Tíminn Sunnudagsblað - 18.06.1967, Page 5

Tíminn Sunnudagsblað - 18.06.1967, Page 5
— Hann þessi lærdómur , * ÞórSur fæddist 25. nóvember áriS 1905. Hann ólst upp í StaSarsveit, en fluttist svo ásamt foreldrum sinum aS Dag- verSará undir Jökli. „Níu ára rerl ég ( fyrsta skipti og hef síSan verið sjómað ur á vetrum og sveitamaSur á sumrum.'1 Að auki er Þórður refaskytta, Ijóð- skáld og listmálari. — Hvaðan hefurðu þessa vizku? — Minn lærdómur, hann er mestur af því fólki, sem heimur- inn nefnir karla og kerlingar. Það voru gáfaðir fræðimenn undir Jökli, margir skyggnir, og enn aðrir höfðu fjarsýnisgáfu. — Þú hlýtur að hafa afiað þér lífsspeki víðar en í fleti með kar- arkerlingum. — Ég var átta vikur í barna- skóla, og hef ekki setið á skóia- bekk jsíðan. En á ég að segja þér eitt. Ég hef lært mest af því að vera einn á fjöllum. Þar hefur veröldin numið staðar. Þar er kyrrð. Þar eru litabrigði á hverj- um einasta klukkutíma. Ég viðurkenni, að það er tor- velt að læra á skólabekk. Það er bölvaður þrældómur. En sá, sem lærir á fjöllum, hann lærir upp á líf og dauða. Og sá, sem stundar sjóinn eins og íslenzkir sjómenn hafa gert, hann lærir upp á iíf og dauða. Allur minn lærdómur er upp á líf og dauða. — Líf og dauði, líf og dauði. Hvert er þá megininntak þessa lærdóms? hann ... Þórður þagnar, og segir síðan með áherzluþunga: — Lif og dauði. Þetta er hvoru tveggja sára einfalt. — Það var og. — Ég skal segja þér eitt. Eg er gamall, en þú ert ungur. Eg hef lært upp á líf og dauða, en þú hefur tuggið skólabækur. Hvor hefur betur, hinn lærði Bjarni eða Bólu-Hjálmar? Það má velta vöngum yfir þessu. Fn ég veit í gegnum minn lærdóm, ,að lífið er einfalt. Lærðu mennirmr reyna að T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 509

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.