Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Qupperneq 7

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Qupperneq 7
Möðruvellir í Hörgárdal, þegar skóllnn var þar. Séra Ágúst Sígurðsson: MÖDRUVALLA- KLA USJURSKIRKJA I. Hinn 5. marz 1865 varð einn hinna miklu eldsvoða á Möðruvöl- um í Hörgárdal. Brann þá í grunn kirkjuihús það . hið mikla sem Stefán amtmaður Þórarinsson lét reisa þegar, er hann kom á stað- inn 1787, en hann húsaði og stað- inn að öðru leyti sem hæfði setri amtmannsins norðan og aust- an. Með komu Stefáns Þórarinsson ar að Möðruvöllum hefst þar tíma bil amtmannanna, sem stóð til 1875. Næsta skeið þar á undar er kennt við klausturhaldarana, um- boðsmenn konungs, sem keyptu Möðruvallaklaustur og jarðir þess á leigu af hinu danska konungs valdi. Tekur það tímabil yfir rösk- ar tv-ær aldir, eða frá siðaskiptum til þess, er Möðruvellir verða amt- mannssetur. Bæði þessi tímaskeið voru Möðruvellir skipaðir þannig Aldarminning setnir, að prestar kirkjunnar kom ust ekki að staðnum, nema ef telja mætti séra Björn Gíslason, fyrrverandi reglubróður á klaustr- inu, sem varð umboðsmaður kon- ungs, er klaustrið var lagt niður, og séra Halldór Benediktsson, hinn mikla auðmann, sem einnig hélt klaustrið á leigu á ofanverðri 16. öld. Hvorugur þeirra var þó í rauninni prestur Möðruvallaklaust- urskirkju, en opinberir fjárafla- menn, enda héldu báðir aðstoðar- presta til hinnar almennu prestas- þj'ónustu. Svo er það 1575, að séra Jón Jónsson fær konungsbréif fyrir Möðruvallaþinghá. Er þá vitað hvað orðið var: prestur Möðruvalla klausturskirkju sat eigi lengur á staðnum. Það heita þing eða þinga brauð, þar sem presturinn er ekki búandi á heimajörð kirkjunnar, en hinsvegar beneficium, þar sem prestbólið er kirkjustaðurinn sjálf- ur. Útkirkja hefur aldrei verið að lögum á Möðruvöllum, en á tíma- bilum í framkvæmd, eitt eða tvö ár í senn á milli presta. Að und- anskildum einstaka einhleyp- um presti (i þurrabúð) og djákna (eftir lagasetning að ráði Harboes 1746) hafa þjónar Möðruvallaklaust urskirkju búið á ýmsum jörðum í sókninni. Hin festulausu prestból í Möðruvallaþingum eru þessi kunn , ust: Dunhagar báðir, í Stóra- Dun- haga sat síra Sigurður Stefánsson, sem. varð hinn síðasti Hólabiskup, hélt Möðruvelli 1773—1781, í Litla- Dunhaga séra Jón Jónsson „lærði“, 1839—1846, og er legsteinn hans fyrir kirkjudyrum á Möðruvöllum, nokkuð brotinn síðan í brunanum 1865, er turn, sem Þorsteinn Danl elsson hafði byggt við kirkjuna 1853, féll fram á kirkjuhlaðið, sem þá var komið inn í grafreitinn. Aðr ar ábýlisjarðir Möðruvallapresta voru Auðbrekka, áður sjálfstætt beneficium, og svo Arnbjargar- brekka (Stóra-Brekka), Ós, Relsfc- ará syðri, Þrastarhóll og Hof, sem síðar verður að vikið. Þótt amtmaðurinn flyttist til Akureyrar eftir bruna amtmanns- stofunnar 1874 komst presturinn þó enn ekki á staðinn. Eru Möðru- vellir byggðir frá ári til áns fram um 1880, er þar rís eini gagn- fræðaskóli landsins. Merka sögu Möðruvallaskóla er auðvitað ekki unnt að rekja í þessu ágripi. En bezta heimild um skólann eru Minningar frá Möðruvöllum, útg. Akureyri 1943, og svo í annan stað Norðlenzki skólinn, útg. Ak- T í U I iM N — SUNNUDAGSBLAH 1111

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.