Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Síða 9

Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Síða 9
1 ir að fara út í það, þótt kalt væri, Þótt liðnir séu fjórir tugir ára síðan ég átti búsetu í Meðallandi, á andinn þar enn öðul sín að veru- legu leyti. Og tíðförult er hugan- um austur þangað. Þar brosa enn balar og lautir og mosaþúfur, og jafnvel flóð og fen eiga þar sínar minningar. Hinn víði, undrafagri fjallgarð ur umlykur láglendið með þeim tignarsvip, sem ekki glej'mist þeim er séð hafa. Enn í suðri lemur Ægir sandströndina, slétta og svarta, þungum höggum, svo að ómur berst upp til bæjanna, sem þó eru allfjarri hamförum hans. Oft sjást hvítfextar öidur líkt og fjöll séu á ferð, císandi og hrynj andi á víxl. Enn nokkra utar — bak við brimgarðinn — er þjóðleið kaupskipa og fengsælt fiskimið, þar sem ógrynni auðs er aus ð upp ár eftir ár frá ómunatíð. Þar hafa einnig orðið óhöpp og geigvænleg ir atburðir gerzt, sem naumast gleymast þeim, er í nánd voru eða tóku einhvern þátt í hjálpar starfi. Það var komið á seinni hiuta góu árið 1911. Éljagangur hafði verið um morguninn og mugga í áttum. Um hádegisbil lébti sæmi- lega til milli élja, svo að allvel sást til hafs og fjalla. Að vanda litu menn til hafsins, og hvað var nú þetta? Um það bil í hásuðri frá Steinsmýri að sjá bar óvenju lega hátt á skipi einu, og við fárra mínútna miðun sást, að það mundi vera landfast. Fljótlega voru hestar teknir frá stalli og stigið á bak, og innan stundar voru menn frá öllum Steinsmýrarbæjum komnir suður má Eldvatnsbakka gegnt Syðrifljót um. Ekki þurfti lengi að bíða, ferju maðurinn var kominn og reiðtygi voru látin í bátinn og hestarnir réknir út í vatnið. Þeir voru ótrauð enda flestir vanir vötnum og volki. Ekki leið löng stund unz allir voru komnir yfir, og tafarlaust var hald- ið áfram í átt til sjávar. Nokkur broti eða illa heldur is var á nokkrum hluta leiðarinnar og alldjúpir farvegir eða graflækir sums staðar. Samt sóttist leiðin fljótt að hinu strandaða skipi, sem var á Fljótafjöru. Seglskip var það og öll segl niður dregin, nema stórt toppsegl á framsiglu. Menn sáust á gangi nokkru austar. Þeim var fljótt safnað saman. Þeir voru sjö. Skipið var skammt frá landi og hallaðist lítið eitt. Lítill bátur var rétt ofan við flæðarmálið. Eftir bendingu skipbrots- manna var farið að bátnum, og ætluðu menn að færa hann lengra frá sjónum. í öðrum enda hans var dálítil fatahrúga. Einhver hreyfði við þessu. Og nú bar ó- venjulega sjón fyrir augu: Þarna í þessari fatahrúgu lá kona. Ekki hreyfðist hún, en var þó auðsjáa)i lega lifandi. En fljótlega virtist hún vakna af dvala og reis þá upp. Það mátti skilja, að allir skips menn voru komnir á land. Ómeidd ir voru þeir, en allir blautir. Frost var vægt og þess vegna lítil hætta á kali, og hreyfing hafði haldið þeim sæmilega heitum. Konan var allvel búin að flíkum en alblaut. Ekki var henni mjög kalt nema á fótum, því að sokkar hennar voru þunnir. Einn íslendingur fór úr ytri sokkum sínum. Þeir voru þurr ir og þykkir, og var nú farið að koma þeim á fætur konunnar. Ekki gazt henni vel að þessari hugulsemi og streittist nokkuð á móti. En hér var ekkert slíkt tekið til greina: í sokkana fór hún, og var bundið um fyrir ofan kálfana, svo að þeir færu ekki niður af henni. ( Það gekk fljótt að koma öllum \ strandmönnunum á hesta. Handa konunni var valinn stilltur hestur og traustur. Stórt og gott loðskinn — gæruskinn — var yfir hnakkn um og svo vel um búið sem unnt var. Treg var hún til þess að setj ast 1 þetta hásæti, en hér urðu aðrir að ráða: Sterkir armar Há- varðs í Króki lyftu frúnni í hnakk- inn án þess að hafa orð um. Svo var maður látinn ganga með hlið hestsins og studdi sá við henni, en annar teymdi. Auðséð var á svip og látbragði frúarinnar, að henni líkaði ekki sem bezt þessar aðfarir, og ekki batnaði, þegar stór, kafloðin sauðar gæra var breidd yfir bak og herð ar og bundin yfir um hálsinn. En bráðlega virtist henni skiljast, að ekki var um illvilja einan að ræða. Það sást þó einkum, þegar vatnið í graflækjunum náði hestinum í kvið — eða vel það — að henni mun hafa fundizt betra að vera uppi í hnakknum en niðri í bleyt- unni. Miklu auðveldara var að fást við karlana. Þeir virtust skilja ástæðurnar betur. En valtir voru þeir í sessi, sumri. Og án óhappa og verulegra tafa komust allir heim að Fljót- um, þar sem heit mjólk, kaffi og brauð var tilbúið handa þess- um sjóhröktu mönnum. Og þótt ekki væri vítt til veggja né há- reist baðstofan, varð ekki vart, að þrengsli böguðu hlýlegar móttök- ur. Frúnni útlendu var strax komið í rúm og jafnskjótt fór einn karl- inn undir sængina hjá henni. Sum- ir hinna fóru í önnur rúm í bað- stofunni. Um þetta leyti var hreppstjór- inn, Stefán Ingimundarson á Rofa- bæ, kominn á vettvang. Hann tók skýrslu af skipstjóranum. Til þess hafði hann eyðublað, þar sem spurningar voru prentaðar á ýms- um málum, og átti að svara þeim skriflega eins og við átti. Þetta strandaða skip hét Babetta, franskt seglskip með saltfarm. Skip verjar voru sjö, auk konu stýri- manns, sem hafði farið þessa ferð sér til skemmtunar. Nú var sendur hraðboði til sýslu- manns, sem bjó 1 Vík í Mýrdal, en hreppstjóri gerði þær ráðstaf- anir, sem þurfti í bili, svo sem að vista mennina og setja varðmenn 441 * T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.