sett niður í Hrapps- ey. Þar var prentsmiðja í tuttugu ár, og gegndi hlutverki sínu vel og gaf mikið út af bókum, einkum á fyrri htuta þess tímabils. Hrappseyjar- prentið var bylting í íslenzkri bókaútgáfu. Það kom nýr andi yfir alla bókagerð. Þeir fara að gefa út veraldlegar ijóðabækur, tímarit og fræðslurit. Starf þeirra manna, sem þar unnu, verður seint metið að fullu, og er einkum vert að geta Boga Benediktssonar, bónda í Hrapps ey. Um sautján hundruð og níubíu fór að dofna yfir útgáfustarfseminni í Hrappsey, og að lokum var prent- smiðjan seld Landsuppfræðingarfé- laginu og hún flutt úr Hrappsey til Leirárgarða árið sautján hundruð níu tíu og fimm. Árið sautján hundruð níutíu og níu voru svo báðar prent- smiðjurnar sameinaðar að Leirárgörð um. Árið átján hundruð og fjórtán var prentverkið flutt að Beitistöð- um.skammt frá Leirá, og fimm ár- um síðar lætur Magnús Stephensen flytja það til Viðeyjar. — Og það hafnaði trúlega að lok- um í Reykjavík? — Já. Það var flutt til Reykja- víkur árið átján hundruð fjörutíu og Opna úr Jóns-lagabók frá Hólum. Myndin sýnlr Ólaf Haraldsson hinn helga. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 969

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.