Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Side 9

Tíminn Sunnudagsblað - 17.12.1967, Side 9
I steinn á Skipalóni, útg. Akureyri 1961, og lýsing hússins sé þannig aðgengileg og margra færi, vil ég geta hér nokkurra atriða til fróð- leiks þeim, sem síður eru kunnug- ir. Möðruvallaklausturskirkja er ölil hin veglegasta. Hún er 17,75x 8,25m að flatarmáli, byggð í einu skipi, það er kór og forkirkja ekki sérbyggð, eins og síðar varð mjög algengt í íslenzkri kirkju- smíði. Allt um það, að kór er í kirkjuiskipinu sjálfu og að rúm- góð forkirkja með geymsluher- bergi að norðan (2,3x2,5m2) og jafnstóru stigaherbergi að sunn- an, tekur kirkjan 280 marins í sæti. En þess ber að geta, að rúm- gott loft er í kirkjunni, 42m2. Þar var í fyrstu sérstök stúka fyrir amtmann og fjölskyldu hans, fyrir miðju, þar sem vel sér yíir alla kirkju. Nú hefur þessi stúka lengi verið notuð fyrir orgel kirkj- unnar og söngfólk. Hljóðfæri hef- ur verið í kirkjunni að minnsta kosti í 75—80 ár. Það, sem nú er notað er frá 1929, en gamla orgel- ið, sem Jón A. Hjaltalín útvegaði M Skotlandi um 1880 stendur nú nálægt sínum gamla stað í kór. Gamla orgelið var selt niður í Glæsibæ, er hið nýja kom, en haustið 1965, er nýtt orgel kom þar, hlutaðist ég til um að þessi faljegi og forni kjörgripur væri keyptur aftur í Möðruvallakirkju. — Upp af lofti kirkjunnar er lang- ur stigi í klukknaport í turni. Eru þar tvær klukkur, steyptar í Höfn 1866, stór og minni, ótrúlega hljómmiklar. Hæð kirkjunnar er nær 7 metrar í mæni, en 14 metr- ar upp að krossstöng. Sex gluggar Möðruvallakirkja að innan. Ljósmynd: Vigfús Sigurgeirsson. TÍMIfiN - SUNNUDAGSBLAÐ 1113

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.