Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Blaðsíða 12
Leirá i Leirársveit. Ljósmynd: Páll Jónsson. 1. Það er kunnara en frá þurfi að. segja, að minningarnar taka að sækja fast á suma menn, þegar aldur færist yfir þá. Þess vegna verða til ævisögur og æviminning- ar, sem tengja saman fortíð og nú- tíð, og er það vel. Jafnvel einn dagur getur leitað svo á hugann, að löngun til þess að minnast hans knýi til frásagnar. En aðdragand- inn að því, sem gerðist á einum degi, getur oft verið nokkuð lang- ur. Sumardagurinn fyrsti árið 1905 var hinn fegursti fyrsti sumardag- ur, sem ég hef lifað, að mér finnst, með sólskin og sunnanblæ og grænkandi haga, sóleyjar í varpa og ilm úr jörðu. Sumargestirnir voru að koma hver af öðrum sunn- an yfir höf og í þann veginn að hefjast sú sinfónía, sem lífið á dásamlegasta — sjálfur lifsóður- inn. Og næsta sunnudag var hátíð lífs og fagnaðar, því að þetta ár voru sumarpáskar. Eftir fagurt vor kom gott og gjöfult sumar — bjargræðistíminn eins og þá var sagt með réttu. Þetta var að vísu tími mikiis erf- iðis, sem ekki myndi nú þykja forisvaranlegt. Bændur, sem bjuggu á fjórum jörðum þurftu að hafa mörgu fólki á að skipa, vinnuhjúum og kaupafólki, eink- um ef hlunnindajarðir voru. Þetta voru hin stóru og mannmörgu heimili, sem rómuð hafa verið í sögum. 2. Ein slíkra jarða var höfuðbó'ið Leirá í Leirársveit. Þar höfðu um aldir búið höfðingjar og ríkisnr ’ -, sem jafnan höfðu margt fóik á vist með sér eins og jörðin t- heimti, ef hún átti að nýtast að fullu. Skal nú leitast við að i 'sa þvi, hversu til var háttað á I ■’-á á þessum árurn og lengi síðr r Húsaskipan á Leirá var svo bátt- að á þessum tíma, að ibúðarhús var úr timbri, ailstórt að þá þótti, járnvarið og með brotnu þaki, sem mig minnir, að væri lagt hellum. Norðan við það var geymsluskúr, og þar mátti kirkjufólk hafa sokka- skipti á messudögum. Rétt þar fyr- ir austan var torfhús allmikið, sem kallað var eldhús, og voru þetta leifar ai gamla torfbænum. Austan við þetta garnla hús var 900 1 I tt < \ M - SllNM«JI)/\<iSBt.AÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.