Tíminn Sunnudagsblað - 21.05.1967, Page 19
Sarajevó — hvolfþök og mjóturnar guðshúsa Múhameðstrúarmanna setja svip slnn á gamla bælnn.
atburði, er urðu í Sarajevó þennan
dag.
Ekkert er sjálfsagðara en að
sýna ferðamönnum, sem koma til
borgarinnar, en staðinn, þar sem
menntaskólapilturinn Gavríló Prin-
cip stóð og erkihertoginn og frú
hans féllu fyrir kúlunum úr byssu
hans. Atburðurinn varð á göitu-
horni við Miljakka, fast við brúna,
sem nú er kennd við Gavríló. Erki-
hertoginn var á leið frá ráðhús-
inu. Liðsforingi í fylgdarliði hans
hafði spurt yfirhershöfðingjann í
Bosníu og Hersegóvínu, hvort gerð-
ar hefðu verið svikalaust allar
þær ráðstafanir, sem nauðsynlegar
gætu talizt. Og yfirhershöfðinginn,
Pótíórek, sem ekki hafði mikil
kjmni af landsmönnum, svaraði
drembilega:
„Haldið þér, að borgin sé full
af morðingjum?“
Vissara þótti samt, að erkiher-
toginn æki ekki þá leið, sem fyrir-
hugað hafði verið. Farin skyldi
beinasta leið eftir árbakkanum. En
fyrirmælin komust aldrei til manns
þess, sem ók fremsta vagninum.
Hann beygði til hægri hjá latnesku
brúnni eins og upphaflega hafði
verið gert ráð fyrir. Ökumaður
erkihertogans fylgdi á eftir. Pótíó-
rek yfirhershö/ðingi, sem sat fyrir
aftan hann, sló á öxlina á honum
og vakti athygli hans á því, að
hann færi ekki rétta leið. Öku-
maður stöðvaði farartækið beint
fyrir framan Gavríló — einn sex
TÍMINN — SUNNUDAGSfiLAÐ
451