Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Síða 5

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Síða 5
JÓLAHUGLEIÐING í viðtalsformi Jólin nálgast. Þau eru hlýr og bjartur áfangastaður á silalegu þrammi okkar gegnum drungalegt skammdegið. Aðventan líður svo hratt hjá fullorðna fólkinu, að vet- urinn styttist um marga daga. Áð- ur en varir erum við komin í spari föt og setzt við svignandi krása- borð, alsæl út í hvern taugarenda. Við sendum ástúðarþakklæti í huganum til guðs og Jesú og Maríu. Okkur þykir vænt um þau. Auðvitað erum við ekki að hrósa otkkur atf því, það er ekki erfitt að elska verur, sem eru jafnlangt i burtu. Engin hætta á því, að þær geri til okkar óþægilegar kröfur. En gæti ekki verið gaman að bregða björtum geislabaugi á ein- hverja, sem eru ofurlítið nær? Eiga þau María og Jesúbarnið ekki systur og litla bræður hérna niðri á jörðunni hjá okkur? Jú, víst eiga þau það. Sum eru meira að segja eingetin eins og Jesúbarnið. Já, eirtgetin. Er barn einstæðrar móður ekki í ytri tilvikum jafn- gi'lt eingetnu barni? Faðir, sem gist hefur móður þess nokkrar nætur, en flýgur síðan burt og sést aldrei meir, gætum við ekki orðið sammála um, að hann sé engill með boðskapinn: Sjá, þú munt son fæða, vina mín. Eða litla telpu. Slíkur faðir vill barninu vel, en hann er ósýnilegur. Eins og með engla. Hann skiptir sér ekki af neinu, en í hugskoti barnsins er hann lukinn ástúð. Eins og engili. En tæknimenningin hlífir ekki eingetnaði fremur en öðrum ytfir- náttúrlegum fyrirbærum. Hin fræga „pilla“ mun eflaust for- myrkva margar boðanir. Eins og það hlýtur þó að vera miklu giftu- drýgra að eiga eitt barn með rétt- um engli en fjögur eða fimm með röngum manni. Eitt kvöldið fékk ég undarlega heimsókn. Það voru þrjár konur sem ekki vildu segja mér sín réttu nöfn. — Kallaðu mig Guðríði, sagði sú fyrsta. — Mig Sigríði, sagði önnur. — Mig þá Jóríði, sagði þriðja, Þessar konur áttu samtals þrett án börn. Þær Köfðu allar gifzt ungar og verið óheppnar. G: Maðurinn minn drakk í tvo mánuði af hverjum þremur. J: Ég var átján ára. Hann var glæsilegur, maðurinn minn, og lofaði að bera mig í fangir.u yfir allar torfærur. S: Ég hætti að umganáast vin- konur mínar. Ég vildi ekki láta þær sjá, hvernig komið var. G: Börnunum þótti samt vænt um hann. Á jólunum brást ekki, að hann væri fullur. Þau hlúðu að honum, breiddu yfir hann sof- andi, og settu gjafirnar við hlið- ina á honum. J: Meðan við vorum gift, fannst honum börnin alltaf vera fyrir. Á frídögum svaf hann eða fór með mig eina í bíitúr. Síðan við skildum kemur hann oft að sækja þau, og hann vill gefa þeim allt, sem þau biðja um núna. S: Þegar móðurinni líður illa, bitnar það oft fyrst og fremst á börnunum. Það eru þau, sem hún umgengst mest. ......Hið andstæðukennda við hjónaband, segir danskur rithöf- undur, er, að þessi samningur á að vera þjóðfélagsleg hamingju- trygging fyrir börn, þótt grund- völlur hans sé óraunsæ ástarvíma. Sambærilegt væri að spenna tvær turtildúfur fyrir jeppa og segja: Jæja, dragið þið nú. Upp brekk- una! Þessum rithöfundi finnst, að kynferðisfræðsla í skólum ætti heldur að heita hjónabandsfræðsla og fjalla um þær skyldur, sem barneignir leggja föður og móð- ur á herðar. S: Illt er að ganga í sömu káp- unni ár eftir ár. En verst er að standa ein fyrir uppeldinu. G: Gifti ég mig nokkurn tíma aftur, ætla ég að semja nákvæm- lega við mannin,n minn um það, hvernig við skiptum tekjunum, hverjar skyldur hvort um sig hetf- ur gagnvart börnunum, og um, að ég hatfi fullan rétt til að hatfa fleiri áhugamál utan heimilisins en saumaklábba. S: Það er erfitt fyrir börnin að eiga engan pabba, jafnvel þótt hann væri alltaf úti á sjó! Þau verða sundurtætt á sálinni af skot- hríð nágrannakrakkanna: Mamma þín er fátækur aumingi, og pabbi þinn fyllibytta! G: Fjögur fimm börn, sem hafa engan nema móður sína að leita til. Þau ætla að slíta mann í tætl- ur. S: Bara það væri einhvern tíma friður til að raða hugsunum sín- um. Þá gæti ég kannski sagt orð af viti. J: Heilaga móðurást! Það getur farið að slá í hana, þegar maður heyrir aldrei í sjálfum sér fyrir öskrum. G: Ég mundi ráðleggja hverri einustu konu að gera allt, sem hún getur til að reyna að laga hjónabandið áður en hún fer út í skilnað. S: En getur þjóðfélagið heimt- að, að kona búi með geðsjúMingi. Maður, sem kemst ekki heim með kaupið sitt fyrr en hann er bú- inn að drekka út, ja, kannske átján af tuttugu þúsund krónum og lætur heimilið alltaf sitja á hakanum fyrir brennivíni, hann hlýtur að vera geðveikur. G: Það voru engin peninga- vandamál hjá okkur. Og alltaf ætlaði hann að hætta að drekka. Elskan mín, nú skulum við verða svo hamingjusöm. Og við vorum svo hamingjusöm, kannske einn, tvo mánuði. Þá kom hann eitt kvöldið ekki heim, og sást ekki í margar vik-ur. Nema hvað ég frétti af honum dauðadrukknum hér og þar. Og svona gekk það aftur og aftur. Þið getið ímynd- að ykkur, hvað þetta er lamandi fyrir eina konu. Ég var orðin al- gerlega sljó og niðurbrotin, treysti mér ekki til neins, draug- aðist einhvérn veginn áfram. Mér var orðið nátovæmlega sama hvern ir ég leit út. Ég slitnaði gersam- lega úr tengslum við umheiminn T í M I \ N — SUNNUDAGSBLAf) 1109

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.