Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Page 14

Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Page 14
töku við kvikmyndir frá Heklugos- inu nítján hundruð fjörutíu og sjö. Eins og kunnugt er, tóku nokkrir menn kvikmyndir af gosinu, þeirra á meðal Ósvaldur Knúdsen, Guð- mundur Einarsson og Friðrik Þor- steinsson, svo og Árni Stefánsson og Steinþór heitinn Sigurðsson. Þessir menn allir náðu mjög merk um myndum af gosinu. Svo kom það í hlut okkar hljóðupptökufúsk ara að hjálpa til að setja við mynd- irnar talskýringartexta, og þá eiok um við mynd Ósvaldar Kaúdsen. Þetta var að sjálfsögðu ýmsum erf iðleikum bundið á þessum árum, en kom mér þó í snertingu við kvikmyndina og færði mér heim sannin um, hvers kvikmyndia er megnug. Óðar fékk ég Jöngun til að eignast tökuvél, og það varð eins og fyrr getur um nítján hundruð og fimmtíu. Ég hafði einkum hug á að kvik- mynda íslenzka náttúru og sýna þvi fólki, sem ekki gefst tækifæri til að ferðast og kynna sér landið og hið fjölbreytilega líf, sera þar getur að líta. Sem sagt: Ég viidi færa brot af íslenzkri náttúru heim til þessa fólks, og snemma fékk ég þá hugmynd að kvikmynda líf og háttu arnarins. En einnig sneri ég mér að öðrum verkefnum. Auðvitað var þetta allt unnið í hjá- verkum, og að auki var erfitt að afla þess hráefnis, sem til burfti. Efnið var rándýrt og hátollað á þeim árum, og er það raunar enn. Það er nær ófyrirgefanlegt, sé miðað við fræðslugildið, sem kvik- myndir geta haft. En fyrsta viðýangsefnið var sem sagt laxaklak. Ég hafði mjög góða aðstöðu við Elliðaárnar og náði at- hyglisverðum myndum af fóstur- stigum laxins. Kvikmyndin hlaut nafnið „Laxaklak" og kom skömmu síðar út í nokkrum eintökum. Hún hefur verið sýnd í skólum og víðar, meðal annars í sjónvarpinu, og enn virðast sumir kaflar hennar vekja athygli, þó nú sé margt með tfortíðarsniði, sem þar er sýnt. Væri gaman að geta fylgzt með tímanum og tekið nýja kvikmynd, þó ákveðnir hlutir í gömlu mynd- inni séu enn í fullu gildi. Um þetta leyti kom mér einnig í hug að gera landkynningarkvik- mynd, safna því saman, sem út- lendingum þykir auðkenna ísland. Ég bað Ferðaskrifstofuna um sam- vinnu, en hún vildi lítið sem ekk- ert sbipta sér af þessu tiltæki. Það er nú einu sinni svo, að þem sem hafa umsjón með íslenzkum ferða- málum, hampa útlendingum og vilja allt fyrir þá gera, en v;ð, þess- ir litlu íslenzku karlar, við eigum takmörkuðum vinsældum að fagna. Hinir segjast fara með kvik- myndirnar út í heim og kynna landið, en við erum sagðir sitja á okkar rassi og engum koma að gagni. Jæja. Ekki vildi ég gefast upp og setti saman kvikmynd úr því efni, sem ég hafði aflað mér á ferðum um landið, og hlaut hún nafnið „Highlands of Iceland“ eða „Hálendi íslands“. Vildi ég bjóða Ferðaskrifstofunni myndina til kaups, en forráðamönnum ferða- mála þótti hún allt of kaldranaleg, og varð það úr, að við félagarnir gáfum hana út á eigin kostnað. Þessi kvikmynd hefur verið mikið notuð, að því er mér er tjáð. Ut- anríkisráðuneytið og sendiráð- in eiga myndina, hún hefur komið út í tuttugu eða þrjátíu eintökum og þykir enn athyglisverð. Kvikmyndin er einkum sniðin fyrir útlendinga og sýnir