Tíminn Sunnudagsblað - 18.06.1967, Blaðsíða 5
— Hann þessi lærdómur ,
*
ÞórSur fæddist 25. nóvember áriS 1905.
Hann ólst upp í StaSarsveit, en fluttist
svo ásamt foreldrum sinum aS Dag-
verSará undir Jökli. „Níu ára rerl ég (
fyrsta skipti og hef síSan verið sjómað
ur á vetrum og sveitamaSur á sumrum.'1
Að auki er Þórður refaskytta, Ijóð-
skáld og listmálari.
— Hvaðan hefurðu þessa
vizku?
— Minn lærdómur, hann er
mestur af því fólki, sem heimur-
inn nefnir karla og kerlingar.
Það voru gáfaðir fræðimenn undir
Jökli, margir skyggnir, og enn
aðrir höfðu fjarsýnisgáfu.
— Þú hlýtur að hafa afiað þér
lífsspeki víðar en í fleti með kar-
arkerlingum.
— Ég var átta vikur í barna-
skóla, og hef ekki setið á skóia-
bekk jsíðan. En á ég að segja þér
eitt. Ég hef lært mest af því að
vera einn á fjöllum. Þar hefur
veröldin numið staðar. Þar er
kyrrð. Þar eru litabrigði á hverj-
um einasta klukkutíma.
Ég viðurkenni, að það er tor-
velt að læra á skólabekk. Það er
bölvaður þrældómur. En sá, sem
lærir á fjöllum, hann lærir upp
á líf og dauða. Og sá, sem stundar
sjóinn eins og íslenzkir sjómenn
hafa gert, hann lærir upp á iíf
og dauða. Allur minn lærdómur
er upp á líf og dauða.
— Líf og dauði, líf og dauði.
Hvert er þá megininntak þessa
lærdóms?
hann ...
Þórður þagnar, og segir síðan
með áherzluþunga:
— Lif og dauði. Þetta er hvoru
tveggja sára einfalt.
— Það var og.
— Ég skal segja þér eitt. Eg
er gamall, en þú ert ungur. Eg
hef lært upp á líf og dauða, en
þú hefur tuggið skólabækur. Hvor
hefur betur, hinn lærði Bjarni eða
Bólu-Hjálmar? Það má velta
vöngum yfir þessu. Fn ég veit í
gegnum minn lærdóm, ,að lífið er
einfalt. Lærðu mennirmr reyna að
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
509