Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Síða 16

Tíminn Sunnudagsblað - 15.10.1967, Síða 16
9. Áður en af sjálfu uppboðinu seg- ir, langar mig til þess að víkja lít- ið eitt að þeim mönnum þrem, sem mæddi mest á þennan dag. Er þá fyrst að nefna Ólaf Jóns- son á Geldingaá, sem var mestur virðingarmaður í Leirár- og Mela- sveit. Hann fæddist á Leirá 24. september 1850, sonur Jóns stúd- ents Ámasonar frá Kalmanstungu og Ragnhildar Ólafsdóttur frá Lundum. Hann var hreppstjóri eins og áður var sagt, hrepps- nefndaroddviti, sóknarnefndar- formaður, meðhjálpari í Leirár- kirkju, sáttanefndarmaður og margt fleira. Hann var maður í hærra lagi, þrekinn og karlmann- legur, enda sterkur vel. Hann var léttur i !und, gamansamur og skemmtilegur maður og lét fjúka marga fyndni, sem dátt var að hlegið. Hann var með mikið al- skegg, sem hærðist snemma. Ólaf ur vár í góðum efnum, bjó traustu búi og var góður og hjúasæll hús- bóndi. Hann kvæntist ekki, en átti nokkur börn með ýmsum konum. Skrifari á uppboðinu var Eggert Ólafsson, bóndi á Hávarsstöðum. Hann mun hafa fæðzt 14. marz 1868 að Sturlureykjum í Reyk- holtsdal, sonur Ólafs bónda þar og Þuríðar Þorsteinsdóttur, konu hans. Eggert bjó við mikla ómegð á lítilli jörð, en vann mikið utan heimilis, enda hamhleypa til verka, lagvirkur og eftirsóttur til starfa, einkum þó byggingavinnu og veggjahleðslu. Hann var ágætur vefari og stundaði vefnað af kappi heima á vetrum. Hann var og söngmaður góður og forsöngvari í Leirárkirkju í mörg ár, átti sæti í sóknarnefnd og var meðhjálpari um skeið. Eins og áður gat var brennivín veitt á öllum uppboðum á þessum árum, og mun það hafa verið ævagamall siður, að hver, sem hreppti númer, átti rétt á að fá staup. Varð þetta mjög til þess að örva menn til að bjóða í, og munu veitingar þessar hafa borg- að sig vel. Sá, sem hafði þann starfa með höndum að miðla brennivíninu þennan eftirminni- lega dag, var faðir minn, Eggert Gislason, sem hafði flutzt leiguliði að Vestur-Leirárgörðum, niður- níddri jörð, árið 1903. Hann fædd- ist að Oddsstöðum í Lundarreykja- dal 16. febrúar 1873, sonur Gísla Eggertssonar frá Eyri, Gfslasonar, og Guðrúnar Einarsdóttur frá Steinsholti. Hann varð seinna með- hjálparl í Leirárkirkju og sóknar- nefndarformaður í fjölda ára, hreppsnefndarmaður um nokk- urt skeið og sitthvað fleira hafði hann með höndum af slíkum störf um. Báðir voru þeir nafnar, Eggert á Hávarsstöðum og faðir minn, frændur Þórðar heitins á Leirá. Uppboðið hófst með því, að Ólafur hreppstjóri steig upp á kassa, eða eitthvað slíkt, rétt við dyrnar á gamla eldhúsinu, en þangað höfðu verið færðir þeir munir, sem selja átti. Þar þyrpt- ust gestirnir samán í þéttan hóp, og var það i mínum augum mik- ill mannsöfnuður. Hreppstjóri sagði uppboðið sett og las skil- mála alla um borgun og annað, svo sem venja var. Kallaði hann síðan upp fyrsta númerið, en ekki man ég, hvað það var. Litlu síðar skall uppboðshamarinn í fyrsta skipti í eldhúsþilið, og fyrsta brennivínstárið rann um kverkar hins lánsama kaupanda, Norðanstormurinn æddi niður flóana og færðist í