að sjálf- sögðu aðeins brot af íslenzkri nátt- úru. Lögð er áherzla á andstæður landsins, hitann og kuldann, ís og eld. í myndinni eru engar tökur úr byggð. Hún sýnir einungis háfjöll- in, öræfin, hverasvæði og jökla. Þessi mynd hefur sem sagt hlot- ið góðar viðtökur erlendis, og mér þykir mjög ánægjulegt að eiga einhvern þátt í kynningu landsms, þó stundum hafi blásið á móti. Mjög dýrt er að gera kvikmynd, og undir hælinn lagt, hvort nokkur ábati verði af henni. Aðstaða ís- lenzkra kvikmyndagerðarmanna er slík. — íslenzk kvikmyndagerð er að mestu sjálfboðavinna. — Já, það má segja það, og sök- um þess sárnar mér stundum, þeg- ar farið er lítils virðandi orðum um íslenzka kvikmyndagerð, en lofi dengt óspart á yfirborðs- mennsku útlendinga, sem þykjast geta gert íslendingum óborganlegt gagn. Viljum við kynna okkar land, þá tekst slíkt betur, ef við gerum það eins og við viljum en látum ekki útlendinga ræna okkur þessu hlutverki. Ef til vill má segja sem svo, að glöggt sé gests augað, en í erlendar kvikmyndir slæðist oft ýmislegt, sem mætti liggja í þagn- argildi. íslendingar hljóta að túlka sitt land manna bezt. Að minnsta kosti fer vel á því að vita, hvað borið er á borð fyrir útlendinga. En við skulum ekki ræða þetta frekar, enda hafa tímarnir breytzt síðan ég gerði mína landkynningar kvikmynd. — Ög hvað gerirðu þá að lok- inni landkynningu? — Eftir þetta hélt ég áfram að taka myndir ár hvert í öllum mín- um frístundum eftir því sem efni og ástæður leyfðu. Ég tók einkum myndir af fuglum, og þó sérstak- lega fylgdist ég með erninum á„ slóðum hans fyrir vestan. Úr þessu efni hef ég svo gert tvær kvikmynd ir, „Arnarstapa“ og „Fuglarnir okk- ar“, en báðar þessar myndir hafa verið sýndar í sjónvarpinu og við- ar. í „Fuglarnir okkar“ sýni ég eitthvað um fimmtán fuglategund- ir. Ég reyni að lýsa lífi fuglanna yfir vortímann, sýni þá sjálfa, hreiðurgerð þeirra, varpið og ung- ana. — Hafa ekki sumir fuglar verið erfiðir viðureignar? — Ekki svo mjög. Hafi maður þau verkfæri, sem fuglamyndun krefst, má yfirstíga margan erfxð- an hjalla. Þau eru svo sem ekki gefin, þessi verkfæri, en áhugan- um halda engin bönd. — Og hvaða galdratæki viltu nefna mér? — Ég hef til dæmis afbragðs góða linsu. Hún hefur fimmtán- faldan aðdrátt og er undravert verkfæri, dregur betur að en bezti kíkir. Ég hefði ekki getað tekið arnarmyndina, hefði ég verið án þessarar linsu. Ég vildi ekki fara svo nærri hreiðrinu. En hafi maður slík „vopn“ og nægan tíma til umráða, er tugla- myndun í sjálfu sér leikur einu, og það mjög skemmtilegur og gagnlegur leikur. En gætum að einu. Tækin leysa ekki allan galdur. „Vopnið“, sem mestu ræður, er þolinmæði. Hana verður að stilla á óendanlegt. — Þú hefur átt langar setur yf- ir fuglahreiðrum? — Já, og hið eina, sem dugir, er að sýna meiri þolinmæði en við- fangsefnið. Það er vel hægt og það er leikur og það er gaman að því. Það er næstum nautn að finna sig geta náð þessum tökum á við- fangsefninu. Ég hef til dæmis setið í nám- unda við þrastarhreiður, þar sem ungarnir voru á ágætu og fallegu skeiði, og ég náði prýðismyndum 446 TÍMINN — SUNNUDAGSBLAB

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.