Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Blaðsíða 10
undsbjartan herramanninn. Þa?5 gildir að kenna þeim mannasiði. En fellum þetta tal um úti- göngubörn og lítum inn í skóla i bænum Mamelódi. Þegar við kom um inn í beztu bekkina, sjáum við fjögur börn sitja við öll borð, enda þótt þau sóu ekki ætluð nema tveim En þetta er hrein hátíð. í öðrum bekkjum eru ekki einu sinni borð handa nemendunum — ekkert nema bert sementsgólfið. Á því liggja börnin á hnjánum með náms gögn sín á gólfinu og hafa í skásta lagi pappírsspjald undir sér í vetr- arkuldum. jGólfin eru þakin börn- um í þessum stellingum, enda eru stundum upp undir hundrað, sem kennt er samtímis. Áttatíu til níu- tíu er algeng tala í bekk. Laun kennaranna í þessum fyrirmyndar skóla eru um tólf hundruð krón- ur Lslenzkar á mánuði. Varla þarf að geta þess, að skól- ar hvítra barna í Suður-Afríku eru ágætlega búnir, og kennarar þar dáivel launaðir. Til barnaskóla hvíta fólksins í landinu er veitt tíu sinnum hærri fjárhæð en til skóla svarta fólksins, sem þó er miklu fjölmennara og þar að auki miklu barnfleira. Síðan er bað notað sem dæmi um vanhæfni varta kynstofnsins, að ungviðið mannist ekki við skólagönguna né öðlist þekkingu i s'kólunum á borð við hvítu börnin. Efri myndin: Níutíu nemendur í bekk án borða og stóla. — NeSri myndin: Kóf- sveittur nemandi, sem streitist við að fylgjast með því sem kennarinn segir. 898 TtniNN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.