aukana og hreyttl úr sér snjókornum eigi allfáum, komnum einhvers staðar ofan úr hinum gráa skýjahjúpi, sem huldi sólarsýn þennan dag. En Ólafur á Geldingaá dró niður hattinn, vörpulegur á velli og með glettni í augum og gaman- yrði á vörum, og hvatti þennan stóra hóp fremur dapurlegra manna, sem umhverfis hann stóðu eins þétt og verða mátti í skjóli við gamla eldhúsgaflinn á Leirá. Og munir voru réttir út, sýndir og Ieitað eftir boði, getið um kostj þeirra, en síður fjölyrt um gallana. „Fimmtíu aurar, fimmtíu aurar eru boðnir . . . sextíu aurar . . . sjötíu og fimm, sjötíu og fimm aurar eru boðnir . . . ein króna . . . ein og tíu . . . ein og tuttugu . . . ein og þrjátíu, tveir um boðið ... eln og fimmtíu, ein og fimmtíu . . . fyrsta, annað og . . . ein sjötíu og fimm . . . fynsta annað . . fyrsta, annað og þriðja sinn.“ Og svo reið höggið af. Hæst- bjóðandi fékk hlutlnn, sem hann hafði girnzt, og átti nú heimtingu á brennivínsstaupi. En þar á var vandinn hvað mestur eins og á stóð. Frost fór harðnandi og veð- urhæð vaxandi með nokkurri snjó komu, og kuldinn smaug í gegn um merg og bein. f slíkum veor- um næddi gegnum vaðmálsfatnað og prjónaplögg. Og menn voru margir langt að komnir, ýmist gangandi eða ríðandi, en langur dagur framundan og jafnvel ólík- legt, að hann entist, enda fór svo, að liðið var að miðnætti, er útl var. Hér varð því að hafa hina mestu gát á vínveitingum, svo að enginn yrði fullur, sem oft vildi verða, þótt minna væri um að vera en hér. Faðir minn mátti því halda fast um litla glerstaupið, sem honum hafði verið fengið til þgssarar út- deilingar, þegar sömu mennlrnir hrepptu hvert númerið af öðru. Sjáifur var hann hinn mesti hófs- maður á vín — hélt, að hann hefði fundið tvisvar á sér breyt- ingu sökum víndrykkju um ævina Vildi hann og, að aðrir gættu þar hófs. Hann lét því ógjarna draga úr greipum sér meira en hann vildi láta úti eða þótti hóf á vera, enda tókst honum að varna því, að nokkur yrði fullur á þessari samkomu. En kaldsætt verk var þetta í slíku veðri, og hafa varð hann á höndum vettlinga, sem fljótt urðu blautir, einkum á þeirri hendinni, sem á staupinu hélt. Tvennt varð honum minnisstæð ast frá þessum degi: Ásóknin i brennivínið og þrábeiðni manna um heyhjálp, enda komu tveir bændur daginn eftir með þrjá eða fjóra hesta, en þá var veður orð- ið skaplegt. Ég, sem rifja nú upp minning- ar mínar um uppboðið á Leirá 3. maí 1906, varð fljótlega að hörfa af vettvanginum sunnan undir eldhúsgaflinum á Leirár- hlaði. Hér var hvorki staður né stund fyrir klæðfáan, níu ára gamlan sveinstaula, sem ekkert erindi átti annað en glápa á aðra og hlusta eftir því, sem sagt var. Og hér mætti víst enda þessat bernskuminningar með því, að ekkert sogulegt gerðist, sem ég heyrði síðar talað um. Fénaður allur, sem þarna var se'ldur, mun hafa verið vel fram genginn og gemlingar svo aldir, að búið var að rýja þá, enda keypti kaupmaður einn úr Reykja vík, sem oft var í fjárkaupum efra og þarna staddur á uppboð- inu, þrjátíu þeirra tll slátrunar. 904 rÍHINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.